Fimmtudagur 1. september

enn á lífi...

Hef ekki alveg verið að standa mig í því að setja eitthvað hingað inn. Enda er svosem ekkert mikið að frétta. Er bara á fullu í skólanum, verkefnaskil, skyndipróf og fleira í þeim dúr í stórum hrúgum og já lítið við því að gera annað en að standa sína pligt :)

Annars er ég, svona þegar ég hef tíma að leika mér með nýja leikfangið mitt. Þ.e myndavélina sem ég fékk í spánarferðinni :D bara hinn þokkalegasti gripur sko. Þarf bara að læra betur inn á hana og þá verður hægt að gera eitthvað af viti :)

Minnsti fjölskyldumeðlimurinn hefur aldeilis stækkað og er farinn að stjórna heimilinu harðri hendi, þó svo reynt sé að taka á þessari litlu frekjudós.

En jæja aftur að lærdómnum...ta ta

Sent af Sóla kl [22:08] Komment [0]