Laugardagur 22. október

Damn.... damn.. damn..

Hmm ég veit ekki alveg hvernig ég á að hefna mín á henni Láru fyrir að hafa klukkað mig en ég ætla að hugsa það mál vel ;)

en já... ætli ég taki ekki þátt í þessu :P

1. Er haldin fullkomnunaráráttu varðandi flest það sem ég geri.

2. Er ein flughræddasta manneskja Íslands.

3. Elska rómantískar gamanmyndir og unglingamyndir (ræskj..algjör gelgja)

4. Get verið ótrúlega nýjungagjörn en um leið hræðilega gamaldags (jahá..tvíklofinn persónuleiki)

5. Ætla að verða orðin eigin "herra" og vera komin með eigið fyrirtæki eftir innan við 3 ár.....

Hmm klukka.... jahh veit ekki hvern ég ætti að klukka... en jú "klukk" Óli, Áróra og Bjögga.. ;)

Sent af Sóla kl [21:53] Komment [2]

Föstudagur 14. október

Same old.. same old..

Djöfull er ég orðin gömul og heimakær!!! :P Nenni barasta ekki að koma mér út úr húsi á kvöldin nema ég sé tilneydd. Ætli þessi helgi verði ekki bara á rólegu nótunum sem fyrr og bara haft kósí :)

Var að gera fyrstu neglurnar eftir að ég keypti mér þar til gerðar græjur. Alltaf gaman að geta bætt einhverju við :D Fæ góða æfingu út úr því að gera þetta utan skóla og fæ þá kannski hærri einkunnir að launum ;)

Annars fara prófin að byrja hjá mér upp úr 20 okt, þannig að maður fer að leggjst í lestur og frekari æfingar fyrir verklegu prófin.

Eigið góða helgi... ta ta

Sent af Sóla kl [20:11] Komment [0]

Laugardagur 8. október

jamms og jæjjj....

Jæja kominn tími til að skella einhverju inn hér :P
Nú fer að líða að prófum hjá mér.. já önnur önnin að þremur er víst að klárast og eins gott að ég nái þessu öllu ;) Krakkarnir eru á fullu í skólanum líka og damn... ef þetta er ekki erfiðara námsefni í 5. bekk núna en þegar ég var í 5. bekk. ... jahh eða ég tregari :P Fer að líða að því að ég geti ekki aðstoðað krakkana við heimanámið :P Ræð allavegana ennþá við 2. bekkinn *tíst*

Er búin að setja upp brúnkuaðstöðu þannig að nú get ég loksins farið að brúnka þær sem ég var búin að lofa slíku :P Fleira sniðugt er á döfinni en ég segi frá því síðar ;) Er að fara að skella mér á smá námskeið til að bæta smotterí við í förðun, verður spennandi að sjá hvernig það gengur.

Er líklegasta að skella mér erlendis í þessari pásu sem er á milli annana í nóv. Erum að spá í annaðhvort Köben eða London, annars kemur ýmislegt annað til greina.. Kemur í ljós síðar :)
Annars gengur allt sinn vanagang. Ekkert spennandi í fréttum né áhugavert... Læt heyra í mér síðar. Þegar ég hef eitthvað að segja ;)

Sent af Sóla kl [11:23] Komment [0]