Mánudagur 28. nóvember
Jólahlaðborð og aðventumessa
Jólahlaðborð eru árlegur atburður hjá mörgum hverjum. Hjá okkur frónbúum hefur verið vaninn að í boði sé hangikjét, hamborgarhryggur og meðlæti í það minnsta. Skellti mér á jólahlaðborð ásamt fleira fólki í gærkvöldi. Og fyrir valinu varð Argentína steikhús. Ekki voru allir á eitt sáttir hvernig maturinn væri. Mörgum fannst hlaðborðið of amerískt og fussuðu og sveijuðu. En sjálfri fannst mér hlaðborðið bara hið fínasta. Kannski ekki sem jólahlaðborð, heldur sem hlaðborð almennt.
Meðal þess sem í boði var
Kaldir & heitir réttir:
Kalkúnaskinka með villisveppum
Graflax
Reykt laxaterrine
Kalkúna galantine
Reyktar kalkúnabringur
Kryddgrafinn nautavöðvi
Kalkúnalifrarpaté
Drottningarskinka
Roast beef
Hreindýrabollur
Kalkúnasalat
Innbakað villigæsapaté
Kryddleginn skelfiskur
Heilsteiktur kalkúnn og kalkúnabringur
Grillað oriental kryddlegið lamb
Kalkúnapottur í Bigarde sósu
Kalkúnafylling
Sætar kartöflur
Rauðvínssósa
Madeira villisveppasósa
Eftirréttir:
Risa súkkulaðiterta
Créme Caramel
Ávaxtasalat
Fylltir súkkulaðibollar
Brownies með ljósri súkkulaðimús
Vanilluís
Eplakaka
Blönduð berjaterta
Jarðarberjasósa, karamellusósa
Verið er að spá í að skella sér fyrir jól á jólahlaðborð á Hótel Örk og gista þá yfir nótt. Spurning hvort þar sé í boði íslenskara jólahlaðborð :P
Fór í kvöldí aðventumessu í Fella og hólakirkju þar sem dætur mínar voru að syngja með barnakórnum. Var gaman að sjá allan þennan barnahóp með mis mikla athygli við sönginn standa fyrir framan stolta foreldra og aðstandendur og flytja lögin eins og sannir englar :) Hafði mikið gaman af þó svo sonurinn hafi ekki verið á sömu skoðun með skemmtanagildið og fékk að sleppa messunni.
Laugardagur 26. nóvember
same old...same old..
Ég hef ákveðið að stíga fram og viðurkenna loksins að ég er orðin gömul. Já gömul, grá og lúin :P Hef ekki gerst svo fræg að djamma neitt í jahh það langan tíma að jahh ég hef örugglega ekkert hugmynd hvaða skemmtistaðir eru í gangi. Er að spá í að reyna að breyta þessu á næstunni. Kíkja á smá djamm (en sko eins og flestir vita þá er það að REYNA eitthvað ekki það sama og að GERA eitthvað).
Annars er ég bölvuðu veseni!!! Pantaði mér Digital stúdíóljós að utan og allt í lagi með það. Nema hvað ég bara kem ljósunum ekki alveg saman eins og þau eiga að vera :s. Jú jú, ég næ að púsla þeim þannig að þau standa þarna voða fín en kem ekki skerminum alveg saman :s. OG ÞAÐ FRÁBÆRA ER....ÞAÐ FYLGDU ENGAR LEIÐBEININGAR!!! Og ég sem ætlaði að fara að taka myndir af afkvæmunum og hundinum fyrir jólakortin :/
Eigið góða helgi... ta ta
Föstudagur 11. nóvember
Einkunnir komnar í hús..
Jæja þá eru blessuðu einkunnirnar komnar í hús og jahh held ég geti bara verið þokkalega sátt. Með vel yfir 8 í meðaleinkunn út úr öllum prófunum. Nú er bara að taka næstu törn með trompi.
En jæja letin er að drepa mig, svo ég er farin að gera eitthvað .... hmmm kannski ekki neitt :P
Mánudagur 7. nóvember
Prófum lokið.....
VÍÍÍÍÍÍÍ ÉG ER BÚIN Í PRÓFUNUM!!! Sem þýðir það að annari önninni af þremur er hér með lokið. Nú er bara að bíða eftir einkunnunum sem verða vonandi ágætar :P (jahh flest allavegana) En þar sem tvær heilar vikur hafa farið í 13 próf þá get ég alveg viðurkennt að ég var nú eiginlega bara búin á því þegar ég dröslaði mér í skólan í morgun. Vitandi það að erfiðasta prófið væri framundan. Settist niður og fékk í hendurnar 15 blaðsíðna próf og langaði helst að leggjast fram á borðið og sofna.
Það frábæra er að ég er komin í frí fram til mánudags (þá hefst næsta önn). Ætlaði að kíkja til köben en þar sem ferðafélaginn brást þá er bara spurning með að kíkja norður í staðinn ef færðin verður góð. Ætla að njóta þess til hins ýtrasta að vera í fríi og endurhlaða mig eftir þessa törn. Svo maður takist á við þá næstu með fullum krafti og með fullt af orku í farteskinu ;)
Spurning með að skella sér í bíó eitthvað kvöldið, skella mér í smá ljósmyndaleiðangur eða þá kannski útbúa mér smá stúdíó og prófa þessi fínu ljós sem ég fekk að utan fyrir svolitlu en hef ekki prófað almennilega. Bara svona smá hugnyndir.
En ta ta....
Þriðjudagur 1. nóvember
í prófum
Jæja held að hér sé heiladauði í hámarki!!
Prófið í morgun var ekki alveg að gera sig. Krossa fingur og vonast til að fá skárri útkomu en ég á von á.
Búin í verklegu prófunum og búin með tvö skrifleg próf af *hux* 7
Annars bíð ég eftir því að fá þessa þrjá virku daga í frí eftir prófin. Þá ætla ég að leika mér aðeins með myndavélina mína sem og ljósin sem ég var að fá að utan :D Já ætli maður smelli ekki nokkrum myndum af börnunum og voffanum til að skella í jólakort (jú ég skrifa oft jólakort,,,bara sendi þau sjaldnast). Svo er ýmislegt annað sem bíður á "to do" listanum.
En já ætli ég skelli mér ekki í smá lestur. Tvö próf á morgun svo að það er eins gott að standa sig.
ltr...


