Þriðjudagur 27. desember

Síðbúnar jólakveðjur og snemmbúnar áramótakveðjur

Gleðileg jól öllsömul (eða þeir sem enn kíkja hingað inn). Vona að þið hafið haft það sem allra best yfir hátíðirnar :) Og að áramótin verði slysalaus. Megi nýja árið verða ykkur gjöfult og gott

Kveðja Sólrún

Sent af Sóla kl [15:11] Komment [2]

Föstudagur 23. desember

Jólin, jólin, jólin koma brátt..........

Jæææææja þið segið það!!!

En já heljarinnar törn búin. Búin að skila fyrstu skilum að lokaritgerðinni minni sem jahh breytti all illilega um stefnu hvað varðar umfjöllunarefni. Vonandi þó innan þess ramma sem heita á í lagi.

Jólagjafirnar flestar komnar í hús. Nema jólagjöf yngri dóttlunnar sem veldur mér algjörum hausverk. Ég nefnilega veit ekkert hvað ég á að gefa henni. Það eina sem hún biður vanalega um er föt, föt ,föt og aftur föt. Að vísu langar hana líka í einhverja barbiedúkku (sem hún á nú nóg af) og svo geisladiskinn með drengjahljómsveitinni SPARK. En ætli maður reyni ekki að drífa þau innkaup af á morgun. Versla eitthvað í matinn (og auðvitað eitthvað gotterí með) og lauma eins og einni bók í pakkahrúguna svo ég geti nú örugglega legið með tærnar upp í loft í fríinu og lesið smá :P

Var að vígja nýja jólatréð mitt. Fór og verslaði mér þetta fína tré. Rúmir tveir metrar á hæð og annsi umfangsmikið :P Á blessað tréð er ég búin að setja 10 X 100 ljósa seríur og á eftir að bæta einni við. Eyddi einhverjum klukkutímum í það að festa hverja og eina peru á greinarnar, og sit nú og dáist að því hvað tréð er fallegt :D Á morgun skreyta svo börnin tréð og þá mega jólin koma :)

Sent af Sóla kl [02:51] Komment [0]