Mánudagur 27. febrúar

Víííííííííí :D

Var vakið með afmælissöng og "bolluð" með bolluvöndum af börnunum í morgun. Beðið um bollur en þar sem ég var á fullu í próflestri um helgina þá í fyrsta skiptið síðan ég flutti að heiman, bakaði ég engar bollur. Sem mér finnst nú bara í fínu en börnin voru nú ekki sammála mér um það. Skelltum okkur bara í bakarí eftir prófið og ég splæsti svaka fínum afmælisbollum á liðið.

Síðasta prófið var í morgun og...........JÖSS ÉG NÁÐI ÖLLUM PRÓFUNUM!!!!!!! :D:D:D:D

Það var hringt til þeirra sem ekki náðu einhverju fagi fyrir klukkan 17:00 í dag en ég fékk enga símhringingu!! (spurning hvort hún hafi bara gleymt mér)

Þannig að þessi afmælisdagur var mjög svo ánægjulegur :)

Sent af Sóla kl [17:45] Komment [2]

Sunnudagur 26. febrúar

:)

Jahhá finnst svolítið skondið að brúnka eina skvísu sem er að fara að taka þátt í miss hawaian tropic (sem er brúnkukrem/efni). Hefði nú haldið að þar sem verið er að keppa um að vera andlit þessa merkis þá myndu stelpurnar allavegana fá efni til að brúnka sig með... en nei svo er sko ekki. Þannig að ég græddi nú bara á þessu ;)

Fór í klippingu í dag og obbobbobb....já það fékk sko slatti að fjúka af kollinum. Lá eftir stór hrúga af lubba á gólfinu :P Svo er hárliturinn orðinn allmiklu ljósari (skulum ekkert fara nánar út í það), spurning hvort ég fari að flokkast undir þjóðflott kenndan við ljóskur :P

En hey...eitt próf eftir og það á þeim merka degi bolludegi sem vill svo til að ber upp á afmælisdegi mínum þetta árið. Síðast gerðist það árið 1995 þegar ég var enn ung *dæs já ung* og fékk ég þá RISAVAXNA rjómabollu í afmælisgjöf, fulla af rjóma og jukki.... úff sú var sko aldrei borðuð. Læt eina litla nægja enda ekki mikið fyrir rjómajukk..

Nóg röfl héðan í bili... ta ta


p.s í dag var spáð fyrir mér með tarot spilum, verður gaman að vita hvort spáin rætist :P hehe

Sent af Sóla kl [02:38] Komment [0]

Fimmtudagur 23. febrúar

um allt og ekkert.

9 próf búin og 2 eftir... JÁ BARA TVÖ!!!!!!!!!! Held ég sé gjörsamlega að fara á geði eftir allan þennan próflestur, stress og já allt það sem fylgir því að vera í lokaprófum.

Skólastjórinn hringdi svo í dag til að fullvissa sig um það hvort ég vildi nú örugglega ekki hafa millinafnið mitt á diplomanu (hafði tilkynnt að ég vildi það ekki). Rétt rúm vika í útskrift og já... þá er ég komin í smá frí, ætla að leyfa mér að pústa smá og eiga tíma með afkvæmunum.

Flottasti hundurinn í bænum, og þó víðar væri leitað er að fara á sína fyrstu sýningu eftir viku. En þó hann sé fallegastur (auðvitað að mínu mati) þá er ekki endilega þar með sagt að hann sé þægastur. Nibb... minn maður er sko að uppgötva kynhvötina og bara ærist þegar tík á lóðaríi kemur nærri honum :P jamm þessir blessuðu karlmenn ;)

Sent af Sóla kl [21:59] Komment [0]

Mánudagur 20. febrúar

Próftörn...og nú sú síðasta í bili..

Jamms nú er sko komið að því, lokaprófin eru skollin á og það á fullum krafti. Búin að fara í 5 verkleg lokapróf og í dag var fyrsta bóklega lokaprófið. 5 bókleg próf eftir og það síðasta verður á bolludag 27. febrúar, sem einnig er afmælisdagur minn.

Útskrift þann 4. og þá er ég komin í smá pásu og get notið þess að dekra við börnin :)

Sent af Sóla kl [21:45] Komment [0]