Eruði ekki að grínast í mér
Er ég ekki búinn að skrifa neitt á mitt blogg í rúmlega hálft ár. ?? Jæja, ég hef ekki tíma til að skrifa meira þannig að biðin verður aðeins lengri....
Er ég ekki búinn að skrifa neitt á mitt blogg í rúmlega hálft ár. ?? Jæja, ég hef ekki tíma til að skrifa meira þannig að biðin verður aðeins lengri....
Fékk humarsúpu á Fjöruborðinu á sunnudaginn var.
Súpan er í stuttu máli alger snilld og fær fullt hús stiga. Staðinn þekkja flestir og hefur hann nær ekkert breyst frá því ég kom síðast, sýnist vera búið að kaupa nýjar tauservéttur/handklæði og borðbúnað. Allt mjög snyrtilegt og fínt. Svo eru komnar nokkrar litlar myndir á veggina af nokkrum þeirra stórstjarna sem borðað hafa á staðnum. Vissi t.a.m. ekki að Bette Midler hefði komið þarna við.
Það er löngu vitað að nútíma tölvuleikir geta oftast orðið afar vel heppnaðar bíómyndir. Ég hef séð margar bíómyndir byggðar á tölvuleikjum þrátt fyrir að hafa aldrei spilað leikinn... og oftast nær skemmti ég mér vel.
Hvernig væri annars hægt að búa til bíómyndir byggðar á nokkrum af eftirtöldum leikjum?
Penguin Adventure:
Pong:
Donkey kong:
og síðan Beach Rally, Tennis, Tetris og ýmsa fleiri leiki.
Nú eru Rússar orðnir "besti vinur aðal". Við fáum olíupeninga til að efla gjaldeyrisforðann en skilyrði fyrir lánveitingunni eru að marxsísk fræði verði framvegis kennd í skólum landsins. Að hér eftir verði Stalín á Austurvelli. Þjóðminjasafnið mun heita Lenínssafnið og að lokum verði hér eftir notast við kýrillíškt lзtur. Кomaнди kынслðум тил hэиллa.*
*Komandi kynslóðum til heilla.
Það hefur eitt og annað gerst síðan ég bloggaði síðast.
Nú, það kom eitt stykki sumar og endalaust gott veður. Frábært að vera í tveggja mánaða fæðingarorlofi í júlí og ágúst, eiga síðan sumarfríið eftir en ég þarf að öllum líkindum að taka það í september vegna þess að ég er búinn að fá aðra vinnu ! Ég hækka verulega í launum og vinn nær "núverandi heimili". Heimilið er að vísu líka að breytast. Við Andrea erum að flytja inn á gamla varnarsvæðið í Keflavík. Þar fáum við 120 fermetra íbúð og munum eiga heima þar að minnsta kosti til ágúst 2009. Við flytjum rétt um mánaðamótin ág. sept., eftir 2-3 vikur. Langamýrin verður leigð út á meðan.
Gat nú verið.
Er búinn að vera veikur alla vikuna. Fékk sömu pestina og Andrea fékk, sem er sama pestin og Björgvin fékk. Þannig að við erum öll búin að vera meira og minna heima undanfarna daga, hóstandi, hnerrandi sofandi á öllum stundum og almennt slappelsi á línuna. Hins vegar er Björgvin orðinn hitalaus fyrir 2 dögum og Andrea hefur ekki verið með hita siðan í fyrrinótt. Aftur á móti er ég enn að fá hitaköst, nú síðast í morgun (39 stig). Vonandi verð ég laus við þennan ófögnuð um helgina. Er enn að berjast við loftþrýstingsvesen í nefgöngunum, ennis- og kinnbeinsholunum og út í eyrun, með tilheyrandi heyrnarleysi.
Andrea fær sko ekki ferðaleyfi aftur ef svona á að fylgja henni heim á leið...
Fór í rútuferð í dag með flugfarþega. Ekkert merkilegt við það í sjálfu sér, ég er oft að keyra ferðamenn í Flugstöðina, Gullhring, Bláa Lónið o.s.frv.
Hinsvegar er skipulagið við Flustöð Leifs Eiríkssonar (FLE) ekki gott, réttara væri að segja að skipulagið sé afar slæmt og tilviljanakennt.
Eins og allir þekka þá er brottför öðrum megin og koma hinum megin. Slíkt fyrirkomulag hef ég ekki séð í neinni flugstöð í heiminum, a.m.k ekki þeim sem ég hef komið til. Einnig eru rútur með stæðin næst FLE en ekki leigubílar eins og tíðkast á alþjóðlegum flugstöðvum almennt. Að blanda saman rútum og leigubílum virkar á Akureyri en ekki á flugstöð sem á að heita alþjóðleg.
Það keyrði endanlega um þverbak þegar ég tók þessa mynd.
Við vorum á 3 rútum og um 10 flugvélar á leiðinni. Leigubílarnir planta sér í rútustæðin og dreifa þetta hressilega úr sér eins og sjá má. Þarna er skipulagsleysið í hnotskurn. Engin rúta gat komið sér fyrir með þessa bíla þarna. Nú er það þannig að leigubíll og leigubíll á komusvæðinu er ekki einn og sami hluturinn. Þennan dag virtist vera soldið um "pantaða leigubíla" fyrir nafngreinda farþega og hugsanlegt er að þessir leigubílstjórar hafi verið pantaðir. Það gefur þeim hinsvegar ekki rétt til að teppa rútustæðin. Báðir aðilar búa við skelfilegt aðstöðuleysi og skipulagsleysi á þessu svæði. Einnig eru einkabílar farnir að vera algengari innan um rúturnar og leigubílana eftir að farið var að rukka fyrir næstum-því-öll-almenningsbílastæðin. Ekkert er gert til að vísa þeim frá og merkingar um að þetta sé bannsvæði fyrir almenna umferð eru af skornum skammti.
Ferlegt !
Ég er að vinna í kvöld og ég er búinn að vera að vinna í allan dag. Í gærkvöldi varð stór krísa í tölvukerfi hérna í vinnunni og ég var að vinna fram til hálf níu við að reyna að redda því.
Ég vil eyða meiri tíma með kærustunni en þetta. :'-(
.. vandræðaleg augnablik í sjónvarpi.
Það væri að bera í bakkafullan lækinn að nefna hið einstaklega vandræðalega augnablik í Kastljósinu þegar sent var út "áróðursauglýsing" frá framboði frú Hillary Clinton. Þar var áréttuð sú stefna Hillary að koma heim til þeirra sem ekki kysu hana og skjóta börn þeirra í svefni. Það þykir erfitt að toppa þetta, en í dag var metið slegið í beinni útsendingu á Skjá Einum. Rétt áðan hófst útsending á Moto GP (ísl. Mótó Djí-Pí) en þar kom til sögunar nafni minn Magnússon og byrjaði útsendinguna á því að heilsa gesti sínum. Ekkert óeðlilegt við það nema.... heilsast var með handabandi. Augnablikið var vægast sagt vandræðalegt.
Stuttu seinna er spurt UMM: ,,Einhver sem er í uppáhaldi hjá þér'' ? Sv: !?! ,,Nei... ekki ennþá. Ég hef aldrei séð þetta áður''.
Ég vil ekki rakka þetta í spað en fyndið var það. Fyrstu skrefin í sjónvarpi eru stressandi og erfið. Vonandi hefur þetta ekki áhrif á ,,My life on screen" sem er enn ekki hafið. :p
VEIII Heim á morgun! Kyssa konuna, knúsa strákinn, ganga í bæinn og sjá nýju staðsetninguna á sófanum. Mikið hlakka ég til.
Hætta að búa í ferðatösku, hætta að rýna í lestarferðir og ferðamannabæklinga, hætta að borða hlaðborð, hætta að reka hausinn í vaskinn ef ég sest á klóið, hætta að fá herbergisþjónustu (það væri samt voða gott ef ég kæti haldið því sko.... ;-) ), hætta að skilja ekki textann í sjónvarpinu, hætta að skilja ekki hvað sé verið að auglýsa í sjónvarpinu, hætta að heyra í þessari anskotans lyftu sem er hérna í húsinu! Nú er það bara vakna, fara, geyma töskuna á lestarstöðinni, hlaupa eitthvað um Gamla Stan og taka myndir, fara í lest upp á völl, rata rétta leið, tékka sig inn, hanga í fríhöfninni, fara upp í vel, lesa blöð og borða snarl, lenda í Keflavík, labba rosalega lengi, hringja í ástina mína á meðan, finn allt dótið sem ég er búinn að lofa að kaupa, finna töskuna, fara í gegnum tollinn og koma sér í bæinn.
Hjúkk.
p.s. námskeiðið heppnaðist líka vel.