« Myndablogg | Main

Lífið þessa dagana

Ég hef aðallega verið að vinna, vinna, vinna (allt of mikil vinna í þessu), sofa, njóta þeirra stunda sem við Andrea erum saman og svo hefur mér líka hlakkað ofboðslega mikið til... (reyni að fela það eins og ég get en það stoppar varla brosið á mér :p)
Andrea hefur verið að læra og læra, sitja í tímum og síðan prófum, klára verkefnin fyrir önnina að viðbættri sinni eigin vinnu.

Saman höfum við gert ýmislegt, t.d. göngutúra sem hafa endað á óvæntum stöðum (eins og heima hjá Sigríði Ástu, í Húsdýragarðinum o.fl....:-D....) Ég vildi óska að við gerðum meira af því en stundum er annaðhvort okkar of þreytt og stundum erum við bæði alveg uppgefin eftir erfiðan dag.

Þannig að við höfum bæði haft nóg fyrir stafni. :-D

Næst á dagskrá er tólf daga ferð til Spánar. Brottför eldsnemma á laugardagsmorgni. Þann dag bíða okkar þrjár flugvélar og fjórir flugvellir. Það eitt og sér getur gert rólyndasta mann pirraðan og leiðan. Ætli ég endurtaki ekki það sem ég gerði í síðasta flugi um Evrópu og kaupi SuDoKu bók handa mér. Líklegast verður blogghlé á meðan á ferðinni stendur, held nefnilega að enginn taki með sér tölvu en það kemur þá bara í ljós.

Life these days; summary

I've been working, working, working (a lot of work there), sleeping, enjoying the moments me and Andrea are together and I've also been looking forward to the "you know what" (I try to hide it but that's hard 'cause I got a big smile stuck on my face :p).
Andrea's been studying hard, sitting in classes and exams, finishing her assignments for this semester and also been working besides school.

Together we've done various things, f.e. hiking in Reykjavik to unexpected places (like to Sigríður Ásta's home, the Reykjavík Park & Zoo amongst other places....:D...) I wish we did more of this but sometimes one /or both of us are simply to tired after a hard day

Anyways, we have enough to do :-D

Our line-up is a trip to sunny Spain for twelve days. We leave bright and early tomorrow morning. Our scedule includes three planes and four airports (Devastating..?? :'-(....) I probably get myself a SuDoKu puzzle or sth. so that I can waiste time while I'm waisting time :p This might mean that I will take a short blog-leave 'cause I don't know if anyone will bring a laptop with oneself, but we'll see.

Comments

Ég hlakka svo til!!!

Post a comment