Nokkrir grænmetisstaðir
Fórum á sunnudagskvöldið um bæinn og leituðum uppi grænmetisstaðina, Andreu langaði svo mikið í grænmetisrétti.
Salatbarinn hjá EIka: **
Byrjuðum hjá Salatbarnum hans Eika. Þar var slökkt og lokað. Lokað Sunnudaga stóð á hurðinni. Hinsvegar veit ég, sem antigrænmetisæta að það mjög gott fyrir antigrænmetisætu að borða þarna, því það er alltaf eitthvað annað en kanínufæði í boði hjá þeim. Fá tvær stjörnur fyrir ekki neitt, fá örugglega fleiri næst þegar ég borða hjá þeim.
Grænn Kostur: 0
Næsta stopp var niðrí bæ, það eru flestir staðirnir... Grænn Kostur, þessi sem er voða frægur útaf Sollu á Grænum Kosti reyndist vera ákaflega sorglegur staður. Tveir indverskir réttir í boði báðir með einhverri panella pönnuköku eða álíka en virtust vera sama uppskriftin borin fram á tvenns konar máta. Annað var hreinlega ekki í boði. 0 stjörnur. Kem ekki aftur fyrr en ég fæ að borða þarna.
Á næstu grösum: *
Á Næstu Grösum líður fyrir staðsetninguna, við fundum ekkert bílastæði og eftir 15 mínútna rúnt í allar áttir kringum staðinn gáfumst við upp á grænmetisstöðunum. Á næstu grösum fær hinsvegar eina stjörnu fyrir að senda kanínunum í vinnunni minni mat á hverjum degi.
Red Chilli: ***
Enduðum á Red Chilli á Pósthússtræti. Ég fékk ágætan, bleikan ostborgara. frekar bragðdaufur en franskarnar eru killer góðar. Andrea fékk einig góðan mat. Gosið var með of miklum klaka fyrir minn smekk en klakarnir náðu ekki að eyða gosinu eins og gerist stundum, plús fyrir það. Verðið var ágætt, með stúdentaafslætti. Mæli með að fara á virkum degi, því annars gætu nær allir ostarnir verið búnir úr eldhúsinu eins og á þessu sunnudagskvöldi (of langt í næsta 10-11 eða eitthvað..).
Comments
Tíhí... ég er ekki kanína *berar tennurnar* sjáðu bara... þessar geta alveg borðað kjöt!
Posted by: Nornin | 11.10.07 10:55