Ekki minn/ okkar dagar núna...
Ja sveiattan!
Nú er DVD spilarinn dáinn og það er mér að kenna. Ég fékk endanlega upp í kok af frostinu og hægaganginum í honum og hófst handa við að þrífa apparatið og þá sérstaklega linsuna. Nú les hann ekki lengur DVD diskana, ENGA!
Verð væntanlega að koma heim með alvöru spritt til að setja á linsuna. Af hverju er augnhárahreinsir ekki spritt? Þetta er augnmálning í andlitinu á ykkur. Kommon!
Bíllinn stendur úti á plani frá því ég kom heim í gær, drap á bílnum, skrapp inn, fór aftur út og þá fór billinn skyndilega að hökta í hægagangi og drepa fljótlega á sér. Eftir nokkrar tilraunir hætti hann að fara í gang og hann hefur ekki farið í gang síðan fyrir utan eitt skipti í ca. 10 sekúndur á meðan Andrea reyndi í dag.
Heimasíminn er kominn í klessu. Hann dettur sífellt út þegar talað er í hann. Hann dettur ekkert inn aftur nei nei, bara ÚT! „Halló" -„Já góðan daginn ég ætlaði að...." „*afskaplega lágvért suð = dottinn út og ég verð að leggja á.*" ARG!!
Örbylgjuofninn okkar, þessi sem við fengum heim í gærkvöldi, hitaði ekki neitt. Alls ekkert. Hann var keyptur í Elko og heitir Galanz örbylgjuofn (900w) 65753082. Fer í Elko og fékk nýjan ofn í búðinni eftir að hafa skilað hinum. Kem með þann ofn heim, inn í eldhús, geri allt klárt fyrir prufukeyslu og set í gang. Þá koma eldglæringar í ljós inni í ofninum og upp gýs rosalega vont lykt. Sem sagt Galanz örbylgjuofn er STÓRHÆTTULEGUR andskoti. Fékk endurgreitt og þurfum við núna að hefja leit okkar að góðum örbylgjuofni upp á nýtt.
Svo er BJörgvin var órólegur í allan dag. Sefur loks núna, hefur sofið í tvo og hálfan tíma þegar þetta er ritað eftir að hafa vakað í 7 og 1/2 tíma samfleytt. Grey strákurinn var alveg búinn að vera.
Þannig að nú sitjum við allskonar súpum. :-(
Comments
Ekki ykkar dagur greinilega, en eins og ég var búin að segja Andreu þá megið þið fá okkar dvd spilara lánaðann hann spilar öll kerfi og er mjög góður og stendur bara ónotaður inni í skáp eins og er :)
Eigðu góðan dag
Posted by: Sigga Ásta | 14.12.07 09:51
Ég á spilara sem ég hef ekki haft fyrir að sækja.
Posted by: Unnar | 14.12.07 12:47
En má mamma þín ekki bara hafa hann fyrst við getum fengið spilarann hjá Siggu?
Þá sleppur hún við að kaupa sér annan í bili.
Posted by: Nornin | 14.12.07 16:30
Tvær stuttar og ein löng entist gengi og vel gamli síminn.T mótel af Ford bara snúa brrr brrrr í ang.Gamli Grammófónninn bara snúa laa la la laa la. Gamli góði kétillinn bara hita vtnið.Geima pelan í tíu mínutur í heitu vatni hahahóhó Brosa út í bæði
Posted by: Mamma | 14.12.07 23:20