« Óskalisti, árlegt blogg héðan í frá. | Main | Ekki minn/ okkar dagar núna... »

Sjálfsafgreiðsla

Áður en ég byrja þá minni ég á Óskalistann minn.

Sjálfsafgreiðsla hefur verið að sækja á síðastliðna þrjá áratugi eða svo. Vel heppnuð sjálfsafgreiðsla er til hægðarauka fyrir bæði þjónustuaðila og viðskiptavini. Mörg dæmi eru um vel heppnaða sjálfsafgreiðslu.

Stórmarkaðir eru t.d. sjálfsafgreiðsla, en ein fyrsta sjálfsafgreiðsluvæðingin sem ég man eftir eru hraðbankar. Nú eru hraðbankar á öðru hverju götuhorni og notkun þeirra er mikil.
Síðan buðu bensínstöðvar upp á sjálfsafgreiðslu gegn lægra eldsneytisverði. Viðskiptavinir tóku þessu fagnandi og eru komnar svo margar sjálfsafgreiðslustöðvar í dag að bensínstöðvar eru eitt helsta kennileiti Höfuðborgarsvæðisins. Nýkomnir ferðamenn minnast allavegana oftast á þetta atriði þegar ég spyr þá hvernig þeim finnist Reykjavík.
Gossjálfsalar, nammisjálfsalar, smokkasjálfsalar og happaþrennusjálfsalar hafa skotið víða upp kollinum.
Sumar sjoppur eru farnar að hafa goskælana hjá kúnnanum og þá afgreiðir kúnninn sig sjálfur með gos.
„Nammibarir" hafa líka skotið upp kollinum í bíóum, sjoppum og stórmörkuðum.
Hleðslusjálfsalar fyrir Ipoda og GSM síma hafa einnig sést hér og þar.

Hinsvegar tekst ekki alltaf vel til.
Mig minnir að ég hafi einu sinni heyrt af opnun „Sjálfsafgreiðslubílaviðgerðarverkstæðis". Hef hvorki séð tangur né tetur af því síðan.
Önnur, og öllu nýrri nýjung er sjálfsafgreiðslukassar í Krónunni uppá Höfða. Ég fór og prófaði þetta í fyrsta sinn í dag og varð vægast sagt fyrir vonbrigðum.
Ég var með kippu af Malti og Appelsíni í dós og 3 súkkulaðistykki og það tók mig allavegana 2 mínútur að koma kassanum í skilning um að ég væri með meira en eina dós og eitt súkkulaðistykki. Ég þurfti að skanna eina dós í einu og bíða eftir að kassinn blaðraði eitthvað um það að setja vöruna í pokann áður en ég gat skannað aftur. Ég er alveg til í það ef ég borga fyrir eina dós en fá 6 dósir en held að það sé ekki í boði.
Það sem helst vantar er að snertiskjárinn býður ekki upp á að skrá inn magn áður en varan er skönnuð. Til þess þarf starfsmann vopnaðan plastkorti og ferð í gegnum allnokkrar valmyndir.
Á meðan þetta fyrirkomulag er óbreytt þá fer ég til afgreiðslumanns sem klárar afgreiðslu a tveim vörutegunum á sirka 20 sekúndum; Góðan daginn, píb, píb, poka?, neitakk, það eru áttahundruðþrjátíuogein, gersvovel, *strau*, hviss, brrrr, klipp, kvittun?, játakk, hviss, brrr, klipp, hviss, brrr, klipp, gersvovel, takk fyrir, takk sömuleiðis.

Post a comment