« Gjafir | Main | Svíaríki, dagur 3 »

Svíaríki

Nú er ég niðurkominn í Stokkhólmsborg, nánar tiltekið gegnt hinu ægistóra bárujárnsflykki IKEA. Hér á hótelinu er nokkuð notarlegt, dæmigerð sænsk hönnun, gervimarmari á baðinu, hengdur upp með samskonar listum og eru á sturtuklefanum heima. Ótrúlega stór vaskur miðað við stærð baðherbergis og handklæðahengið er nákvæmlega eins og heima hjá okkur. Þýskt og skandinavískt í kassanum, (Svíar eru greinilega miklir aðdáendur Sjónvarpsmarkaða á daginn) hvergi hægt að labba eftir götu án þess að sjá Makkdónalds hamborgaragreni. Það verður þrautin þyngri að finna almennilegan mat! Hótelið er reyndar með hlaðborð á hverju kvöldi en ég ætla ekki að eyða budgetinu í fansí-smansí-mat.
Hver var svo að tala um að bensínstöðvar í Reykjavík væru margar ? Þær eru alveg jafn margar hér! Að vísu eru Stokkhólmarar eitthvað um 10 milljónir og Höfuðborgarbúar "bara" 160 þúsund en hvaða máli skiptir það ? :-p

Hinsvegar hef ég lítið orðið var við smekkvísi í hönnun hingað til. Eintómar ljótar, gráar og brúnar sósíalblokkir blöstu út um lestargluggann, allar útbíaðar af gerfihnattadiskum sem vísuðu til austantjaldslandana. Minnti helst á Fellahverfið, bara litlausara. Líklega hefur sænska smekkfólkið ekki smekk fyrir að búa rétt við lestarteinana. Svíþjóð er full af trjám, svo mikið er víst. Enginn efnisskortur virðist vera í aðsigi fyrir sænska eldspýtnaframleiðendur. Fyrir utan neðanjarðarlestina þá ganga einhverjir strætóar hérna um, en það er sirka 10 mínútna gangur að lestarstöðinni frá hótelinu. Á reyndar eftir að finna rétta og stutta leið þangað. Svíarnir mega þó eiga það að þeir andskotuðust til að merkja göngustígana með smá upplýsingum um hvert í andskotanum maður væri að fara. Ég væri áræðanlega farinn fótgangandi langleiðina til Malmö ef ég hefði ekki rekið augun í skiltisstúf sem á stóð IKEA.

Heima bíða hinsvegar kona og sonur. Mikið er nú dauft yfir manni svona einum (reyndar erum við tveir vinnufélagar hér í dag og þriðji bætist í hópinn á morgun en það skiptir ekki máli) :-( skal það vera. Ég sakna ykkar krúsídúllan mín og monsi-ponsi-hans-pabba-síns!! 8-p:: Ég keypti dót handa lilla mann :-D Mamma fær líka eitthvað ótrúlega sætt...

Samkvæmt Fríhafnarstarfsfólkinu þá kemur Wii tölvan í hús á mánudagsmorguninn og birgðirnar eiga að duga í 2 vikur, ég mun líklegast sjá til þess að þessar nýju birgðir endist örlítið skemur ;-)
Sá líka annað dót í Fríhöfninni sem ég er mjög spenntur fyrir. Ef einhver getur upplýst mig hvað Wireless data transfer tæki kostar (minnir að það heiti eitthvað svoleiðis). Tækið er tveir sendar/móttakarar, annar er tengdur inn á netið (routerinn) og hinn inn á sjónvarpsflakkara. Endilega kommenta hér sem allra fyrst. Þetta dót sér til þess að allt niðurhal fer beint inn á flakkarann en ekki í gegnum tölvuna sjálfa. Reyndar var tækið sem ég sá í Fríhöfninni bara samhæft við PC (stupid majority) en ekki Macintosh, hugsanlega verður bara að hafa það....

Annað er ekki að frétta. Við ætlum út að labba og finna húsið sem við eigum að læra allt um kamerurnar svo að við þurfum ekki að leita að því í fyrramálið.

Comments

Söknum þín elskan mín.

Björgvin var pínu lasinn í gær en er mikið betri í dag.
Bara 2 dagar þar til þú kemur heim :)

Post a comment