Lisander

Eruði ekki að grínast í mér
Er ég ekki búinn að skrifa neitt á mitt blogg í rúmlega hálft ár. ??  Jæja, ég hef ekki tíma til að skrifa meira þannig að biðin verður aðeins lengri....

Við Fjöruborðið
Fékk humarsúpu á Fjöruborðinu á sunnudaginn var.

Súpan er í stuttu máli alger snilld og fær fullt hús stiga.  Staðinn þekkja flestir og hefur hann nær ekkert breyst frá því ég kom síðast, sýnist vera búið að kaupa nýjar tauservéttur/handklæði og borðbúnað. Allt mjög snyrtilegt og fínt.  Svo eru komnar nokkrar litlar myndir á veggina af nokkrum þeirra stórstjarna sem borðað hafa á staðnum.  Vissi t.a.m. ekki að Bette Midler hefði komið þarna við.

Kvikmyndir byggðar á tölvuleikjum
Það er löngu vitað að nútíma tölvuleikir geta oftast orðið afar vel heppnaðar bíómyndir.  Ég hef séð margar bíómyndir byggðar á tölvuleikjum þrátt fyrir að hafa aldrei spilað leikinn...  og oftast nær skemmti ég mér vel.

Hvernig væri annars hægt að búa til bíómyndir byggðar á nokkrum af eftirtöldum leikjum?

Penguin Adventure:

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/NgbaAMIiSVw&hl=en&fs=1"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/NgbaAMIiSVw&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>

Pong:

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/LPkUvfL8T1I&hl=en&fs=1"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/LPkUvfL8T1I&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>

Donkey kong:

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/XWaT8WmoDis&hl=en&fs=1"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/XWaT8WmoDis&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>

og síðan Beach Rally, Tennis, Tetris og ýmsa fleiri leiki.

Rússarnir koma!
Nú eru Rússar orðnir "besti vinur aðal".  Við fáum olíupeninga til að efla gjaldeyrisforðann en skilyrði fyrir lánveitingunni eru að marxsísk fræði verði framvegis kennd í skólum landsins.  Að hér eftir verði Stalín á Austurvelli. Þjóðminjasafnið mun heita Lenínssafnið og að lokum verði hér eftir notast við kýrillíškt lзtur.  Кomaнди kынслðум тил hэиллa.*

*Komandi kynslóðum til heilla.

Komin tími á færslu
Það hefur eitt og annað gerst síðan ég bloggaði síðast.

Nú, það kom eitt stykki sumar og endalaust gott veður.  Frábært að vera í tveggja mánaða fæðingarorlofi í júlí og ágúst, eiga síðan sumarfríið eftir en ég þarf að öllum líkindum að taka það í september vegna þess að ég er búinn að fá aðra vinnu !  Ég hækka verulega í launum og vinn nær "núverandi heimili".  Heimilið er að vísu líka að breytast. Við Andrea erum að flytja inn á gamla varnarsvæðið í Keflavík.  Þar fáum við 120 fermetra íbúð og munum eiga heima þar að minnsta kosti til ágúst 2009.  Við flytjum rétt um mánaðamótin ág. sept., eftir 2-3 vikur.  Langamýrin verður leigð út á meðan.

Veikindi
Gat nú verið.

Er búinn að vera veikur alla vikuna.  Fékk sömu pestina og Andrea fékk, sem er sama pestin og Björgvin fékk.  Þannig að við erum öll búin að vera meira og minna heima undanfarna daga, hóstandi, hnerrandi sofandi á öllum stundum og almennt slappelsi á línuna.  Hins vegar er Björgvin orðinn hitalaus fyrir 2 dögum og Andrea hefur ekki verið með hita siðan í fyrrinótt.  Aftur á móti er ég enn að fá hitaköst, nú síðast í morgun (39 stig).  Vonandi verð ég laus við þennan ófögnuð um helgina.  Er enn að berjast við loftþrýstingsvesen í nefgöngunum, ennis- og kinnbeinsholunum og út í eyrun, með tilheyrandi heyrnarleysi.

Andrea fær sko ekki ferðaleyfi aftur ef svona á að fylgja henni heim á leið...

Myndablogg um rútustæði
Fór í rútuferð í dag með flugfarþega.  Ekkert merkilegt við það í sjálfu sér, ég er oft að keyra ferðamenn í Flugstöðina, Gullhring, Bláa Lónið o.s.frv.

Hinsvegar er skipulagið við Flustöð Leifs Eiríkssonar (FLE) ekki gott, réttara væri að segja að skipulagið sé afar slæmt og tilviljanakennt.

Eins og allir þekka þá er brottför öðrum megin og koma hinum megin.  Slíkt fyrirkomulag hef ég ekki séð í neinni flugstöð í heiminum, a.m.k ekki þeim sem ég hef komið til. Einnig eru rútur með stæðin næst FLE en ekki leigubílar eins og tíðkast á alþjóðlegum flugstöðvum almennt.  Að blanda saman rútum og leigubílum virkar á Akureyri en ekki á flugstöð sem á að heita alþjóðleg.

Það keyrði endanlega um þverbak þegar ég tók þessa mynd.

Myndina sendi ég

Knúið af GSMBloggi Og Vodafone

Við vorum á 3 rútum og um 10 flugvélar á leiðinni.  Leigubílarnir planta sér í rútustæðin og dreifa þetta hressilega úr sér eins og sjá má.  Þarna er skipulagsleysið í hnotskurn. Engin rúta gat komið sér fyrir með þessa bíla þarna.
Nú er það þannig að leigubíll og leigubíll á komusvæðinu er ekki einn og sami hluturinn.  Þennan dag virtist vera soldið um "pantaða leigubíla" fyrir nafngreinda farþega og hugsanlegt er að þessir leigubílstjórar hafi verið pantaðir.  Það gefur þeim hinsvegar ekki rétt til að teppa rútustæðin.  Báðir aðilar búa við skelfilegt aðstöðuleysi og skipulagsleysi á þessu svæði.  Einnig eru einkabílar farnir að vera algengari innan um rúturnar og leigubílana eftir að farið var að rukka fyrir næstum-því-öll-almenningsbílastæðin. Ekkert er gert til að vísa þeim frá og merkingar um að þetta sé bannsvæði fyrir almenna umferð eru af skornum skammti.

Andskotans tillitsleysi er þetta!

Myndina sendi ég

Knúið af GSMBloggi Og Vodafone

Hingað til hef ég komið í Bláa Lónið og þótt skipulagið afar gott.  Það er það líka.  Hinsvegar voru eigendur/ leigjendur þessa bíla greinilega ekki nógu gáfaðir til að fatta það að þeir væru í rútustæðum.  Ekki er við Bláa Lónið að sakast heldur viðkomandi aula. Vonandi verða BUS stafirnir málaðir ennþá skýrar á malbikið í sumar

Endalaus vinna
Ferlegt !

Ég er að vinna í kvöld og ég er búinn að vera að vinna í allan dag.  Í gærkvöldi varð stór krísa í tölvukerfi hérna í vinnunni og ég var að vinna fram til hálf níu við að reyna að redda því.

Ég vil eyða meiri tíma með kærustunni en þetta. :'-(

Þema vikunar hefur verið...
.. vandræðaleg augnablik í sjónvarpi.

Það væri að bera í bakkafullan lækinn að nefna hið einstaklega vandræðalega augnablik í Kastljósinu þegar sent var út "áróðursauglýsing" frá framboði frú Hillary Clinton.  Þar var áréttuð sú stefna Hillary að koma heim til þeirra sem ekki kysu hana og skjóta börn þeirra í svefni.  Það þykir erfitt að toppa þetta, en í dag var metið slegið í beinni útsendingu á Skjá Einum.  Rétt áðan hófst útsending á Moto GP (ísl. Mótó Djí-Pí) en þar kom til sögunar nafni minn Magnússon og byrjaði útsendinguna á því að heilsa gesti sínum.  Ekkert óeðlilegt við það nema.... heilsast var með handabandi.  Augnablikið var vægast sagt vandræðalegt.

Stuttu seinna er spurt  UMM:  ,,Einhver sem er í uppáhaldi hjá þér'' ? Sv:  !?! ,,Nei... ekki ennþá.  Ég hef aldrei séð þetta áður''.

Ég vil ekki rakka þetta í spað en fyndið var það.  Fyrstu skrefin í sjónvarpi eru stressandi og erfið. Vonandi hefur þetta ekki áhrif á ,,My life on screen" sem er enn ekki hafið. :p

Síðasta nóttin
VEIII Heim á morgun!  Kyssa konuna, knúsa strákinn, ganga í bæinn og sjá nýju staðsetninguna á sófanum. Mikið hlakka ég til.

Hætta að búa í ferðatösku, hætta að rýna í lestarferðir og ferðamannabæklinga, hætta að borða hlaðborð, hætta að reka hausinn í vaskinn ef ég sest á klóið, hætta að fá herbergisþjónustu (það væri samt voða gott ef ég kæti haldið því sko.... ;-) ), hætta að skilja ekki textann í sjónvarpinu, hætta að skilja ekki hvað sé verið að auglýsa í sjónvarpinu, hætta að heyra í þessari anskotans lyftu sem er hérna í húsinu!  Nú er það bara vakna, fara, geyma töskuna á lestarstöðinni,  hlaupa eitthvað um Gamla Stan og taka myndir, fara í lest upp á völl, rata rétta leið, tékka sig inn, hanga í fríhöfninni, fara upp í vel, lesa blöð og borða snarl, lenda í Keflavík, labba rosalega lengi, hringja í ástina mína á meðan, finn allt dótið sem ég er búinn að lofa að kaupa,  finna töskuna, fara í gegnum tollinn og koma sér í bæinn.

Hjúkk.

p.s. námskeiðið heppnaðist líka vel.

Svíaríki, dagur 3
Mikið er nú glatað veður hérna. Í dag var skíta-skítakuldi og rigningarskúrir.  Við sem ætluðum í miðbæinn eftir námskeið dagsins, bara suddi og leiðindi ! :-(

Vonandi kemst maður niðrí bæ héðan frá Kungens Kurva en eina sniðuga leiðin held ég að sé með lestinni.  Fékk samt þetta fína ferðarúm fyrir litla manninn okkar, alger snilld á 495 kr SEK.  Fengum ágætis hádegismat í dag á stað sem leit úr eins og regnskógaútgáfa af Eden í Hveragerði.  Heitir Amazon og er í verslanamiðstöð (innan um hinar 20 verslanamiðstöðvarnar hérna) sem heitir Heron City.  Þar er 18 sala bíó og slatti af búðum.  Media Markt er stærst, risa raftækjaverslun og mjög ódýr skilst mér.  Svo er slatti af annars konar verslunum og veitingastöðum í sama húsi.  Hinsvegar er ein tegund verslana sem ég hef bara alls ekki fundið, það eru kvenfatabúðir !?!  Svo virðist sem Kungens Kurva sé hreinlega mekka sænska karlmannsins.  Það er spurning hvort þeir eigi einhverja Dronningens Bøga hérna í nágrenninu ?

Að lokum þá sakna ég rosalega hennar Andreu minnar og litla stúf sem bíður heima eftir pabba sínum...

Svíaríki
Nú er ég niðurkominn í Stokkhólmsborg, nánar tiltekið gegnt hinu ægistóra bárujárnsflykki IKEA.  Hér á hótelinu er nokkuð notarlegt, dæmigerð sænsk hönnun, gervimarmari á baðinu, hengdur upp með samskonar listum og eru á sturtuklefanum heima.  Ótrúlega stór vaskur miðað við stærð baðherbergis og handklæðahengið er nákvæmlega eins og heima hjá okkur. Þýskt og skandinavískt í kassanum, (Svíar eru greinilega miklir aðdáendur Sjónvarpsmarkaða á daginn) hvergi hægt að labba eftir götu án þess að sjá Makkdónalds hamborgaragreni.  Það verður þrautin þyngri að finna almennilegan mat! Hótelið er reyndar með hlaðborð á hverju kvöldi en ég ætla ekki að eyða budgetinu í fansí-smansí-mat.

Hver var svo að tala um að bensínstöðvar í Reykjavík væru margar ?  Þær eru alveg jafn margar hér!  Að vísu eru Stokkhólmarar eitthvað um 10 milljónir og Höfuðborgarbúar "bara" 160 þúsund en hvaða máli skiptir það ? :-p

Hinsvegar hef ég lítið orðið var við smekkvísi í hönnun hingað til.  Eintómar ljótar, gráar og brúnar sósíalblokkir blöstu út um lestargluggann, allar útbíaðar af gerfihnattadiskum sem vísuðu til austantjaldslandana. Minnti helst á Fellahverfið, bara litlausara.  Líklega hefur sænska smekkfólkið ekki smekk fyrir að búa rétt við lestarteinana.  Svíþjóð er full af trjám, svo mikið er víst.  Enginn efnisskortur virðist vera í aðsigi fyrir sænska eldspýtnaframleiðendur. Fyrir utan neðanjarðarlestina þá ganga einhverjir strætóar hérna um, en það er sirka 10 mínútna gangur að lestarstöðinni frá hótelinu.  Á reyndar eftir að finna rétta og stutta leið þangað.  Svíarnir mega þó eiga það að þeir andskotuðust til að merkja göngustígana með smá upplýsingum um hvert í andskotanum maður væri að fara.  Ég væri áræðanlega farinn fótgangandi langleiðina til Malmö ef ég hefði ekki rekið augun í skiltisstúf sem á stóð IKEA.

Heima bíða hinsvegar kona og sonur.  Mikið er nú dauft yfir manni svona einum (reyndar erum við tveir vinnufélagar hér í dag og þriðji bætist í hópinn á morgun en það skiptir ekki máli) :-(  skal það vera. Ég sakna ykkar krúsídúllan mín og monsi-ponsi-hans-pabba-síns!! 8-p:: Ég keypti dót handa lilla mann :-D Mamma fær líka eitthvað ótrúlega sætt...

Samkvæmt Fríhafnarstarfsfólkinu þá kemur Wii tölvan í hús á mánudagsmorguninn og  birgðirnar eiga að duga í 2 vikur, ég mun líklegast sjá til þess að þessar nýju birgðir endist örlítið skemur ;-)

Sá líka annað dót í Fríhöfninni sem ég er mjög spenntur fyrir.  Ef einhver getur upplýst mig hvað Wireless data transfer tæki kostar (minnir að það heiti eitthvað svoleiðis). Tækið er  tveir sendar/móttakarar,  annar er tengdur inn á netið (routerinn) og hinn inn á sjónvarpsflakkara.  Endilega kommenta hér sem allra fyrst. Þetta dót sér til þess að allt niðurhal fer beint inn á flakkarann en ekki í gegnum tölvuna sjálfa. Reyndar var tækið sem ég sá í Fríhöfninni bara samhæft við PC (stupid majority) en ekki Macintosh, hugsanlega verður bara að hafa það....

Annað er ekki að frétta.  Við ætlum út að labba og finna húsið sem við eigum að læra allt um kamerurnar svo að við þurfum ekki að leita að því í fyrramálið.

Gjafir
Fékk gjöf senda í pósti í gær.  Voða flott Rosental Irish coffee glös og skálar í stíl.  Glösin voru merkt með merki Landsbankans,  þessu fylgdi rosa fínt kort um stjörnumerkið mitt og svo var mér óskað til hamingju með afmælið.  Verst að ég drekk ekki Irish coffe, hvorki Irish-ið né coffee-ið. Auk þess á ég hvorki afmæli í janúar né febrúar heldur í desember.

Spurning hvort gjafir eigi eftir að detta inn um bréfalúguna eitthvað fram á sumar...

Shalimar
** 1/2

Fengum okkur take-away frá Shalimar í vikunni.  Maturinn var mjög ljúffengur þannig að mér þykir synd að staðurinn fái bara 2 og 1/2 stjörnu.  Það sem dregur staðinn niður er hinsvegar nokkur mikilvæg atriði sem ekki er hægt að líta framhjá.

Við komum ekki fyrr en klukkutíma eftir að maturinn var pantaður (tilbúið á 20 mínútum)  Það að hita matinn upp þegar heim var komið, ekkert mál.  Bara dollurnar í örbylgjuofninn og voila. Ekkert við staðinn að sakast í þeim efnum, hrós ef eitthvað er fyrir upphitanlegan mat.

Við fengum okkur tvo rétti af aðalréttamatseðli,

11. Murgh Shahi korma (mildur)                                                          2150.-

Kjúklingur eldaður í rjóma með blöndu af möndlum, cashew-hnetum og kókos og

14. Murgh Madras Curry                                                                   2150.-

Kjúklingur í Madras-karríkryddsósu með rjómi og kóriander.

Svo hrísgrjón og tvær tegundir af nanbrauði,

B. Butter Nan     250. og L. Aloo Paratha     690.-

Í Kartöflufyllta nanbrauðinu mínu voru hár.  Ekki eitt heldur 2 dökk hár, langt og stutt.  Ekki er ég klígjugjarn þannig að ég borðaði brauðið þrátt fyrir að þurfa að tína út hárin en kommon..  Hárnet yfir nanbrauðgerðinni er ekkert stórmál.  Meira að segja hægt að fá svört hárnet þannig að þau sjást nær ekkert á kollinum.  Svo fyldi þessum tveim réttum bara eitt box með hrísgrjónum og var það engan vegin nóg. Hefði haldið að eitt hrísgrjónabox fylgi hverjum rétti en svo virðist ekki vera í þessu tilfelli.

Hefði glaður gefið staðnum 4 1/2 til 5 stjörnur hefðu þessi atriði verið í lagi.  Reyni aftur seinna og sjáum til hve mikið fylgir matnum þá.

Grettir klikkar ekki
Frábær brandari.