mars 17, 2006

Bæ bæ

Já það hlaut að koma að því að ameríski herinn drullaði sér af skerinu. Þá verður farin eina ástæðan fyrir einhverja óvinveitta þjóð að ráðast að landinu. Ég hef aldrei verið hrifinn af veru hersveita í þessu annars friðsæla landi okkar. Við eigum að vera vopnlaus þjóð. En auðvitað eru vissir mínusar í þessu. Fullt af fólki missir vinnuna sína við brottför hersins. Ég m.a þekki eina ágæta stúlku sem vinnur á Vellinum. En það sem er nú eiginlega verra er að þyrlubjörgunarsveitin fer. Varnarliðið má eiga það að þeir hafa oftar en ekki sýnt mikkla djörfung við björgunarstörf, og ber að þakka þeim fyrir það.

ch47ver1.jpg

En svona í heildina litið þá er ég mjög sáttur við að tindátarnir hans Bush séu að fara að pakka saman og yfirgefa svæðið. Farwell to arms.....

Jafnvel þó að bæði Davíð Oddsson og Halldór Ásgræimsson hafi leyft bandarískum hernaðaryfirvöldum að trukka sig feitt í analinn, þá hefur það ekki haft nein áhrif á afstöðu Bandaríkjana til herstöðvarinnar. En kanski fara bara Dóri og Geir til Whasington og grenja og gráta og biðja Gogga Búss að halda nú herstöðini opinni. Óheppmir að Bill Clinton sé ekki forseti lengur. Hann hefði hiklaust trukkað þá báða.

Ég er nú líka pottþéttur á því að Herr Kommizar Björn Bjarnason er grátandi núna, enda er hann mikill hernaðarsinni. Eina lausin sem ég sé í því máli er að herinn fái Björn Bjarnason að launum fyrir góð björgunarafrek.....

Posted by Nermal at 17.03.06 23:17
Comments