mars 21, 2006
Turn off
Ég er stundum að spá í hvað það er sem heillar mig við sumt kvennfólk. Oft á tíðum er erfitt að negla það alveg. Þetta er svona eitthvað samband margra hluta. Fallegt bros, húmor og skemmtinlegur karakter er eitthvað sem heillar mig. En svo er ýmislegt sem er akkúrat öfugt.... TURN OFF
1. Munntóbak.... Það er einhver mesti viðbjóður sem ég veit um. Ég gæeti ekku hugsað mér að kyssa konu sem örfáum mínútum áður hafði troðið tóbaki uppí munninn á sér. Grose ógeð
2. Heimska...... Ég vil geta spjallað við kvennfólk, vil mjög gjarna að þær séu með á nótunum um líðandi stund. Þá er ég ekki að meina nýjustu straumana í tískuni.
3. Ofursímaspjall.... Þessi manneskja sem ekki getur lagt frá sér skaðræðis GSM síman hálft augnatak. Ég held að það sé best að varast þessa týpu. Hún væri vís til að svara í síman í miðjum samförum
4. Andfýla. Alveg hryllilega mikið turnoff í mínum augum.. og nösum. Bráðmyndarleg stúlka... svo opnar hún munninn og svo virðist vera sem hún hafi nýverið sporðrennt hræi af ketti sem er búinn að vera dauður í 4 vikur.
5. Málningardollann Það er alveg í góðu lagi að kvennfólk máli sig. En öllu má nú ofgera.
6. Yfirvaraskegg.... Það er kanski flott á Tom Sellec.... en er ekki beint kynferðislega kósi á kvennmansandliti.
7. Loðna. Það er kanski eitthvað sem kemur í ljós þegar lengra er komið. Ég er ekki að segja að kvennfólk eigi að raka hvert strá af líkamanum, en ég held að það sé ekki alveg það skemtinlegasta eg gellann er með hár frá hné að nafla... og jafnvel með hár á milli brjóstana *hrollur* Engin við sleikjó sem er útataður í apahárum
8. Þessi sem þekkir alla. Gellann sem þarf að spjalla við náhvæmlega alla sem hún mætir. Gerir það að verkum að 10 mínútna fer í búðina tekur 3 tíma
9. Ósmekklegirm borðsiðir. Ef hún borðar eins og svín, þá kanski er hún bara svín. Ég hef horft uppá vinnufélaga minn borða eins og svín...t.d borða nagga, kartöflumús og hrásalat, allt sett í skál og borðað með skeið. Mig langar ekki í kvennmann sem borðar þannig.
10. Fýlupúkinn. Ef hún hefur ekki smá húmor þá er ekki líklegt að hún hafi áhuga á honum mér. Ég hef gaman af því að gantast aðeins, þannig að mjög alvarlegar týpur höfða enganveginn til mín
Það er kanski ekki að undra að maður sé single :S
Posted by Nermal at 21.03.06 21:10hahaha, snilld! :D
Posted by: Maggi at 21.03.06 23:01

