janúar 28, 2007

Hver er sinnar kæfu smiður

Eins og ég sagði hér neðar þá keypti ég Ladda diskinn "Hver er sinnar kæfu smiður" um daginn. Nú hafa báðir diskarnir runnið í gegn hjá mér. Og þvílík snilld. Þetta er eitthvað sem ég mæli með handa öllum. Húmorinn er alsráðandi í oft á tíðum mjög svo meitlaðri textasmíði. Svo eru lögin ótrúlega fjörbreytt. Fjölmargir tónlistarstílar í gangi. Svo koma þeir framm þarna allir helstu karakterarnir. Eiríkur Fjalar, Skúli rafvirki, Dr. Saxi, Ho Si Mattana og ýmsir fleyri. Og sungið er um nokkra valinkunna einstaklinga t.d Skúla Óskarsson, Bee Gees og Ómar Ragnarsson. Endilega splæsið í diskana. Kosta 2000 kall í Hagkaup.

Posted by Nermal at 28.01.07 15:20
Comments

Laddi er konungur Íslenska grínsins. Það held ég

Posted by: spritti at 29.01.07 12:18

áann!!

Posted by: Birgitta at 29.01.07 18:43
Post a comment









Remember personal info?