apríl 23, 2007
Perfect stranger

Á föstudagskvöldið fór ég í bíó. Fyrir valinu varð myndin Perfect stranger. Myndin fjallar um blaðakonuna Rowenu, leikin af Halle Berry sem er giska harðsnúin og svífst einskis við að finna góða blaðagrein. Vinkona hennar lætur hana hafa vafasöm gögn um athafnamannin Harrison Hill sem leikin er af Bruce Willis. Stuttu síðar finnst lík vinkonunar illa farið. Hefst þá æsileg atburðarrás þar sem Rowena og félagi hennar leikinn af Giovani Ribisi grafast fyrir um sannleikan um Harrison Hill og mögulegum tengslum hanns við vofeiglegt fráfall vinkonunar.
Myndin er góð að mörgu leiti. leikurin er finn, sérstaklega hjá hinum taugatrekkta karakter sem Ribisi leikur. Berry og Willis eru einnig góð í sínum hlutverkum. Spennan nær að' halda sér nokkuð vel í gagnum alla myndina, og endirinn kemur ansi mikið á óvart.
Stjörnugjöf ***
Posted by Nermal at 23.04.07 21:05Hæ krútt.
Já.. það má segja það að endirinn hafi komið nokkuð mikið á óvart.. hehe.. Og já vel leikin og bara nokkuð góð.
ég segi *** líka :D
sjáumst um helgina..:D
Hver er þessi Ribisi??
Posted by: Birgitta at 25.04.07 21:27Þetta er gaurinn sem að lék bróður Pheobe í Friends. til dæmis. :D
Posted by: Bjögga at 26.04.07 21:40Lék líka í Gone in 60 seconds. Var þá littli bróðirinn


