febrúar 27, 2008

Hvað má segja?

Nú undanfarið hef ég verið að spökulera hvað fólk má segja og hvað má ekki segja. Það hefur verið áberandi núna undanfarið að menn fá skömm í hattin fyrir ummæli af ýmsu tagi. Í gær féll t.d dómur yfir bloggara hér á landi fyrir að kalla annann mann einn mesta rasista á Íslandi. Össur Skarphéðinsson var líka ávíttur fyrir að drulla smávegis yfir Gísla Martein. Persónulega þá sá ég ekkert að skrifum Össurar, enda er Össur þekktur fyrir að segja sína meiningu. Það er algert möst að hafa soleiðis menn á þingi. Svo voru ummæli Friðriks Ómars "Glymur hæst í tómri tunnu" skoðuð en engin virðist geta sagt um hvað það comment snérist, eða hvaða ummæli Frikki var að gagnrýna

En hvað er móðgandi? Er það kanski móðgandi að byrta myndir af ljótum bílum? Á ég kanski á hættu á að fá á mig ákæru fyrir sum ummæli sem ég hef látið vaða hér á mínu bloggi? Persónulega þykir mér t.d mjög lítið til Gísla Marteins koma. Týpískur rembugosi frá Sjálfstæðisflokknum. Spurning um hvernig leiðinlegur sjónvarpsmaður, sem var væmnari og fleðulegri en Sirrý, kemst í borgarstjón..... Segi bara eins og Georg Bjarnfreðarson.. "Hver hleypti þessum blómálfi í pólitík??"

Kanski best að ég hætti áður en einhver fer að grenja!!

Posted by Nermal at 27.02.08 20:02
Comments

Æi fólk er eitthvað svo svakalega viðkvæmt! Ef maður má ekki segja hvað manni finnst, hvað er þá málfrelsi? Er það þá nokkuð til?

Posted by: Dexxa at 12.03.08 11:37
Post a comment









Remember personal info?