nóvember 7, 2008

Trúlofun og ást.

Eins og margir sem þekkja mig, já eða hana Bjöggu mína þá ákváðum við að túlofa okkur núna um daginn. Þann 3ja nóvember svona svo það sé á hreinu. Ég fór nú ekkert á skeljarnar en þetta var samt yndislegur endir á dásamlegri helgi sem við áttum. Ekki eru nú samt komnir neinir hringar, við höfum satt best að segja eiginlega ekki efni á að kaupa soleiðis, enda er það dæmi uppá 50 - 60 þúsund kall. Það er nú samt spennandi hugmynd í gangi í sambandi við trúlofunarhrinagana, nefnilega sú að hún Björg systir mín smíði þá. Hún er nefnilega að fara í frammhaldsáfanga í listmálmssmíði og var meira en til í þetta project þegar ég nefndi þetta við hana. Hún hefur smíðað nokkra gripi og er bara skolli fær þó ég segi sjálfur frá. Svo er gaman að eiga svona einstaka gripi sem engin annar í veröldini á. Svo er þetta auðvitað mjög persónulegt að þekkja hönnuðinn hehe. Ekki alveg það sem ég ýmindaði mér þegar ég hélt á henni undir skírn í ferminguni minni.

En það er virkilega yndislegt að eiga svona góða unnustu eins og hún Bjögga mín er. Hún söng á frammhaldsprófstónleikunum sínum í gærkveldi og stóð sig að sjálfsögðu með einstakri príði. Heillaði mig og alla viðstadda. Eftir tónleikana fórum við heim. Ég fékk mér smá að borða og svo fórum við að koma okkur í bólið. Þá fór mér að verða rækalli flökurt. Ég lagðist í rúmið og mallakúturinn sendi frá sér margskonar undarleg óhljóð og skruðninga. Svo þurfti maður að skoppa framm á baðherbergi og gubba í Gústa. Þá bíðst þessi elska mín, sem var alveg útkeyrð eftir að hafa verið að syngja á tónleikunum, plús að hafa verið í vinnunni og að redda ýmsu yfir daginn til að fara uppí 10 - 11 og kaupa kók handa mér. Mér fannst það svo ótrúlega fallega hugsað af henni. Ef að svona er ekki dæmi um ást og væntumþykju þá veit ég ekki hvað það er. Ég er annars skárri núna og gat allaveganna slafrað í mig einni núðlusúpu áðan.

Posted by Nermal at 07.11.08 16:23
Comments

það er samt eins gott fyrir þig að láta þér batna fyrir næstu helgi, annars verðuru dreginn út á rasshárunum!

Posted by: Capes at 11.11.08 20:00

Ég er alveg orðinn góður. Ég á meira að segja núðlusúpu handa þér NÚÐLI!!

Posted by: Erlingur at 12.11.08 20:03

Og tímir þú að gefa núðlusúpuna ertu eithvað verri

Posted by: Taz at 15.11.08 09:41

Og tímir þú að gefa núðlusúpuna ertu eithvað verri

Posted by: Taz at 15.11.08 09:42
Post a comment









Remember personal info?