desember 6, 2008

Áfram Davíð

Það er ekki að spyrja að honum Davíð Oddssyni. Hann kann ennþá að sparka frá sér þó hann sé að verða kominn á eftirlaunaaldurinn. Nú "hótar" hann að koma aftur í stjórnmálin ef honum verður sparkað úr seðlabankanum. Ég held að það sé þá einmitt lag núna að losna við þetta afdankaða nátttröll. Geir ætti að sparka kallinum strax og boða til kosninga. Ég er nú alveg viss um að Dabbi kallinn fær ekki mikið fylgi og þá tekst kansi að koma í hanns feita haus að flestir eru búnir að fá alveg þokkalega nóg af kallinum. Fáum hann í slaginn og afhausum í kjörklefanum. Hann skottast þá kanski bara uppí sumarbústaðinn sinn og fer að skrifa. Menn segja að hann sé ágætis penni. Hann getur þá skrifað skáldsögu um hve allir séu nú vondir við hann.

Posted by Nermal at 06.12.08 13:36
Comments

Hann hlítur að vera eitthvað raunveruleika firrtur ef hann heldur að hann geti farið aftur í stjórnmálin.. eða haldið áfram í seðlabankanum..

Posted by: Dexxa at 09.12.08 11:13
Post a comment









Remember personal info?