desember 15, 2008
Fallinn höfðingi
Í dag barst heimsbyggðini frétt. Þýski leikarinn Horst Tappert er farinn yfir móðuna mikklu. Ef einhver veit ekki hver það er þá er það maðurinn sem lék hin eitursnjalla Stephan Derrick í samnefndum sjónvarpsþáttum. Þættirnir gengu lengi, urðu yfir 200 og voru sýndir í yfir 100 löndum, þar með talið á Íslandi. Það má til gaman geta þess að þættirnir voru notaðir sem kennsluefni í þýsku, enda er þýskan í þeim víst einstaklega vönduð og skýr.
Derrick var nú aðeins öðruvísi en amerísku löggurnar sem maður sér í sjónvarpsþáttum dagsins í dag. Hann var ekki með grilljón tæknimenn í kringum sig sem leysa gáturnar með allskonar flóknum tölvugræjum sem sýna allt svakalega myndrænt og geta reiknað út hvort prumpað var á vetvangi eða ekki. Ekki held ég heldur að hann hafi þótt mikið kyntröll blessaður. Ekki svona tanað massaskorið dæmi í jakkafötum.
Derrick notaði higgjuvitið og naut auðvitað diggrar aðstoðar síns hundtrygga aðstoðarmanns Harry Klein( Fritz Wepper). Saman leystu þeir morðgátur Munchen borgar.

Derrick og Harry Klein í góðum gír
Nú á Skjár 1 að grípa tækifærið og fara að sýna Derrick þættina. Þeir eru allaveganna margfalt betra sjónvarpsefni en Beverlí hills og Dynasty.
Hvíl í friði Derrick
Posted by Nermal at 15.12.08 23:09góður pistill um góðan vin hvíli hann í friði
Posted by: Taz at 16.12.08 19:44Derrick vekur upp gamlar sjónvarpsminningar.
En hver "Faldi höfðingjann"?
Posted by: Óli dvergur at 16.12.08 20:48Það var stafsetningapúkinn sem faldi höfðingjann!! Hann er landlægur hér sá armi þræll!
Posted by: Erlingur at 16.12.08 23:26Gamli góði Derrick.. væri nú gaman að sjá þá aftur.. athuga hvort maður skilur eitthvað í þýskunni enþá..
Posted by: Dexxa at 18.12.08 09:17"Ég vil Harry fuckings Klein á skjáinn minn" :-Þ
Gamalt og gott með Baggalút!


