janúar 31, 2009

"The show must go on"


Frábær sýning í Íslensku óperuni.

Í gær fór ég í Íslensku óperuna. Þar var verið að sýna glænýjann söngleik sem búinn var til af nemendum Söngskólans í Reykjavík"The show must go on" Í stuttu máli sagt var þetta hin ágætasta skemmtun. Bjögga mín lék eitt hlutverkana þarna og stóð sig alveg með eindæmum vel í hlutverki gamallar konu og sem amerísk skólastelpa í einu hópatriðana.

Það var vel til fundið hjá Söngskólanum að búa bara til nýjan söngleik í stað þess að taka ódýru og öruggu leiðina og setja upp eitthvað "frumlegt" eins og Grease eða Jesus Christ superstar. Í þessum söngleik þeirra eru ekki ný lög heldur er þarna safnað saman nokkrum vel þekktum söngleikjalögum eins og Littlu hryllingsbúðini og Grease ásamt dægurlega perlum íslenskum og erlendum.

Frammistaða flestra var með mikklum ágætum. Það er nú líka eðlilegt að fólk sem er búið að læra söng árum saman geti sungið. Söguþráðurinn var snyrtilega fléttaður og pössuðu löginn ágætlega inní söguþráðin.

Ég mæli eindregið með að fólk sjái þetta. Það verður sýning núna á sunnudaginn klukkan 17:00. Hægt er að panta miða í miðasölu íslensku óperunar.

Posted by Nermal at 31.01.09 17:47
Comments

Þetta var alveg sérdeilis góð skemmtun.

Posted by: múms at 03.02.09 23:15
Post a comment









Remember personal info?