febrúar 24, 2009
Rækallans vesen!
Jæja..... déskoti er langt síðan ég bloggaði síðast. Það er helst að frétta að nú lítur ekki vel út fyrir Daewooinn minn. Ég var á leið heim úr vinnu á föstudaginn þegar allt fór í fokk. Ég var að skipta um akrein og nálgaðist umferðarljós. Ég hugðist skipta í 1. gír og þá gerðist eitthvað. Ég hélt að ég hefði einfaldlega ekki hitt í gírinn eða eitthvað þessháttar og reyndi því aftur. Ekkert gerðist. Hann vildi bara ekki ganga í neinn gír. Ég var bara strand. Heppnin var samt með mér þegar að bar vinnufélaga minn. Hann tók trukkinn minn í tog og bjargaði mér heim á plan. Ekki að spyrja að greiðasemini hjá Hafnfirðingum.
Á sunnudaginn kom svo Óli bróðir til að líta á þetta. Ég var nú að vonast til að gírstöngin hefði bara hrokkið úr sambandi, en draslið virtist virka framm í húdd. Þannig að það er sennilegt að helvítis gírkassinn sé bara í rugli. Það er hið versta mál þar sem ég hef engin efni á að fara með bílinn á verkstæði. Hann er nú tæpast þess virði blessað krílið. Ég tími samt varla að henda honum. Get máski selt hann á undirverði til einhvers sem getur gert við hann. Hann lítur þokkalega út og er í þokkalegu lagi að öðru leiti. Ég á eftir að sakna hans, enda þægilegur í akstri og með skemmtinlegann karakter. Ég er líka búinn að eiga hann í rúmmlega átta ár. Ef einhver er til í að gera við hann fyrir lítinn pening þá má láta mig vita.
Posted by Nermal at 24.02.09 18:36Ég skal eigann, það er örugglega hægt að gera við hann.
Posted by: múms at 24.02.09 20:35Okí... Ég gef þér hann, þú lætur lagann og gefur mér hann svo aftur :D
Posted by: Erlingur at 24.02.09 21:45En ég ræð þá "hvenær" ég gef þér hann aftur !
Posted by: múms at 27.02.09 21:31

