mars 29, 2009
Menningarhelgi
Þeim fer augljóslega sífellt fækkandi bloggunum mínum...
Jæja, hvað um það. Þessi helgi hefur aldeilis verið menningarleg. Á laugardeginum byrjuðum við á að fara á nemendatónleika í Söngskólanum. Þar voru tvær upprennandi söngkonur að sýna listir sínar og stóðu sig bara aldeilis príðilega. Þær eru samt ekki eins góðar og hún Bjögga mín. Ekki dugði þetta til að svala okkar menningarhungri. Um kvöldið fórum við nefnilega í Borgarleikhúsið og sáum hið bráðskemtinlega verk "Fló á skinni" Ég hef sjaldan séð jafn hrikalega fyndið leikverk. Við fengum bæði alveg krampa af hlátri enda er verkið skemmtinlega skrifað og öndvegis vel leikið. Ekki að undra að þetta stykki hafi gengið fyrir fullu húsi á Akureyri langalengi. Mæli með þessu fyrir alla.
Í dag var sennilega hápunktur menningarinnar tekinn fyrir. Þá fór ég í Hallgrímskirkju að sjá Kammerkór Hafnarfjarðar ásamt Voices Thules flytja 14. aldar tónlist. Notuð voru ýmiskonar hljóðfæri sem tíðkuðust í þann tíma. Alltsaman mjög svo sérstakt.
Þessi helgi er þá sirka ársbyrgðir af menningu, þannig að nú get ég horft á amerískar spennumyndir og asnalega raunveruleikaþætti það sem eftir lifir árs. Bara gott.
Ég ætti kanski að setja inn innlegg í hinum mjög svo hámenningarlega flokki "ljóti bíll mánaðarins" á morgun...
Posted by Nermal at 29.03.09 23:47

