mars 31, 2009

Ljóti bíll marsmánaðar 2009

Jæja.... ég er núna loksins kominn með einn einn ljóta bílinn. Ég hef verið alltof latur við að dæla þeim hér inn. Maður er nú ekki alltaf með vélina í vasanum þá svo oft að maður sér ljóta bifreið. Nú varð fyrir valinu húsbíll einn að Volkswagengerð. Eigandinn hefur valið á hann nafnið "Dindill" Ég vona að Dindill blessaður sé bara verk í mótun. Hann er nefnilega verulega ljótur. Ryðið lekur út víðast hvar. Hvítar kíttisskellur eru hér og hvar. Hliðarhurðin virðist vera á góðri leið að detta af. Svo er háþekjan á honum alger skelfing. Held jafnvel að eigandinn hafi smíðað hana sjálfur...að því gefnu að hann kunni ekki að smíða. Svo er henni klastrað ofaná með glás af kítti. Viss um að hún fýkur af ef bíllinn fer yfir 60 km/h.


%DDmislegt%2008%2009%20125.jpg

Posted by Nermal at 31.03.09 16:35
Comments

Hann er alveg yndislega ljótur.. hehehe.. en ég held að lang flestir séu farnir að vera latir við að blogga..

Posted by: Dexxa at 06.04.09 11:48

hehe flottur þessi. Verst að þú fékkst aldrei að sá Búbbarúinn minn með eigin auga, en það er aldrei að vita, hann er víst á leiðinni suður...

Posted by: capes at 07.04.09 20:57
Post a comment









Remember personal info?