apríl 14, 2009

Páskasæla

Jæja, þetta voru nú sérdeilis ágætir páskar. Eins og í fyrra ákváðum við Bjögga að eyða páskunum saman utan skarkala borgarinnar. Við leigðum okkur því sumarbústað í Svignaskarði í Borgarfirði. Við lögðum af stað stuttu eftir vinnu á miðvikudeginum og vorum komin á áfangatað um átta leytið. Við komum okkur fyrir, gengum frá í ísskápinn og þannig. Svo mátuðum við pottinn aðeins. Hann var dulítið gruggugur en það slapp til. Þrifum hann daginn eftir. Við gerðum eiginlega akkúrat það sem maður á að gera í svona sumarbústað. Svona nokkurnveginn ekki neitt. Við hlustuðum á spurningakeppni fjölmiðlana og þóttumst vera voða voða gáfuð að geta svarað hinu og þessu. Á skírdagskvöld kíktu Björg og Palli í heimsókn. Það var voða gaman. Við drukkum öl, grilluðum og bökuð var súkkulaðikaka. Ótrúlega góð súkkulaðikaka sem hún systir mín gerir. Svo var virkni grillsins prufuð. Það virkaði bara fínt.

Það komu fleyri gestir. Ekki bara mannfólk. Við höfðum séð þresti sveima fyrir utan og prufuðum að gefa þeim smá brauð. Þeir plokkuðu aðeins í það. Aðeins síðar þá sauð ég littla rúllu af bayoneskinku. Fitan var skorin af og sett út á verönd. Það kunnu fuglarnir vel að meta. Einn þrastana var áberandi bústinn og nefndum við hann Brynjólf.

Á laugardeginum skutumst við aðeins í Borgarnes. Þegar við komim til baka sáum við hvar tvær snjóhvítar rjúpur höfðu gert sig heimakomnar við bústaðinn. Þær sátu á grindverkinu sem umlykur veröndina. Við fórum inn og gripum myndavélarnar. Maður bjóst við að þær væru nú fljótar að forða sér, en það var öðru nær. Þarna sátu þær þó við værum komin giska nálægt og virtust njóta athyglinar. Ekki oft sem sama rjúpan er skotinn margoft.

Á páskadag komu tengdapabbi og systir hennar í heimsókn. Við borðuðum ljúffengann mat og tókum eitt skrabbl. Ég tapaði...sat uppi með eitt rækallans Þ. Fékk engann 50 stiga bónus, hefði unnið annars.

Annann í páskum tókum við öllu með ró. Skruppum í Baulu og fengum okkur ís. Því miður var ekki til heit karamellusósa, en ísinn var samt ágætur. Seinnipartinn litu mamma og Jonni til okkar á leið sinni til Reykjavíkur.

Eftir kvöldmatinn skelltum við okkur í pottinn í síðasta sinn. Hlustuðum á fuglana og nutum þess að vera ástfangin. Heyrðum í þröstum og hrossagauk. Gaman af því.

Jæja..... þetta er orðið alveg nógu langt og það nennir örugglega enginn að klára að lesa þetta allt.

Svignaskar%F0%202009%20069.jpg

Rjúpan sem rembdist við staurinn


Posted by Nermal at 14.04.09 13:25
Comments

Fínasta mynd hjá þér og flott dof.

Posted by: Óli dvergur at 14.04.09 14:52

Já það var rosalega kósý að vera hjá ykkur, verst að við misstum af rjúpunum.. hefði verið gott að grilla þær ;)

Posted by: Dexxa at 17.04.09 16:46
Post a comment









Remember personal info?