apríl 18, 2009
Rottuhreynsun
Það er orðið ansi langt síðan ég skrifaði um eitthvað þjóðfélagslegt hér en nú er alveg kominn tími á það. Núna er það hústökufólkið við Vatnsstíg sem verður fyrir barðinu á mér. Að mínu mati var lögreglan í 111% rétti til að ráðast þarna inn. Fólkinu í húsinu var gefinn góður tími til að yfirgefa svæðið en vildi frekar sitja sem fastast og byrgja sig inni og óhlýðnast þannig valdhöfunum. Manni finnst helst að þetta fólk sé einungis að þessu til að storka lögregluni, mótmæla til að mótmæla, óhlýðnast til að óhlýðnast. Svo kemur liðið grenjandi í fjölmiðla og vælir yfir harðræði lögreglunar. Þurrkar tárin í lopapeysuermina og snýtir sér í arabaklútinn sem þau stálu í Kolaportinu.
Það á ekkert að sýna svona ræflum neina miskun. Það var ekki í neinum rétti til að dveljast þarna. Auðvitað vil eigandinn ekki hafa eitthvað lið í húsinu sínu. Ein ástæðan gæti verið sú að ef einhver slasast eða drepst í húsinu, þá gæti hann verið gerður ábyrgur. Það er alveg öruggt að þessir leppalúðar hafa ekki pælt neitt í því. Bara taka taka taka, ég ég ég. Svo er baulað eitthvað um að hús séu látin grotna niður til að hægt sé að rífa þau. Augnatak... er þetta fólk nú orðið húsasmiðir, byggingatæknar og sérfræðingar í viðhaldi gamalla húsa? Ég held nú ekki.Það er alsendis óvíst að það sé gerlegt að gera upp þetta hús. Betra væri að þetta lúðalið færi nú að gera eitthvað gagnlegt í stað þess að væla og grenja um öll torg um illsku og vægðarleysi samfélagsins.
Þetta voru nú líka bara mildar aðgerðir miðað við ýmis önnur lönd. Í mörgum löndum hefði hústökufólkið fengið herinn inn til sín og þá hefðu margir verið barðir með kylfum og jafnvel skotnir.
Posted by Nermal at 18.04.09 14:12Hefuru eitthvað fyrir þér í því þetta fólk sé að stela í kolaportinu?
Posted by: Óli dvergur at 18.04.09 18:09vel mælt minn kæri nafni
Posted by: Taz at 18.04.09 18:13Ég veit lítið um það, enda var það sett framm sem grín. Kæmi mér samt ekki neitt á óvart, svona fyrst þeir virðast ekki hafa efni á húsnæði.
já hvað með einn arabaklút, var þetta lið ekki að stela heilu húsi ?
Posted by: múms at 18.04.09 21:00Nei þau fóru ekkert með húsið, svo þau stálu því ekki. Voru hinsvegar í líkast til í óleyfi þarna sem er annað mál.
Hinsvegar er ég að benda á að varasamt getur verið að fara með fullyrðingar sem erfitt gæti reynst að standa við.
Það er lítið mál að segja nánast sama hlutinn án þess að vera með fullyrðingar sem í versta falli gætu komið manni í klandur.
Þú veist jú alldrei hver les það sem þú skrifar.
Posted by: Óli dvergur at 19.04.09 17:07

