Mánudagur 30. desember
Einn þátt fynst mér að
Einn þátt fynst mér að ætti að banna í sjónvarpi,,SURVIVOR!!!!. Þessir þættir eru svo óstjórnlega bjánalegir að maður gæti næstum ælt. Reyndar efast ég stórlega um að það sé eins mikill raunveruleiki að baki og sagt er. T,d þessat fáránlegu athvæðagreiðslur. Einhverntíma var hommi í þáttunum, hann var ekki kosin út fyrr en seint og um síðir. Ég veit alveg hvernig aðrir karlmenn hugsa í alvöru, hommi hefði verið rekinn heim við fyrsta hanagal. Það er kanski eitt sem er verra en Survivor, það er fólk sem fylgist með þessum þáttum af mikklum áhuga.Ég var einmitt að upplifa svona umræður um Survivor, æ þau kusu Janet eða hvað sem hún heitir út....Who gives a flying fuck???. Mér finnst að þau hefðu átt að kjósa Bryan..eða Clay...!!! Ég gæti gubbað. Svo er grey fólkið látið gera sig að hálfvitum með því að leysa allskonar stjörnuvitlausar þrautir. Á hvaða lyfjum eru þessir jólar sem hanna þrautirnar. Ég held sveimérþá að betra sé að horfa bara á beina frá Alþingi.... Það er líka raunveruleikasjónvarp sko!
Laugardagur 28. desember
Fólk getur jú verið umtalsvert
Fólk getur jú verið umtalsvert vitlaust. Eitt af því sem fólk gerir, kanski án þess að hugsa það lengra er að taka þátt í skjá-leiknum á RÚV. Ég fylgdist aðeins með þessum leik í gær og sá að í 1.-3ja vinning var stór fjölskildupakki af flugeldum. Verðmæti þessa ágæta pakka var c.a 7900kr. En hvað er ég svo að fara núna, jú mínútan í þessum skjá-leik kostar 99.90.. Og til þess að eiga möguleika á þessum vinningi þá þarf maður tölvert magn stiga. Ég reiknaði það út að hver spurning tekur c.a 40 sek, og fær fólk á bilinu 250-1000 stig fyrir hverja spurningu. Ég held samt að algengast sé að spurningarnag gefi 750 stig, þannig að einfaldast er bara að miða við þá tölu. Í gær var efsti maður á lista með 68.000 stig rúmmlega, sem þýðir að hann hefur rúllað í gegnum einhverjar 90 spurningar. 90x40sek=3626sek eða ca 60 mínútur. Svo margföldum við það með 99.90 og fáum út c.a 6000 krónur..... Mér finnst það nú ekki beint það gáfulegasta að eiða 6000 krónum til þess eins að eiga möguleika á að fá hlut sem er tæplega 8000 króna virði. Málið er að það er dregið út topp 10 að ég held um fyrstu þrjá vinningana...Ansi dýrt happadrætti það þó við miðum við 30% vinningslíkur. Og fyrir þennann 7900 kall fær maður c.a 118 spurningar eða c.a 89.000 stig. Það tryggir manni þó engan vegin nokkurn skapaðan hlut. Þannig að ef mig langar í flugelda, þá bara kaupi ég þá beint
Fimmtudagur 26. desember
Nú eru greinilega einhverjir
Nú eru greinilega einhverjir tæknilegir örðugleiukar að hrjá mig um þessar mundir. Í gær var ég búinn að skrifa slatta sem átti að fara inn á þetta blogg. Textin var póstaður...en kom ekki inn. Þannig var það líka á aðfangadag.Þannig er mál með vexti að ég er með Rautt, fyrirframgreidda símaþjónustu. Svo eins og gengur og gerist þá klárast inneignin stundum. Það var einmitt það sem gerðist á Aðfangadag. En sem betur fer átti ég eitt stykki 500kr inneignarspjald. Það var samviskusamlega hringt inn og hélt ég nú að allt væri í lukkunnar velstandi. EN neiiiii, ég gat ekki svarað ágætu SMS skeiti sem ég fékk. Það kom einthvað tékk oppereitor sörveses á skjáinn. Ég gat ekki sent neitt fyrr en eftir tölverðan tíma, örugglega hátt í klukkustund. Það er eins best að svona gerist ekki þegar maður þarf virkilega á því að halda að senda SMS.......Ég veit ekki hvort þetta er eins hjá öðrum símafyrirtækjum, en það getur alveg verið...
Miðvikudagur 25. desember
Jæja, nú er Aðfangadagur búinn
Jæja, nú er Aðfangadagur búinn og komin Jóladagur. Minn Aðfangadagur var bara fínn, maður borðaði góðan mat með fjölskyldunni og það mikið af honum. Svo fékk maður nottlega sinn skerf af jólapökkum fá hinum og þessum. Svo fór ég að spila Verðbréfaspilið....og gengið hjá mér, jú það var sko DISASTER.....Ef eithvað er til í spekinni um heppni í spilum, óheppni í ástum, þá er sko björt framtíð hjá mér í kvennamálunum. Það er nottlega að koma nýtt ár og allt það, aldrei að vita hvað gerist þá sko. Ég hef allaveganna takmarkaða trú á því að verr gangi á næsta ári. Þetta ár hefun nú samt haft sínar góðu stundir o já já. Förum samt ekki útí nein deatails..........
Þriðjudagur 24. desember
Jæja, nú er Aðfangadagur og
Jæja, nú er Aðfangadagur og orðið ansi stutt í jólin. Ég er búinn að klára gjafakaupinn, eða það vona ég. Verra væri ef maður fattaði kl 8 á Aðfangadag að einhver hefði gleymst. Ekki lítur út fyrir hvít jól nú í ár því allt er marautt eins og að hausti væri. Það er nú algert aukaatriði. Ég óska bara lesendum mínum(öllum þremur) gleðilegra jóla og þakka þeim fyrir að nenna yfirleitt að lesa þessa steypu sem hér hefur verið sett niður. Megi jólin vera ykkur öllum dásamlegur tími GLEÐILEG JÓL
Sko, þar sem það fórs
Sko, þar sem það fórs fyrir að blogga í gær þá verð ég að blogga núna fyrir gærdaginn. Þorláksmessa var jú í gær og þá eru margir sem borða skötu. Þar á meðal eru nágrannar mínir. Ég held allaveganna að þau hafi verið að elda soleiðis í gærkveldi. Allaveganna var þvílíkur viðbjóðs hlandmyglufnykur í húsinu að maður var að því kominn að gubba. Æðislegt svona rétt fyrir jólin þegar flest á að vera hreint og þrifalegt. Af hverju er fólk að þjappa þessu ullabjakki í sig? Borða úldinn fisk með miglaðri fitu, er ekki allt í lagi heima hjá þessu fólki?
Sunnudagur 22. desember
Ég veit alveg að ég
Ég veit alveg að ég get verið doldið sick, en hér er ég með staðfestingu á því. Í nokkur ár hef ég stundað leik sem ég las fyrst um í blaði, svokallað DEADPOOL, þar á maður að giska á hvaða frægu einstaklingar munu fara yfir móðuna mikklu á næsta ári. Þetta hefur verið svona "fjölskyldujólasport" Mér svona datt í hug að varpa þessu framm hér ef einhver vil vera með í svona blogglesara útgáfu af þessu. Velja skal 10 einstaklinga, af þeim verður að vera a.m.k 1 Íslendingur og einnig verður að vera a.m.k ein kona.
Hér er minn listi.
Whitney Houston
Ronald Regan
Nelson Mandela
Madeline Allbright
Horst Tappert (Derrick)
Ólafur Skúlason
Michael Schumacher
Árni Tryggvason
Charles Bronson
Marlon Brando
Endilega ef lesendur vilja taka þátt, þá leggið listana ykkar inn í malið, þar verða þeir unnir og vistaðir...Sorrý engin verðlaun nema heðurinn í boði....
Laugardagur 21. desember
Svona eru nú hlutirnir stundum
Svona eru nú hlutirnir stundum furðulegir....ég setti um dagin 50 ljósa seríu í glugga hjá mér. Ekki neitt merkilegt við það, nema að það logaði ekki á tveimur perum. Það er sossum engin heimsendir, og á ekki að vera neitt vesen. Að sjálfsögðu átti ég engar varaperur þannig að mar þurfti að fara og versla perur. Þá fór að versna í hlutunum. Fyrst fór ég í Hagkaup, engar bláar perur. svo fór ég í Siemensbúðina, nei nei við eigum engar bláar perur....O.kí. Þá var farið í Byko, þar voru til allaveganna perur af ýmsum stærðum og litum, þar spurði ég um perur, en viti menn...ENGAR BLÁAR !!!!!!! Á báðum stöðum vissi fólk alveg að þessar tilteknu perur væru ekki til. Það segir mér bara að ég er ekki sá eini sem hef verið að leyta. Ég veit nú ekki hví þessi tiltekni litur er svona vandfundin. Ég hélt að blár væri nú ekki neitt afbrygðilegt dæmi. En loks fékk ég perurnar í Blómaval,fimm stykki á 100kr, og nú ljómar glugginn almennilega. Mér finnst það samt frekar hallærislegt að svona stór sjoppa eins og Byko klikki á að eiga réttu perurnar handa fólki.
Föstudagur 20. desember
Ég var rétt í þessu
Ég var rétt í þessu að skoða teljarann minn, þá var hann kominn í 663, það þýðir aðeins eitt. Bráðum kemur inn gestur sem fær þann heiður að vera númer 666. Djöfullega flott dæmi. Sá hin sami er vinsamlega beðinn um að gera grein fyrir sér í malinu hér fyrir neðan. Engin verðlaun eru í boði...SORRÝ, tja nema að þú sért single og kvennkyns, þá má alltaf skoða hlutina ;)
Helvítis rugl er þetta
Helvítis rugl er þetta alltaf í manni. Ég var að blogga um það hvessu furðulegt veðrið væri um þessar mundir. Ég hafði varla sleppt takkanum á músini eftir að hafa klikkað á "post & publish, að það fór að kólna. Í dag hefur gengið á með léttri snjókomu. Þetta er að vísu bara smá föl en dugar samt til að tölverð hálka hefur myndast. Þá er jú eins best að fara varlega í umferðinni. Sko ef það virkar að viðra svonalagað, eins og veðrið í þessu bloggi, með téðum afleiðingum þá er ég að spá í að reyna annað trix. Mikið óskaplega leiðist mér að vera svona single.......
Fimmtudagur 19. desember
Það er eithvað meira en
Það er eithvað meira en lítið stórfurðulegt við verðlagningu á erlendum tímaritum hér á Íslandi. Ég var að skoða heimasíðu bílatímaritsins Road and track, öndvegis tímarit finnst mér allaveganna. Jú nema hvað, tímaritið kostar út úr bókabúð hérna ef ég man rétt 930 kr. Það finnst mér assgoti mikið. Það er líka hægt að fá þetta rit í áskrift fyrir tæpa 20$ á ári eða 1700 kr fyrir 12 eintök, eða tæpar 142 kr eintakið. Þetta þýðir að tímaritið er út úr búð hér um 650% dýrara en í áskrift. Það er kanski ekki réttlátur samanburður en þá er hægt að benda á að tímaritið kostar c.a 4$ í U.S.A eða. 340 kr. 270% prósent dýrara á Íslandi. Ég myndi vilja vita hver tekur þennan umframkostanð. Vaskurinn er að ég held 14% þannig að það skýrir lítið. Ég get ekki ýmindað mér að dreyfingin kosti svona mikið, þannig að annaðhvort eru þetta einhverjir tollar eða þá að bókabúðirnar eru að svínleggja svona á tímaritin. Öðru tók ég eftir í þessu sambandi, hér um árið rauk dollarinn upp úr öllu valdi og tímaritaverðið fylgdi með, nú hefur hann lækkað heilan helling, en...ekki tímaritin. Svonalagað er nottlega bara rakin skítsháttur. Það er bara eitt að gera ef maður vil komast hjá þessu, gerast áskrifandi að uppáhalds tímaritunum......
Miðvikudagur 18. desember
PLiffff, er ég vikilega svona
PLiffff, er ég vikilega svona VONDUR????? 
What kind of music are you?
brought to you by Quizilla
Þetta veðurfar er augljóslega
Þetta veðurfar er augljóslega eithvað gallað. Það er ekki neitt eðlilegt við það að nú örfáum dögum fyrir jól sé uppundir 10°C hiti á Íslandi. Ég tek það fram að ég fíla þetta nottlega alveg í öreindir, nema hvað að nagladekkinn mín eru áræðanlega að verða búinn að naga upp allt malbikið á Akureyri. Ég vona að þetta blíða tíðarfar þýði ekki að allt verði svo gersamlega stjörnukogeggiklikkstutlbrjálað efir áramót. Það er spáð rauðum jólum um allt land og verðum við bara að sætta oss við það. Ég er sossum ekkert grenjandi yfir því, en mér finnst það vera aðeins jólalegra að hafa snjóinn. Ætli það sé ekki til svona spóla með sjókomu, eins og það er til spóla með arineldi. Og ef þetta er DVD þá er kanski hægt að fá MULTYANGLE snjókomu!!!!!
Þriðjudagur 17. desember
Vá, það er alveg ljóst
Vá, það er alveg ljóst að það er ekki tóm sæla að vera knattspyrnumaður. Ég held að Lee Sharpe sé gott dæmi um knattspyrnumann á NIÐURLEIÐ. Fyrir ekkert svo obboðslega mörgum árum spilaði hann með Manchester, forðaði sér þaðan til Leeds,Já ókei, hann var seldur Leeds fyrir metfé, en síðan fór allt niðurávið. Og nú stendur til að hann fari að spila með knattspyrnuliði Grindavíkur....Ekkert smá fall frá frægð, aumingja maðurinn, fara frá ríkasta klúbbi í heimi yfir í smálið á eyju lengst út í Atlantshafi. Ættli Lee Sharpe greyið hafi aldrei heyrt um að leggja skóna á hilluna? Kosturinn er nottlega að tæðast verður neðar komist, nema hann færi kanski að spila með Narfa í Hrísey, það verður kanski endirinn á. Má þá búast við Becham og Bartez hingað til lands eftir örfá ár, fyrst að Júnædedd menn fara svona illa með fótboltakallana sína?
Mánudagur 16. desember
Ég er að spá í
Ég er að spá í að sækja um sem sendiherra í Þýskalandi. Ég var nefnilega að heyra að það ætti að byggja þennan líka flotta sendiherrabústað í Berlín. 160.000.000 spírur á slotið að kosta, einhverjir rúmmir 500 fermetrar. Ég er ágætur í að halda á friðivínsglasi og taka í spaðana á fólki. Svo kann ég líka nokkur orð í þýsku. En til hvers þarf Ísland einhvern huges sendiherrabústað í Berlín, er ekki hægt að gera eithvað þarflegra við aurana, eða á þetta að vera ein af þessum fjárfestingum sem á að borga sig, baorga sig af því að þetta mun koma til með að efla viðskiptasambönd milli Þýskalands og Íslands. Er virkilega ekki hægt að komast af með eithvað aðeins minna, við erum jú bara ponsulítil þjóð, og ættum því að hafa ponsulítið sendiráð við ponsulittla götu í ponsulittlu hverfi. En Ég panta nú samt sendiherrastöðuna, ef bústaðurinn verður svona stór. Ég væri frábær fulltrúi þjóðarinnar útávið!!!!
Fékk þetta "gáfulega" próf lánað
Fékk þetta "gáfulega" próf lánað hjá Icelily, ég vona innilega að hún taki stuldinn ekki of nærri sér.

What's Your Movie Dream Car?
by Auto Glass America
BATMOBILE.....hann er bara sláandi líkur bílnum mínum
Sunnudagur 15. desember
Skraut skraut skraut..... nú er
Skraut skraut skraut..... nú er allt að verða troðfullt af jólaskrauti um allann bæ. Það er nottlega ekkert nema jáhvætt að lýsa upp skammdegið með fallegum jólaljósum. Samt eru það alltaf nokkrir fýlupokar sem ekkert skreita. Það er frekar asnalegt að sjá t.d blokk með seríum í öllum gluggum og á svölunum og allt, svo er ein íbúð í miðjunni sem ekki er með eitt einasta jólaljós neinsstaðar. Menn geta nottlega haft sínar ástæður fyrir ljósleisinu, t.d halda Vottar Jehóva ekki upp á jólin (ég vorkenni börnunum þeirra) og setja því ekki upp jólaljós. Sumir telja sig hafa betra með peningana að gera, en það er nú bara fyrirsláttur í dag, þar sem hægt er að fá ágætis inniseríur sem kosta svipað og einn sígarettupakki. Þannig vil ég endilega hvetja sem flesta til að setja bara jólaseríur í alla glugga. Ég á að vísu eftir að setja upp seríur sjálfur en það gerist bráðlega. Lýsum upp skammdegið og höfum það flott yfir jólin.
Nú er farið að nálgast
Nú er farið að nálgast jól og jólasveinarnir eru farnir að steyma til byggða. Það er alveg ljóst að margir þeirra ágætu sveina eru eiginlega úreldir og þyrfti að skipta þeim út fyrir nýja. Það er engin sem notar ask lengur þannig að Askasleikir er orðin úreldur. Í hanns stað má t.d setja Súlusleiki, jólasveinn sem sækist eftir því að sleikja súlurnar á súlustöðunum. Ennfremur má segja að þvörur séu ekki mikið brúkaðar lengur, þannig er Þvörusleikir út úr myndinni. Í hanns stað kemur Kvótahámur, jólasveinn sem hefur það að markmiði að sölsa undir sig sem mest af fiskveiðikvótanum. Þar sem allir eru nú til dags komnir með gluggatjöld þá er lítið að gera með jólasvein eins og Gluggagæjir, í hans stað kemur jólasveinn 21.aldarinnar, Netpervert. Jólasveinn sem sækist sveitt mikið í klámsíður netsins, glugga nútimans. Gallin við þessi skipti er að það gæti komið eithvað andstyggilegt í skóinn frá þessum köppum. Ég hef nú samt ekki fengið neitt í minn skó síðustu 25 árinn eða svo, skil þetta bara ekki. Ég sem er alltaf svo þægur
Föstudagur 13. desember
Fréttir vekja stundum óhug, og
Fréttir vekja stundum óhug, og er sannleikurinn oft rosalegri en nokkur skáldsaga. Ég sá órtúlega frétt áðan um mann sem var hantekinn í Þýskalandi fyrir að drepa mann og snæða hann síðan. En það er ekki allt sko. Það furðulegasta er að mannætan auglýsti eftir "manni til slátrunnar" á netinu... Og viti menn, ungur maður svaraði aulýsingunni og mætti af fúsum og frjálsum villja til mannsins. Þar byrjaði mannætan á því að skera undan hinum hið allra heilagasta og hermir sagan að þeir hafi etið vininn í sameiningu. Síðan var ungi maðurinn saxaður niður og allt tekið upp á myndband.Nokkrir vel valdir bitar af gaurnum fyndust í ísskáp morðingjans. Það er nú vandi að sjá hvor er meira kikk. Mannát er nottlega skýrt merki um andlegan krankleika. En egar fórnalambið er svo heiladautt og gegnsýrt af geðveilu, að það svarar svona auglýsingu, þá er það nottlega merki um hvílíkt sjúkan huga að það er furðulegt að sá maður sé ekki dauður fyrir lifandis löngu síðan. Það er kanski bara ágætt fyrir þróun lífs hér á jörðini að svona vilteisingjar skuli vera upprættir..já eða uppétnir
Miðvikudagur 11. desember
Ljótt var það sem ég
Ljótt var það sem ég heyrði í fréttum áðan. Svo virðist sem einhverjir óprúttnir aumingjar stundi það að pakka inn rusli og setja undir jólatré mæðrastyrksnefndar.Allaveganna voru einhverjir krakkavitleysingjar að gera það um daginn. Hvað er eiginlega að þessum sálsjúku einstakingum? Hafa þessir aular enga samvisku eða hvað?Hvernig getur svona lið sofið á nóttunni? Það er ekki gaman að hafa lítið handa á milli, og án efa þungbært að þurfa að fá jólagjafir handa börnunum sínum annarsstaðar frá. Svo er börnunum fært innpakkað rusl. Er eithvað sem gæti eyðilagt jól fyrir barni meira? Réttlátast væri að þeir sem svonalagað gera fengju að opna sínar jólagjafir, sjá hvað í þeim væri, svo væru gjafirnar færðar þeim sem minna eiga. Ég vil endilega hvetja fólk til að gefa pakka, ekkert stórvægilegt, það er t.d hægt að fá mjög sæta bangsa í Rúmmfatalagernum fyrir 300kr. Einn svoleiðis gæti glatt lítið barnshjarta. Verum nú góð hvort við annað, það eru nú einusinni að koma jól...
Hraði er dýr, það er
Hraði er dýr, það er næsta víst. Ég þurfti núna áðan nauðsynlega að koma sendingu til Reykjavíkur strax í fyrramálið. Ég rúllaði því inn á flugvöll og bað um að umslaginu væri komið til skila. Þetta var svona venjulegt umslag, sennilega 10-20 grömm. Og prísinn 801 króna. Það virðist vera þannig að engin sending er flokkuð léttari en eitt kíló. Það er næsta víst að næst þegar ég þarf að senda eithvað svona lítið, þá þyngi ég sendinguna upp í fullt kíló, þannig að ég fái fyrir það sem ég borga..Set múrstein með eða eithvað.
Þriðjudagur 10. desember
Já leikföng geta verið virkilega
Já leikföng geta verið virkilega varasöm. Ég var að fletta svona dótabækingsrulspósti núna áðan. Þá sá ég einhverjar dúkkur sem kallast Bratz. Ég get bara ekkert að því gert að mér fannst þær einna helst líkjast hórum greyin. Það eru líka til Bratz strákar, þeir eru littlu skárri því þeir líkjast stelpum. Þetta eiga víst að vera "geðvekt svalar" dúkkur en ég sé það ekki, enda er ég engin dúkkuspesjalisti. En samt sem áður ef einhver vil gefa hóru í jólagjöf, þá er Bratz lausnin. Það er örugglega hægt að finna þennan ófögnuð á netinu, ég bara nenni ekki að leita. Ég sá líka annað dót, doldið sem mér finnst kanski senda einhver furðuleg skilaboð. Það var "löggusett". Í því voru svona löggulegir hlutir, byssa, löggumerki, handjárn og þessháttar. Það sem mér fannst ekki passa inní var hljóðdeifir. Til hvers ætti löggann að nota hljóðdeifi? Ég hélt nú að það væru aðallega morðingjar sem notuðu solleiðis. En það gæti sossum verið ágætt að hafa hjóðdeifi ef maður stendur í skotbardaga um miðja nótt, óþarfi að vekja allt hverfið..........
Mánudagur 9. desember
Jæja, þá er maður kominn
Jæja, þá er maður kominn heim til Akureyrar eftir helgarferð til höfuðborgarinnar. Minn aðal tilgangur með förinni var að fara á jólahlaðborð með rásarmeðlimum #singles. Í upphafi var ráðgert að leggja af stað seinnipartinn á fimmtudaginn. En þá nottlega þurfti veðrirð að ganga af göflunum og ekkert var farið vegna téðs vindgangs. Var þess í stað lagt af stað um kl 8 á föstudagsmorguninn. Ég komst klakklaust til höfuðborgarinnar á mínum magnaða Daewoo, var kominn c.a 13:00. Ekki ættla ég útí lýsingar á því sem ég tók mér fyrir hendur milli 13:00 og 20:00, en um það leyti mætti ég á Hótel Loftleiði þar sem hlaðborðið beið okkar. Á því voru allrahanda krásir, meiriháttar góður matur í alla staði, sérstaklega var hangikjötið einstaklega gott. Svo tók fólk áhlaup á veitingarnar og allir röðuðu í sig. Þegar allir voru orðinr alveg pakkaðir var tekið smá djamm. Fyrst var skroppið á Dubliners, þar hittum við á Línudansaravannebees, misheppnaðann brandarakall, og lítinn, gamlan,leiðinlegan, asnalegan og ógeðslegan pervert sem réttast hefði verið að skuttla út um næsta glugga. Svo voru böstuð sveitt múv á Victor. Þaðan var rölt á Spotlight ( ég er svo mikið V.I.P að ég fékk frítt inn). Þar var dansað en meira. Svo kvöddust allir með virtum eftir velheppnað kvöld. Semsagt, mögnuð helgi í höfuðborg Íslands..
Fimmtudagur 5. desember
Einhver bið getur orðið á
Einhver bið getur orðið á endurnýun þessa bloggs. Ástæðan er nebblega sú að ég er að fara suður í fyrramál. Reyndar ættlaði ég nú fyrr í dag, en veðrið þurfti endilega að ganga af göflunum. Vonast til að geta skrifað á mánudag eða þriðjudag. lesendur eru beðnir velvirðingar á þessum töfum.
Já auglýsingar eru oft mjög
Já auglýsingar eru oft mjög forvitnilegar. Ég rakst á eina í Dagskránni (sér blað á Akureyri). Þar var verið að auglýsa VIGEL, gel sem á að auka fullnægingu kvenna til mikilla muna, aukin tíðni og dýpt eins og stendur í auglýsingunni. Ekkert nema gott um svona hluti að segja. En það sem mér fannst athygliverðast var myndin af pakkanum. Á pakkanum stendur "As seen on TV" Hvernig auglýsir maður svona í sjónvarpinu? Er svona gel ekki borið á staði sem ekki er siðsamlegt að sýna í sjónvarpi? Og ættli þeir séu með svona before and after myndir? Nei, ég er bara svona að spökulera..... En elsku fólk sem les þetta blogg....plííís skrifið nú í gestabókina, mér þætti afskaplega vænt um það.
Miðvikudagur 4. desember
Ég sá furðulega frétt hér
Ég sá furðulega frétt hér um daginn. Það var verið að fjalla um frammhvæmdir við sundlaugina hér á Akureyri. Þar stóð að það ætti m.a að STYTTA hana um 10 metra! Hvaða helvítis? Ég er alveg viss um að þetta hefur verið einhver misskylningur en ef ekki þá er það furðulegt að menn taki alltí einu upp á því að stytta sundlaugina. Kannski hefur bæjarstjórinn verið í sundi og ekki alveg meikað það milli bakka, púfff þessi laug er allt of löng, ég verð að láta stytta hana. Er fólk ekki yfirleitt að tala um að laugar séu of stuttar ? Svo halda menn áfram að stytta og stytta. Allaveganna ef bæjarsjórinn kemst ekki í betra form. Það verður kanski hægt að halda sértstakt sundmót í lauginni. Sundmeistaramót Íslands í 7 metra laug!!!!!!. Svo kemur Guinnes og skoðar laugina og hún kemst í heimsmetabókina... Heimsins styðsta almenningssundlaug.... Ferðamenn flykkjast til að skoða fyrirbærið. Frábært !
Þriðjudagur 3. desember
Tæknin er orðinn alveg ótrúleg,
Tæknin er orðinn alveg ótrúleg, og frammþróuninn er sífelt að koma manni á óvart. Stundum setur maður samt spurningamerki við ýmsar nýungar og breytingar á hinum ýmsustu tækjum og tólum. Nú nýlega sá ég auglýstan DVD spilara sem tekur 5 diska.. FIMM DISKA ? hvessu latur þarf maður eiginlega að vera. Er einhver svo latur að hann nenni ekki að standa upp á tveggja tíma fresti til að skipta um mynd. Fjöldiskakerfi er alveg eðlilegt í venjulegum geislaspilurum, þannig að hægt sé að hlusta á eitt lag þarna og annað hérna. Ættla menn þá að horfa á fimm mínútur af einni mynd, 4 mín af næstu og 8 síðustu mínúturnar af þeirri þriðju :). Svo er það annað sem mér finnst svolítið skondið við þessa DVD tækni. Ef maður kaupir DVD þá fylgir með heill hellingur af aukaefni. T.d er hægt að fá Lord of the Rings (1) í fjögura diska útgáfu. Þrír diskar af aukaefni....Nennir fólk að horfa aftur og aftur á sama viðtalið við Eilija Wood, og sjá aftur og aftur hvernig þetta eða hitt var gert. Mér finnst eins og þetta sé einungis gert til að hækka verðið á diskunum. Plata fólk til að kaupa uppsóp úr klippiherberginu. En það má vel vera að fólk sé mér ósammála...
Mánudagur 2. desember
World most amazing videos
World most amazing videos er alveg stórmerkilegur þáttur að mögu leyti. Þarna eru sýnd oft á tíðum alveg ótrúleg myndbönd að seisilegum mannraunum. Engin virðist samt bíða bana á myndunum. Í þættinum sem sýndur var fyrr í kvöld voru m.a sýndar myndir frá Vestmannaeyjargosinu. Og hvílíkar lýsingar. Satcy Keetch notaði öll stóru lýsingarorðinn í orðabókini. Dramatíkin var í hámarki og eingu líkara en að gosið hefði byrjað í miðbæ Vestmannaeyja, og fólk væri hreinlega að grillast á hraunglóðinni. Svo eru sum atriðin sýnd ég veit ekki hvað oft, aftur og aftur. Ég ættla að prófa að telja við tækifæri.
Sunnudagur 1. desember
Í dag horfði ég á
Í dag horfði ég á knattspyrnuleik. Það er ekki neitt sem ég legg í vana minn, en þetta var nú einusinni leikur minna manna í Liverpool gegn erkifjöndunum í manchester unided. Ekki ættla ég að tíunda úrslitin enda voru þau mér ekki að skapi. Liverpool klúbburinn á Ísalndi stóð fyrir sýningu á leiknum í Nýjabíó hér á Akureyri, sem er einstaklega frábært frammtak. Það sem mesta furðu vakti var það að góður slatti að manchester aðdáendum var í salnum. Hvessu heimskt getur fólk eiginlega verið? Þetta var auglýst skýrt og greinilega sem samkoma LIVERPOOL aðdáenda. Ég veit að ég myndi ALDREI fara að mæta ef unined klúbburinn héldi svona skemmtun. Og ég leyfi mér að efast um að nokkur annar sannur Liverpool aðdáandi myndi gera soleiðis. Þeir meiga halda sín partý fyrir sína áhangendur. Ég læt sko EKKI sjá mig á slíkum samkomum, ekki frekar en að fara í messu hjá Gunnari í Krossinum


