Laugardagur 31. júlí

Reykingar

Reykingar eru eitt af þessum athöfnum sem ég botna hreynt ekki neitt í. Alveg frá því að ég var lítill polli þá hef ég vitað að reykingar eru mjög heilsuspillandi. Og þessvegna geri ég ráð fyrir að flestir aðrir hafi hliðstæða vitneskju. En þráttfyrir þetta þá byrjar fólk enn í dag á þessum ósóma. Fólk sem veit alveg uppá hár að það er að anda ofan í sig 4000 mismunandi eiturefnum, t.d blásýru og arsenikki.... Hvað er það sem veldur því að fólk gerir þetta? hvað er svona svakalega magnað við reykingar að fólk leggur heilsu sína undir? Persónulega þá hefur mig aldrei langað til að prufa að reykja, sé bara ekki nokkurn tilgang með því. Bæði er þetta meinóholt og kostar auk þess morðfé eða c.a 200.000 kr á ári, miðað við pakka á dag. Þannig að mig langar að vita hvað það er sem ég er hugsanlega að missa af, hvað er svona stórkostlega frábært við reykingar? Það hlýtur að vera eitthvað sem er alveg meiriháttar fyrst fólk eyðir sem svarar góðri tölvu árlega, auk þess sem fólk er að eyða heilsunni sinni....Hvað er svona æðislegt við reykingar???????

Sent af Nermal kl [16:15]

Fimmtudagur 29. júlí

Versló......

Jæja, nú er Verslunnarmannahelgin brátt að hefjast. Þá er siður að sletta ærlega úr klaufunum hjá sumum. En þessi skemtan á sér því miður sínar skuggahliðar. Gríðarleg áfengisdrykkja virðist vera órjúfanlegur hluti helgarinnar hjá allt of mögum. Kanski er ég bara svona mikill wanker en mér finnst nú aldrei ástæða til að vera að sulla í sig áfengi allann daginn. Ef ég drekk þá læt ég mér nægja að drekka á kvöldin, skemmta mér og fara svo að sofa. Er virkilega gaman að vera útúrdrukkinn alla helvítis helgina og muna jafnvel ekki heilu klukkustundirnar. Og svo eru menn jafnvel að hreykja sér af því hvað þeir voru ógeðslega fullir og drukku ógeðslega svakalega mikið. Ég hef nú aldrei fattað hvað er svona svalt við að gera sjálfan sig að atlægi vegna ölvunar. Og alltof oft leiðir ölvun til skelfilegra hluta, ofbeldis, nauðganna og jafnvel dauða. Það er allt í lagi að fá sér aðeins neðan í því en öllu má nú ofgera. Ég ættla allaveganna að láta mér nægja að fá mér smá bjór að kvöldi til, sjá svo til hvort farið verður á djamm. Efast um að mar fari á einhverjar veiðar... þær hafa ekki skilað neinu til þessa.

Sent af Nermal kl [20:42]

Þriðjudagur 27. júlí

Bilað........

Nú er bloggið mitt aftur komið upp.... en það hefur verið í lamaslysi undanfarnar tvær vikur. Og ýmislegt hefur jú skeð á þessum tíma sem vert hefði verið að skammast útaf. Alþingi var slitið eftir að hafa gert c.a ekki nokkurn skapaðan hlut. Dabbi dró bara allt til baka... allt í plati í rassagati hjá honum. Honum svelgdist svo heiftarlega á að þurfa að éta oní sig frumvarpið sitt að hann fékk gallblöðrubólgu, já og æxli í annað nýrað líka. Grey kallinn, hann ætti kanski aðeins að athuga sinn gang og fatta það að hann getur ekki rassnauðgað þjóðinni útí það óendanlega...... Jæja nóg um Dabba littla.... hann fer vonandi að hætta bráðum, veit að vísu ekki hvort Dóri Syfja er nokkuð skárri.....

Sent af Nermal kl [20:55]

Sunnudagur 11. júlí

Hryðjuverkaógnir?

Nú er tími skemmtiferðaskipana og þau koma hingað til Akureyrar eitt af öðru um þessar mundir. Það er ekkert nema jáhvætt um það að segja, fullt af túristum sem örugglega skilja eftir sig þónokkurn pening í bænum. En það sem mér finnst eiginlega móðgun við bæjarbúa og í raun ferðamennina líka er girðingin sem er umhverfis hafnarsvæðið þar sem skipin leggja að. Þetta ku vera vegna einhverra alþjóðlegra reglna um varnir gegn hryðjuverkum. En er vikilega einhver hryðjuverkaógn á Akureyri? Hvenær var síðast framið hryðjuverk hérna? Mér finnst að við ættum að geta boðið túristunum uppá það að hér sé öruggt að vera, öruggt og friðsælt. Staðreyndin er nefnilega sú að þessi forljóta girðing er með öllu óþörf. Það eru engir terroristar hérna. Kanski vitleysingjar eins og ég í versta falli.... Það þarf ekki að griða af hafnarsvæðið við erum engin illmenni hérna. En svona vil stundum ske þegar paranoja Bandaríkjana nær yfir allann heiminn...

Sent af Nermal kl [23:47]

Laugardagur 10. júlí

Smá pæling....

Stundum sér maður svona miða í bílgluggum sem stendur á "barn í bílnum". Ég er að pæla í hversvegna? Hversvegna þarf að tilkynna öllum um að það sé barn í þessum tiltekna bíl? Á maður að umgangast svona bíla á einhvern alveg sérstakan hátt? Ekki er það barnið sem er að aka bílnum... þannig að ég sé ekki neinn tilgang með því að hafa þessa tilkynningu í bílnum. Það er annar miði sem ég myndi mikklu fremur telja nauðsyn að hafa í bílum, en það er miðinn "gamlingi í bílnum" Það er nefnilega sorgleg staðreynd að margt eldra fólk er stórhættulegt í umferðinni.

Sent af Nermal kl [21:30]

Föstudagur 9. júlí

Jahá......

Ekki nóg með að þeir í varahlutaversluninni hafi tekið 200 kall fyrir að setja varahlutinn í umslag og pósta hann, heldur sendu þessir jeppar mér rangan hlut. Mig vantaði reim fyrir vökvatsýrið (bíllinn er núna með þokkalega þungu "vöðvastýri") en þeir sendu mér viftureim í staðinn.... Hvílíkir aulabárðar !!

Sent af Nermal kl [21:05] Komment [3]

Miðvikudagur 7. júlí

Were out of cheese...

Já, nú er verið að spara í mötuneitinu í vinnunni hjá mér. Og hvernig er það gert, jú núna fáum við engan ost lengur. Ekki myndi ég segja að úrvalið hafi verið beisið fyrir en þetta finnst mér full langt gengið í sparnaði. En heinhverstaðar verður kanski að klípa af. Þannig að það verður ekkert ristað brauð með osti í vinnunni :(

Sent af Nermal kl [22:05] Komment [1]

Döfulls OKUR!!!!

Já það er ekki logið uppá sumar verslannir að þar er okrað á kúnnanum. Ég pantaði á mánudaginn stýrisreim í bílinn minn frá umboðinu í Reykjavík. Þar kostaði hún 990 kr. Svo var pósturinn að koma með hana áðan, og póstkrafan var 1915kr. Það kostaði sumsé 925 kr að senda þennann smápakka hérna á milli. Það finnst mér vera ferlega mikið okur. Ég þurfti að senda manninn til baka með pakkann, því að ég í bjartsýniskasti reiknaði að hámarki með c.a 500kalli í sendingarkostnað... og átti því aðeins 1500 kall í lausafé. Það er nú andskoti hart þegar sendingakostnaðurinn... og sennilega eitthvað uppdiktað pökkunnar og ummsýslugjald er næstum jafn hátt og varahluturinn sjálfur.

Sent af Nermal kl [22:00]

Þriðjudagur 6. júlí

Barbabrella.....

Já enn er þessi ríkisstjórn við sama heygarðshornið.... Barbabrellur og skítareddingar í gangi alveg framm og aftur. Nú um daginn afturkölluðu þessir snillingar hið umdeilda fjölmiðlafrumvarp, ergo engin þjóðarathvæðagreiðsla. Svo var kastað framm "nýju" frumvarpi sem er nánast því alveg eins og hið gamla... Reyndar eru gerðar lítilsháttar breytingar, en engar stórvægilegar. Akkúrat þetta kallaði Björn Bjarnason brellu á sinni heimasíðu fyrir réttum mánuði. En svo þegar hann var ynntur eftir þessu nú í dag, þá var þetta alls engin brella, heldur nýtt frumvarp. Þetta er alveg dæmigert fyrir þessa labbakúta sem stjórna þessu Bananalýðveldi. Þó þetta sé kallað ´"nýtt" þá er þetta samt að langstæðstum hluta sama gamla óréttláta sértæka hefnigjarna frumvarpið hanns Dabba kóngs. Þetta er álíka gáfulegt og að ef ég myndi skipta um mottur í bílnum mínum og kalla hann þannig nýjan bíl.... Enn og aftur virðist þeim vera slétt sama um þá staðreynd að Ísland á að heita lýðræðisríki.....

Sent af Nermal kl [21:06]

Sunnudagur 4. júlí

Hestamanska? af hverju?

Nú er hestamannamót á Hellu. Ég heyrði að um 10.000 amnns hefðu mætt á svæðið, samt var mígandi rigning og leiðyndi. Og þá fór ég að spá í af hverju fólk er yfirleitt að stunda þetta sport. Prílandi uppá hrygginn á einhverri aumingjans skeppnu og láta skeppnukvikindið hlaupa með sig um allar koppagrundir.... Vægast sagt þá finnst mér þetta miður gáfulegt. Það eru jú 100 ár síðan að fyrsti bíllinn kom hér til landsins og þannig er hesturinn orðið löngu úrelt trasport. Svo hefur þetta svo marga galla, það er t.d vond lykt af hestum. Þeir skíta... og það þarf að fóðra þá a.m.k einusinni á dag ef mér skátlast ekki. Hestar hafa einungis einn kost sem bíllinn hefur ekki, það er hægt að éta helvítis bykkjuna en ekki bílinn. En annars er allt í mínus fyrir hestinn, hann hefur enga miðstöð, engan geislaspilara og kemst auk þess mun hægar yfir en bíllinn.. svo bara fátt eitt sé nefnt. Þannig að ég skil ekki af hverju menn eru að paufast með þessa bykkjuskratta nú á 21. öldinni. Kanski verð ég krossfestur af einhverjum hestamanni sem les þetta blogg... en ég verð bara að taka því

Sent af Nermal kl [18:31]