Fimmtudagur 30. september

Frammsókn með skít í brókum...

Það er alltaf að sannast betur og betur að Frammsóknarmenn ganga að stórum hluta ekki alveg heilir til skógar. Nú nýverið var Kristinn H. Gunnarsson útilokaður frá öllum nefndarstörfum og þessháttar. Og hversvegna? jú Kiddi var óþægur strákur, Kiddi gerði ekki eins og Stóri Geitapabbi (Halldór Ásgrímsson) sagði honum að gera. Kristinn gerðist nefnilega svo frakkur að fara eftir eigin sannfæringu í fjölmiðlamálinu svokallaða. Og í "lýðræðisflokki" er það víst algerlega bannað. Menn skulu sitja, standa og skíta eins og flokksforustan skipar fyrir um. Enn og aftur sannast að þar sem tveir fávitar koma saman, þar er frammsóknarflokkurinn.........

Sent af Nermal kl [22:22]

Skipun hæstaréttadómara..

Nú er allt að verða spinnegal vegna skipunnar Jóns Steinars Gunnlaugsonar í embætti hæstaréttardómara. Ég tek það framm stax að ég dreg hæfni Jóns ekki í efa, hann er snjall kall og örugglega meiriháttar lögfræðingur. EN... spurningin er hinnsvegar hvort hann sé hæfasti umsækjandinn. Samhvæmt úrskuðði frá hæstarétti er hann það ekki, og ekki einusinni næst hæfastur. Jón er svarblár sjálfstæðismaður og auk þess aldavinur Davíðs Oddssonar. Þannig að vafinn er sá hvort hann hefur fengið djobbið út á það? Og þá hvort að störf hanns fyrir hæstarétt komi til með að litast af hollustu við D-listan?

Sent af Nermal kl [21:01]

Þriðjudagur 28. september

Tveir góðir brandarar....

What is God?

A nine year old boy asks his mother, "Is God male or female?"
After thinking for a moment, his mother responds, "Well God is both male and female."
This confuses the boy, so he asks, "Is God black or white?"
"Well," she says, "God is both black and white."
This really confuses the boy, so he asks, "Is God gay or straight?"
Feeling a bit out of her depth, but wanting to be consistent, the mother answers, "Honey, God is both gay and straight."
At this the boy's face lights up with understanding and he triumphantly asks...
"Is Michael Jackson God?"


Bílanöfnin geta þýtt ýmislegt.....

AUDI
Accelerates Under Demonic Influence

BMW
Bought My Wife

BUICK
Big Ugly Indestructible Car Killer

CHEVROLET
Can Hear Every Valve Rap On Long Extended Trips

DODGE
Drips Oil, Drops Grease Everywhere

FIAT
Fix It All the Time

FORD
Fast Only Rolling Downhill

GM
General Maintenance

GMC
Gotta Mechanic Coming?

HONDA
Had One Never Did Again

HYUNDAI
Hope You Understand Nothing's Driveable And Inexpensive...

MAZDA
Most Always Zipping Dangerously Along

OLDSMOBILE
Overpriced, Leisurely Driven Sedan Made Of Buick's Irregular Leftover Equipment

SAAB
Swedish Automobiles Always Breakdown

TOYOTA
Too Often Yankees Overprice This Auto

VOLVO
Very Odd Looking Vehicular Object

VW
Virtually Worthless


Sent af Nermal kl [21:54]

Mánudagur 27. september

EGÓ

Já á laugardagskvöldið fór ég á djammið. Fór á magnaða tónleika með Egó. Og ég verð bara að segja að ég hef sjaldan skemmt mér eins vel í fötum. Það var alveg stappfullur Sjallinn og þvílík þvaga á gófinu. Egó voru alveg í myljandi stuði og Bubbi performaði af stakri snilld. Ótrúleg orka í manni sem komin er fast að fimmtugu. Þeir renndu að sjálfsögðu í gegnum sína bestu smelli s.s Stórir strákar fá raflost, Meskalín og Fjöllin hafa vakað. Svo tóku þeir líka Ísbjarnarblúsinn og Hírósíma, sem er eins og flestir vita Utangarðsmannalag. Drykkjan hjá manni var í lágmarki en það skipti engu, maður naut sín í botn og söng með. Bara high on fun. Eina sem mér fannst vera galli var sándið. Hljóðkerfið í Sjallanum er ekki nógu gott. Hávaðinn var jú vel meira en nógur, en tóngæðin voru ekki að sama skapi nógu góð. Virðist vera trend til að spenna græjurnar of mikið. Ég vona að ég hafi ekki skemmt í mér heyrnina með þessum tónleikum, fékk svo svakalegar hellur fyrir eyrun og hef ekki enn losnað fullkomlega við þær...........

Sent af Nermal kl [20:27]

Laugardagur 25. september

Hulin ráðgáta..

Eitt af því fjölmarga sem er mér algerlega hulin ráðgáta er þegar fólk fer út í eiturlyfjaneyslu. Jafnvel fólk sem er vel mentað hefur hlotið frábært uppeldi og lífið blasir við.... Fólk hefur mjög margt horft uppá systkyni, vini og ættingja misstíga sig á þessari glötun sem eiturlyf eru. Verða að aumingjum sem ekkert geta og jafnvel drepa sig á þesum viðbjóði. En samt....en samt er prufað. Eins og fólk haldi að það geti stjórnað þessu. En málið er að fólk veit ekki hvort það getur hætt þegar það vil. Og þegar það kemst að því hvort það sé hægt að hætta eða ekki er oftar en ekki alltof seint að gera eitthvað. Þú ert kominn útí fenið... Ég hef aldrei neytt eiturlyfja og ættla mér aldrei að gera það. Ég er nú nógu andskoti vitlaus fyrir. Sumir tala um forvitni... en forvitninn drap köttinn segir máltækið. Og svo er þrýstingur frá vinum ansi vinsæl útskýring. En ef vinur manns býður manni eiturlyf þá er það ekki merkilegur vinur. Frekar vil ég vera vinalaus og með heilann í lagi en að vera umkringdur uppdópuðu heiladauðu liði. Ég ættla rétt að vona að ef ég einhverntíma eignast börn ( as if ) þá séu þau nógu skynsöm til að sneiða frammhjá þessari einstefnu sem dópið er........ Þetta er sennilega svipað og að aka bíl á mikilli ferð, voða voða gaman en svo kemur eitthvað uppá og allt fer til andskotans............ Getur jafnvel valdið varanlegum skaða eða dauða

Sent af Nermal kl [18:17]

Fimmtudagur 23. september

Skil ekki.........

Það kemur stundum fyrir hjá mér einmanna karlmanninum að ég horfi á erótísku myndirnar á Sýn. Þetta eru nú ekki hardcore klámmyndir en well.. það er nakið kvennfólk í þeim. Einn atriði hef ég séð oftar en einu sinni, atriði sem ég ekki alveg skil. Það er nærbuxnasleiking. Karlmenn, já eða konur fara niður milli fóta konunar og fara að sleikja nærbuxurnar hennar....... Tek það framm að hér er ekki um að ræða nærbuxur sem hægt er að borða. Ég viðurkenni alveg reynsluleysi í þessum efnum... og ýmislegt á ég eftir að prufa, en ég hélt að maður ætti nú að klæða dömuna úr nærbuxunum áður en maður fer að nota tunguna á dýrðina. Ég myndi allaveganna gera það. Efast líka um að daman myndi fíla það að þurfa að fara aftur í útslefaðar nærbuxurnar sínar......

Sent af Nermal kl [22:43]

Miðvikudagur 22. september

Írak....

Já ekki eru nú fagrar fréttirnar sem berast frá Írak. Daglega berast ljótar myndir af særðu og jafnvel sundurtættu fólki. Blóð hörmungar og viðbjóður. Og þetta stríð sem átti að bæta allt svo mikið í Irak. Hermönnunum átti að fagna, írakar falla á kné og kyssa stígvél hinna heilögu alvöldu Bandaríkja. En ekki tókst alveg svo vel til. Mannán og sprengjuárásir og önnur óáran er daglegt brauð. Fátt virðist líka benda til að þetta sé í rénun. Hvað er réttlætanlegt að "friðurinn" kosti mörg mannslíf? 25 þús? 100 þús? milljón? Og hvað segja leiðtogar hinna staðföstu ríkja? Ríkjana sem stóðu að þessari mjög svo vafasömu innrás í Írak? Halldór Ásgrímsson finnst mér vera kominn alvarlega með skítinn í buxurnar í þessu efni. Hann vil nú helst að allir gleymi bara fortíðinni í Írak.. Gleymi bara öllum sundurtættu börnunum. En ekki gleyma að við náum Saddam... Gleyma að ástæðan sem gefin var fyrir stríðinu, já og Halldór skreið uppí miðjan ristil á George W(ar) Bush til að samþykkja.... Saddam á svo mikið af efnavopnum og hann getur beitt þeim á 30 mín.... Og hvað hefur fundist? Jú einhverjar örlitlar leifar. Eða eins og sagt er á góðri íslensku EKKI RASSGAT!!!!! Ég var frá upphafi mótfallinn þessu stríði. Strax í upphafi lagðist þetta illa í mig. Og það kom á daginn..... Skíturinn lenti í viftunni og það með heljarkrafti! Ég gæti sjálfsagt haldið áfram að bölsótast út í þetta viðbjóðslega stríð út í það óendanlega. Einnig að hneikslast á íslenskum ráðamönnum að láta draga sig á asnaeyrunum til að styðja þennann andskota. Hefur Halldór einhver ráð til að stoppa þetta? Hefur Davíð ráð???????

Sent af Nermal kl [22:11]

Mánudagur 20. september

Leyndarmál Davíðs

Enn er ég að uppgötva leyndarmál í samfélaginu. Leyndarmál svo ótrúleg að ekki er hægt að trúa þeim. En það er haft eftir mjög svo áræðanlegum heimildum að Davíð Oddsson sé ekki maður í raun og veru, heldur geimvera. Það bara hlýtur að vera. Einhverra hluta vegna kýs þjóðin hann aftur og aftur sama hvað hann traðkar á henni. Þar notar hann sérstaka dáleyðslugeisla sem hann sendir úr krullunum sem hann er með á hausnum. Sendir þær t.d í gegnum sjónvarpið í áramótaávarpinu. Sem betur fer eru c.a 60% þjóðarinnar ónæmur fyrir þessum hættulegu geislum, enda er fylgi sjálfstæðisflokksins vanalega í kringum 40% En svo vissi hann að ég var í þann veginn að fletta ofan af honum þannig að hann eftirlætur stólinn til félaga síns Halldórs Ásgrímssonar. En auðvitað tók hann utanríkisráðuneytið.... Til hvers? jú til að geta farið meira útúr landinu án þess að vekja gunsemdir. En ekki fer hann til útlanda, ó nei.... hann fer til sinnar heimaplánetu Xdion 8 og safnar þar kröftum til frekari illskuverka, jafnvel reynir hann að breyta dáleiðslugeislunum og gera þá öflugri, jafnvel svo öfluga að allir kjósi Sjálfstæðisflokkinn.... eða kanski allir nema ég.........

Sent af Nermal kl [22:26]

Sunnudagur 19. september

Eiríkur nöldrari

Nú virðist fátt geta komið í veg fyrir enn eitt kennaraverkfallið. Auðvitað eiga kennarar að fá góð laun, en mér finnst samt ekki að þeir einir stétta eigi að fá meiri hækkanir en aðrir. Samúð mín með kennurum og kjaradeilu þeirra minkaði einnig töluvert þegar Eiríkur Jónsson formaður kennarasambandsins fór að agnúast útí að Íslandsbanki hyggðist aðstoða foreldra við að sjá um börnin þeirra. Síðast þegar ég vissi þá var deilan milli kennara og ríkisins... ekki milli kennara og barnana eða foreldra eða Íslandsbanka. Mér finnst þetta lofsvert frammtak hjá Íslandsbanka og sína að þeim þyki mikið til síns starfsfólks koma. Myndi þá Eiríkur kanski eipa ef ég færi að taka að mér barnagæslu í verkfallinu?

Sent af Nermal kl [01:19]

Miðvikudagur 15. september

Davíð kveður

Jæja þá er loksins búið að skipta um forsætisráðherra. Davíð Oddson hefur verið í forsætisráðuneytinu eins og býfluga í trélími alltof lengi. Í næstum 14 ár hefur hann drottnað þar. Ástandið í þjóðfélafinu er nú ekki slæmt eftir kallinn, eini gallinn er bara að þessi hagsæld hefur ekki nýst þeim sem mest þurfa á því að halda. Ennþá er skattkerfið alveg massa óréttlátt gagnvart þeim lægst launuðu. En hvað um það, ekki eins og Davíð svíði það. Honum er pottþétt alveg drullusama. Og það er spurning um hvort einhver breyting verður með tilkomu Halldórs Ásgrímssonar í forsætisráðuneytið. Hann og Davíð virðast nú nær alltaf vera alveg á sömu línu í flestu. Manni hefur jafnvel fundist að Halldór standi bara og sitji eins og meistari Davíð vil. Ein breyting verður þó væntanlega. Áramótaávarpið verður sennilega ennþá leiðinlegra. Davíð hefur þó smá húmor og kemst stundum sniðuglega að orði. Ég er mest hræddur um að ef fólk hlusti á ávarpið við matarborðið á galmlárskvöld þá sofni það ofaní diskana. Og ef fólk situr við sjónvarpið er líklegast að það sofni við malandan í Halldóri og sofi af sér áramótin. Þannig að ef flugeldasýning kvöldsins verður með snautlegum hætti þá er Halldór búinn að svæfa alla skaðræðis þjóðina....

Sent af Nermal kl [21:46]

Sunnudagur 12. september

Er ég svona slæmur?

Það er alveg morgunljóst að gæfa mín í kvennamálum ríður ekki við einteyming. Nú fyrir ekki svo ýkja löngu síðanfór ég að spjalla við stúlku hér á Akureyri. Fyrst í gegnum private.is en síðan í gegnum MSN. Mér fannst persónulega fara bara ágætlega á með okkur. Það var nú samt ekkert hözzl í gangi en samt fín stemming að mér fannst. Allaveganna gátum við spjallað löngum stundum á MSN um allt og ekki neitt. En svo eins og gengur og gerist fóru spurningarnar að verða persónulegri. Við komumst að því að við höfðum verið skólafélagar í Gagganum. Og út frá e-mailinu mínu þá uppgvötaði hún hver ég væri. Og það var ekki að sökum að spyrja....... hún hvarf!! Sagði bara pent bless og ég hef ekki séð hana nema offline á MSN hjá mér. Ég veit alveg að ég var ekki beint hot þegar ég var í Gagganum, hef örugglega þótt alveg agalegur lúði. En ég hef nú aðeins breyst...... En það virðist ekki hafa komið þessari ágætu stúlku í hug. Ég óska henni bara alls hinns besta í frammtíðini. En ég verð samt að viðurkenna að mér sárnaði aðeins þessi meðferð sem ég fékk :(

Sent af Nermal kl [19:58]

Föstudagur 10. september

Halldór Laxnes?

Ekki eru menn á eitt sáttir um að Halldór Laxnes hafi í raun og sann skrifað allar þær bækur sem honum eru eignaðar. Einhverjum bókum ku hann hafa skilað inn á handskrifuðum blöðum. Hver sá sem hefur séð rithönd Halldórs veit að hún er með öllu ólesanleg. Þannig er hægt að leiða að því líkum að þeir sem hafa prófarkalesið og búið bókina undirm prentun hafi hreynlega þurft að giska á hvað kallinn var að pára. Þannig að það er allt eins líkegt að einhver óþekktur prentari hafi skrifað þessar bækur sem m.a öfluðu Halldóri Laxnes bókmentaverðlaunum Nóbels á sínum tíma. Þetta er nottlega ekki neitt annað en skandall..........

Sent af Nermal kl [23:40]

Var í fríi

Ég tók mér frí í tilefni dagsins. Ágætt að lengja aðeins í helgini svona fyrst maður á slatta af frídögum eftir. Ég notaði tækifærið t.d til að fara með eðalvagninn minn í skoðun. Og auðvitað stóðst hann skoðin með glæsibrag. Engin athugasemd og komin blár 05 miði á númeraplötuna. Ég var alveg svakalega ánægður að hann komst í gegn. Það er nebblega alveg svakalega dýrt að láta gera við.........

Sent af Nermal kl [23:26]

Afmæli í dag

Í dag á ég afmæli....

Sent af Nermal kl [23:19]

Fimmtudagur 9. september

Latibær blómstrar

Það er ekki að spyrja að honum Magga Skef. Latibær er að brillera í Bandaríkjunum. Gula Pressann hefur það eftir áræðanlegum heimildum að í bigerð sé bíómynd um fyrirbærið. Og samhvæmt sömu heimildum er þegar farið að ráða í hlutverkin. Hlutverk Íþróttaálfsins leikur Jackie Chan, Solla Stirða verður leikin af Angelinu Jolie. Ekki er búið að ganga frá hver leikur Glanna Glæp.. en viðræður ku standa yfir við Arnold Schwartzenegger, Ron Jeremy og Gene Simmons um hlutverkið. Meiri fréttir af því síðar............

Sent af Nermal kl [21:01]

GULA PRESSAN

Ég er að spá í að fara að skrifa fréttir hér í bloggið mitt. Óvíst að nokkur brú sé til í þessum fréttum mínum... en hverjum er ekki sama

Sent af Nermal kl [20:52]

Miðvikudagur 8. september

Xið og seXið

eitt skil ég ekki alveg. Það gæti kanski helgast af því að ég hef áldrei verið í sambandi. Og á þannig ekkert X enga fyrrverandi. En þar liggur mín pæling. Ég stóð í þeirri meiningu að fyrrverandi væri fyrrverandi og allt búið þar á milli. En svo virðist ekki alltaf vera. Fólki virðist finnast það í besta lagi að fara saman í rúmmið. Ofrat en enusinni hefur maður heyrt um að stelpur séu að láta Xið sitt ríða sér ( afsakið orðalagið ) Vá... þetta finnst mér eins og að selja beljuna en fá samt mjólkina. Já og það án þess að þurfa að fóðra hana. Kanski er ég bara svona skrítinn...........

Sent af Nermal kl [22:02]

Sunnudagur 5. september

Hörmungar...

Þær eru virkilega hræðilegar fréttirnar sem berast frá Inkusetíu í Rússlandi. Þar féllu í valinn hátt í 400 manneskjur. Þar af voru fjöldamörg börn. Svona lagað fær mann til að velta mannlegu eðli fyrir sér. Hvað fær menn til að ráðast inn í skóla og taka fólk sem gísla? Hefur það einhverntíma í veraldarsögunni gefið góða raun að halda fólki í gíslingu? Ég minnist nú ekki þess svona í fljótu bragði. Ég skil það ekki að einhver geti í krafti einhvers pólitísks kjaftæðis haft það í sér að drepa mann og annan. Drepa saklaus börn. Sum barnana sem nú lyggja á sjúkrahúsi eru með stungusár. Ég fatta ekki þá óstjórnlegu mannvonsku sem þarna liggur að baki. Að stinga lítið saklaust barn til bana vegna einhverra málefna. Það er ekkert málefni sem réttlætir svona villimensku. Svo virðist jafnvel stefna í það að þessi atburður leiði til þjóðernisátaka... og þá með enn meiri blóðsúthellingum og hörmungum. Þetta er stundum svo vitskert veröld.............

Sent af Nermal kl [22:28]

Útskýring 21. aldarinnar

How was I born?

SON SAYS: Daddy, how was I born?

DAD SAYS: Ah, well, my son, one day you will need to find out anyway...

Mom and dad got together in a chat room on MSN. Dad set up a date via e-mail with your mom and we met at a cybercafe. We sneaked into a secluded room, and then your mother downloaded from dad's memory stick. As soon as dad was ready for an upload, it was discovered that neither one of us had used a firewall. Since it was too late to hit the delete button, nine months later the blessed little virus appeared. And that's the story.


Sent af Nermal kl [17:24]

Laugardagur 4. september

Að verða fullsaddur..

Ég er alveg að verða kominn með ógeð fyrir vinnunni minni. Ekki nóg með að maður sé mætandi kl 5:30 dag eftir dag, sé á lúsaleunum og sé með afskaplega stressaðan yfirmann, heldur fær maður varla hlífðarfatnað við hæfi. Þarna er skápur þar sem hlífðarfatnaðurinn er geymdur. Samfestingur er það sem ég nota. Og þar sem ég er í hærri kantinum get ég ekki notað nema stæðstu númerin. Og svona til að hafa galla til skiptana þá merkti ég tvo stóra galla. Skrifaði nafnið mitt stóru letri aftan í hálsmálið. Þá er ég að meina svona leturstærð 38 eða svo. Alveg auðsætt hverjum sem er. En ekki fékk ég samt að hafa hann í friði. Einhver þurfti akkúrat að nota hann. Mér finnst það helvíti hart ef ég þarf að þvo gallana mína sjálfur til að mæta kröfum fyrirtækisins um hreinlæti. Sumir virðast að vísu geta fengið galla með nafninu sínu ísaumuðu, en ég veit ekki hverjum ég þarf að ríða til að fá þannig..........

Sent af Nermal kl [20:30] Komment [1]

Fimmtudagur 2. september

Reynsluakstur.

Á sunnudaginn reynsluók ég ansi athygliverðum bíl. Toyota Prius. Það er margt ansi sérstakt við þessa bifreið. Aðallega er sérstaða hans að hann er í raun með tvær vélar. Annarsvegar bensínvél og hinnsvegar rafmótor. Útlit bílsins er einnig sérstætt, samt án þess að vera ljótt. Ég settist um borð í bílinn, ásamt Toyota sölumanni. Innréttingin er sérstæð því mælaborðið er með mjög óhefðbundnu sniði. Nálægt miðju er t.d upplýsingaskjár sem stjórnar í raun flestu er viðkemur bílnum, t.d hljómfluttningstækjum og þessháttar. Honum er startað með því að stinga littlu spjaldi í þartilgerða rauf í mælaborðinu. Svo er ýtt á start. Og það sem er óvanalegt.... það heyrist ekkert í bílnum. Þá er einungis rafmótorinn í gangi. Í hægum akstri líður hann nær hljóðlaust áfram. Afar skrítið. Sennilega ekki draumabíll kraftpústhnakkans. En svo þegar hraðin eykst kemur bensínvélin inn. Og hún er bara þokkalega spræk. Allaveganna rann bíllinn upp í 85 á stuttri stund. Ég held að besti kostur þessa bíls sé án efa eyðslan. Sölumaðurinn tjáði mér að meðaleyðslan yfir þessa sýningarhelgi hafi verið rúmmlega 5 lítrar á hundraðið. Það er mjög gott, sérstaklega í svona óhaghvæmum akstri eins og reynsluakstri, þar sem fólk er ekki vant bílnum og er að prufa að gefa snöggt inn og þannig. Það er ekki laust við að mig langi þónokkuð í svona bíl, en verri sagan er að hann kostar næstum þrjár milljónir. Ég myndi leggja það til að umhverfisráðuneytið myndi sýna gott fordæmi og kaupa svona bíl fyrir embættið.

Sent af Nermal kl [20:37]