Mánudagur 31. janúar
GLEÐI GLEÐI :)
Já mikið svakalega varð ég glaður í gær þegar ég las á mbl.is að hljómsveitin Iron Maiden væri á leið til landsins. Verða með tónleika í Egilshöll 7. júní næstkomandi. Þetta er atburður sem ég má einfaldlega alls ekki missa af. Maiden er mín uppáhalds hljómsveit og búinn að vera það til margar ára. Enda eru hér mikklir snillingar á ferð og valin maður í hverju rúmi. Það eru ekki margir sem geta sungið eins og Bruce Dickinson það er alveg öruggt. Ég skemmti mér alveg gríðarvel á Deep Purple síðasta sumar en þetta er mikklu stærra og fjölmennara. Mikið af græjum á sviðinu... t.d koma þeir með "EDDIE" robót sem ku gera einhverjar svakalegar brellur. Ég hef einungis séð þá kappa á myndbandi og það er frábært show sem fólk getur búist við.
Í mogganum í dag var samt giska undarleg grein um þetta, sennilega ekki skrifuð af sérfræðingi í Iron Maiden. Þar voru tvær rangfærslur sem ég tók eftir. Í fyrsta lagi var sagt að hljómsveitin væri rúmmlega 30 ára gömul. Maiden var stofnuð 1976 þannig að ég skil ekki alveg þann reikning. Svo var sagt að þeir væru leðurklæddir og síðhærðir. Jú vissulega eru einhverjir þeirra síðhærðir, en ekki allir. Söngvarinn Bruce Dickinson var síðast þegar ég sá hann á mynd með knallstutt hár, og bara settlegur. Leit ekki út eins og besti metalsöngvari í heimi..........
Handboltinn
Ég get ekki sleppt því að kommenta örlítið um íslenska handboltalandsliðið á HM í Túnis. Þeir voru ekki alveg að standa sig þar strákarnir. Unnu að vísu tvo leiki en það var gegn Alsír og Kúvæt sem seint teljast stórveldi á handboltasviðinu. Á köflum spiluðu þeir jú vel, en það virtist vera nær ógerningur að spila heilan leik vel. Rússaleikurinn er sorglegt dæmi um það. Lentu fimm mörkum undir en náðu með eljusemi að jafna og allt stefndi í svakalega spennandi síðari hálfleik. EN þá bara kúkuðu þeir lengst uppá bak... held að þeir siðhærðustu hafi verið með klepra í hárinu. Það bara gekk ekki rassagat. Og auðvitað steinlá liðið. Leikurinn við Slóvena var alveg sér á parti. Alger klaufaskapur að ná ekki jafntefli þar. En það er kanski ekki við því að búast að árangurinn verði meiriháttar þegar liðið er næstum allt nýtt.
Aðstæðurnar í höllinni í Túnis voru líka til háborinnar skammar, ekki hægt að bjóða uppá svona á heimsmeistaramóti. Hitastigið var víst einhverjar örfáar gráður sem er alveg óskiljanlegt í landi sem er ekki langt frá miðbaug. Auðvitað er nauðsynlegt að þessir ungu strákar fái sína reynslu. Vona að það gangi betur næst.
Miðvikudagur 26. janúar
Börkur Blóðöx
Gaurinn sem fór inn á A.Hansen og gerði tilraun til að höggva mann í herðar niður meö öxi var nú nýverið dæmdur í 7,5 ára fangelsi. Hann varð víst ansi hissa á hve þungur dómurinn var. Og kærastan hans fékk víst áfall... Persónulega þá finnst mér þessi dómur síst vera of þungur. Maðurinn réðst að manni og hjó í höfuð honum með ÖXI!!!!! Svo var hann líka kærður fyrir sjö aðrar líkamsárásir! Bjóst hann virkilega við að fá bara smá slapp á handabakið og skamm skamm ekki gera aftur meðferð? Það dugar ekkert að taka á svona ofstopamönnum með einhverjum silkihönskum. Það er margsannað að þessi gutti er hættulegur umhverfi sínu.
Svo er annað sem ég velti fyrir mér. Hvað er þessi stelpubeygla að pæla að vera með svona klikkhaus? Þetta er margdæmdur ofbeldismaður... Og virðist samhvæmt öllu vera líklegur til ótrúlegustu hluta. Það virðist vera einhver óskyljanlegur tendens hjá sumu kvennfólki að sækja í svona stórglæpamenn. Í minni einfeldni hélt ég nú að það væri turnoff að maðurinn væri berjandi og hálf drepandi aðra menn hægri vinnstri... en ekki skil ég kvennfólk
Föstudagur 21. janúar
*ÆL*
Jæja þá er "blessaður" þorrinn runninn upp með þeim viðbjóðslega mat sem ´honum fylgir. Ég hef blessunnarlega sloppið við að pakka þessu súra drasli en engu að síður er lyktin til saðar, og hún er rúmmlega nóg til að mann langi að gubba. Enda er lyktin ekkert ósvipuð og ælulykt. Ekki skil ég hvernig nokkur mannvera getur látið sér detta það í hug að éta eistu... ég meina þetta eru eistu.. brundframmleiðsluunit!!!!! er til eitthvað mikið viðbjóslegra en það? tæplega. Sá sem fann uppá þeim ósóma að skera eistun af hrútsræflinum hlýtur að hafa liðið verulega mikin skort. En allaveganna ef kona borðar hrútspunga súra með góðri lyst, þá hefur hún enga afsökun fyrir að kyngja ekki :). Hákarlinn er líka fyrirbrygði útaf fyrir sig. Ástæðan fyrir því að hann lyktar eins og útmigið húsasund á sólríkum sunnudagsmorgni er sú að hann hefur engin nýru. Í stað þess þá fer þvagefnið út í hold hákarlsins. Fólk er sumsé að éta hákarlahland í föstu formi. Ef ég tek og míg ýfir matinn hjá einhverjum þá þætti það hinn argasti viðbjóður og matnum yrði umsvifalaus hent...en svo er fólk að borga háar fjárhæðir fyrir útmigin fisk... Alveg með öllu óskyljanlegt!!!
Fimmtudagur 20. janúar
Jing Jang
Nú nýverið byrjaði þátturinn Jing Jang á Popp TíVí. Er á sama tíma og 70 mínútur voru. Umsjónamaður þáttarins er hin svokallaði Ofur Hugi sem var oft með einhver biluð stunt í 70 mín. Og ég verð að segja að þetta eru nú rýr bítti. Hugi blessaður hefur enganvegin hæfileika til að búa til gott sjónvarpsefni. Það er að vísu einhver feitur gaur með honum, en sá hefur enga hæfileika heldur. Þetta er einhverkonar spurningaþáttur og er sem slíkur afskaplega þunnur og hallærislegur. Samt ekki eins slæmur og viðbjóðurinn "landsins snjallasti" en ekki langt frá. Ég ættla rétt að vona að Popp TíVí hafi vit á því að taka þessa hörmung sem fyrst af dagskrá....
Miðvikudagur 19. janúar
Subbur.
Eitt af því sem gremst mér mjög er umgangur sumra einsaklinga við brauðbari í verlsunnum. Sjálfur nota ég þartilgerða töng til að sækja mér það sem mig langar í. En ekki eru allir þannig. Alltof margir vaða með puttana í brauðið. Það er virkilega ógeðslegt. Engin veit hvar fólk var síðast með puttana... kanski var fólkið síðast að bora í rassgatið á sér... ekki beint kræsilegt það. Svo er fólk jafnvel að leyfa krökkunum sínum að vaða með lúkurnar í brauðkassana.. Nei fólk er ekkert of gott til að grípa áhöldin og nota þau. Og endilega... ekki láta 3ja ára krakka með hor vaða í draslið.....
Laugardagur 15. janúar
Tvo BMW takk.....
Um daginn fóru Dabbi og Dóri út að versla. Þá vantaði svo sárlega bíla. Og það var komið við hjá B&L og þar voru verslaðir tveir BMW 730 Li bílar. Hvor um sig á tæpar 9 milljónir. Ég er að spá í einu... Af hverju þurfa ráðherrar nauðsynlega að aka um á svona rándýrum bílum? Er rassgatið á þeim eitthvað merkilegra en á öðrum? Er virkilega ekki hægt að komast af með eitthvað örlítið ódýrara en bíl uppá 9 milljónir? Það er t.d hægt að fá mjög fínan Skoda á c.a 1/3 af þessu verði. Það er bíll sem er með nægilegu plássi afturí fyrir mig. Og þyki ég nú ekki beint vera sá fyrirferðarminsti í bransanum. Það er líka ansi hagstætt verð á amerískum bílum núna... Crysler 300 C Hemi, kostar tæpar 4 millur. Nei mér finnst þetta algert bruðl að við skattborgarar þurfum að punga þessu út undir déskotans rassgötin á þessum fitubollum. Þeir eru á nógu andskoti háum launum til að geta keypt sér sína eigin bíla. Svo geta þessir ræflar ekki einusinni ekið þessum bílum sjálfir, heldur þurfa þeir einkabílstjóra líka. Ég held að ríkið verði að breyta sínum gerðum. Reka alla einkabílstjórana og svo má kaupa einn Daewoo Matiz á hvern ráðherra..... 12 stykki kosta aðeins meira en einn bimmi!!! Og svo má kanski ganga aðeins lengra í sparnaði... láta þá bara hafa græna kortið. Þá fá þeir bílstjóra og allt.... geta þá sullað í sig í einhverri ráðherraveislunni. Gula limman.... fyrir alla :)
Föstudagur 14. janúar
Vesenismorgun
Morgunin hjá mér var þvílíka vesenið. Ég lagði af stað í vinnuna rétt fyrir kl 7. EN svo þegar ég var kominn niður á Glerárgötu þá dó bíllinn. Bensínlaus. En það var stutt á næstu bensínstöð þannig að í bjartsýniskasti ættlaði ég að ýta bílnum síðasta spottann. En það var alveg rúllandi hált þannig að ég gat enganvegin komið dýrinu af stað. Samt er þetta ekki þungur bíll. Þá kom að kona ein sem bauðst til að kippa í bílin og þessi elska dró mig á bensínsöðina. Takk fyrir kærlega. Alltof lítið af svona almennilegu fólki í veröldini. En svo var mínu veseni ekki lokið. Ég setti 1000 kall í sjálfsalan og ýtti á þá takka sem þurfti. Og svo fór ég að bíða... og bíða. Ekki vildi kvikindið afgreiða mig um bensín. Þá prufaði ég kortið mitt... en þá kom AFGREIÐSLU HAFNAÐ! Er samt í 100% skilum með mitt kort. En ég sá að það voru strákar mættir í stöðina þannig að þeir kveiktu á dælunum fyrir mig og stelpu sem kom stuttu á eftir mér... á síðustu bensíndropunum. Jæja, ég fyllti tankin svona fyrst ég var byrjaður á annað borð. Og svo ætlaði ég að drífa mig í vinnuna. EN þá... ekki var öllu veseninu lokið enn. Bíllinn fór ekki í gang, straumlaus :(. Ekkert start. Þannig að ég þurfti að ýta kvikindinu frá bensíndælunum og aðeins afsíðis. Svo labbaði ég restina í vinnuna. Kom 45 mínútum of seint. Eftir vinnu þá fékk ég Birgittu systir til að gefa mér start og þá rauk kerran í gang. Lét tékka á geiminum og fékk þann úrskurð að hann væri orðin frekar slappur, hann er nú líka búinn að vera í bílnum í rúmmlega 5 ár.
Ég er fúll!!
Já ég er hundfúll vægast sagt. Af hverju? Jú það er búið að taka einu stöðina sem ég nenni að hlusta á úr loftinu. Hér er ég að meina X-ið. Sú stöð var fjærlægð ásamt Skonrokk og Stjörnunni. Nú er sumsé engin útvarpsstöð á Íslandi sem spilar rokktónlist. Það er alveg margsannað mál að hér á Íslandi er mjög stór hópur af rokkaðdáendum. Sönnunnin er gríðarleg sala á rokktónleka hér á landi. Það virðist allt þannig seljast upp á no-time. En þessir jeppar eru búnir að drepa rokkið. Gert í sparnaðarskyni... svona til að geta elft píkupoppið á FM957 og Adult cotnerporari dæmið á Bylgjunni. Hvorug þessara stöðva spilar rokk. Og svo til að "spara" þá ættlar Í.Ú.. og Vodafone eða 365 eða hvern fjandan sem þetta kompaní heitir í dag að hleypa af stokkunum nýrri útvarpsstöð.... Útvarpsstöð sem verður bara með talmáli.... Woopdtee doooo Það vita nú allir hvað Útvarp Saga gengur frábærlega. Ef fólk vil talmál þá er Rás eitt.... Bylgjan síðdegis og að ég held Rás 2 síðdegis líka. Endilega hendið enn einni blaðurstöðini í loftið. Ég er eins og áður sagði drullufúll. Það vantar núna svona menn eins og Freysa á öldur ljósvakans. Maður sem segir það sem honum sýnist. Þetta er kanski einhver krafa frá viðhvæmu fólki sem þolir ekki að heyra ókristilega talað í útvarpi. Ef fólk er eitthvað pyrrað á talsmáta útvarpsmannsins þá getur það einfaldlega skipt um stöð. Ég er ekki hnakki ÉG VIL ROKK !!!!!!!!!!
Sunnudagur 9. janúar
Megrun?
Nú eftir jólin hefur gengið í sjónvarpinu auglýsing sem mér finnst í hæðsta lagi bjánaleg. Þar er verið að auglýsa Special-K kornflögur. Og þar eru grannar stelpur að hoppa og skoppa og engjast til að komast í buxur sem virðast vera alltof þröngar. Það er sumsé verið að gefa í skin að þessar stelpur, sem eru að mínu mati bara fínar í vextinum ættu nú að megra sig aðeins... svona til að geta troðið sér í enn þrengri gallabuxur. Endurheimtu fataskápinn þinn er sagt í auglýsingunni. Ég veit nú ekki hvað stelpur þurfa að vera grannar í dag.. en samhvæmt Special K þá má ekki vera holdtuttla utaná þeim. Þetta finnst mér senda alveg ferlega röng skilaboð til ungra stúlkna sem oftar en ekki eru uppteknar af sköpulagi sínu. Mér persónulega finnst í góðu lagi ef kvennfólk hefur aðeins fyrir mann til að klípa í, en ég er nottlega nett skrítinn og stoltur af því :)
Laugardagur 8. janúar
Formula Baugur
Já nýjustu fyrirættlannir baugsmanna eru síður en svo smáar í sniðum. Nú hefur Gula Pressann það eftir áræðanlegum heimildum að þeir séu að spá í að taka þátt í formúluni 2006. Þar horfa þeir fyrst og fremst til Minardi liðsins sem hefur átt í fjárhagsvandræðum undanfarin ár. Mun liðið þá heita Team Baugur og bera hinar ýmsu aglýsingar fyrirtækja í eigu baugs. Einnig hefur komið til tals að hafa bílin Bónusgulan eða jafnvel grísableikan. Höfuðstöðvar liðsins eiga að vera hér á Íslando og hefur þegar verið talað við brautarhönnuði um að leggja braut sem verður í laginu eins og grís. Sjónrænt mjög úr lofti sagði Jón Ásgeir í samtali við Gulu Presunna. Við erum orðnir svo öflugir að okkur vantaði hreinlega eitthvað til að nota peningana í, ekki viljum við þurfa að borga of mikin skatt, bætti Jón við. Ekki hefur verið rætt um hverjir eiga að aka en Fjölnir Þorgerisson hefur þegar falast eftir stöðuni.
Föstudagur 7. janúar
Klikk eða??
Er Hákon Eydal klikk eða hvað? Maður spyr sig óneytanlega þeirrar spurningar eftir að hafa lesið utaná DV í dag. Þá sagðist hann hafa notið ásta með Sri rétt áður en hann drap hana. Ennfremur segir hann að einhver annar hafi yfirtekið líkama hans þegar hann myrti Sri, barnsmóður sína. Ég verð fyrir mitt leiti að segja að ég trúi ekki einu einasta orði af því sem þessi maður segir. Hann er áður búinn að ljúga og pretta í sambandi við þetta óhugnarlega morð. Hann virðist allaveganna vera nógu kaldrifjaður til að spinna upp eitthvað svona til þess eins að bjarga sínu eigin andskotans auma rassgati. Kanski í von um að fá mildari refsingu sökum upploginar geðraskana. Ég sá hann í sjónvarpinu í gær hann Hákon Eydal. Þetta er hávaxinn og herðabreiður gutti. Og þá má alveg áættla að hann hafi veitt Sri ansi þung högg með kúbeininu, sem talið er að hann hafi notað til að berja hana í höfuðið í fjórgang. Að lokum kyrkti hann hana með belti. Þessi maður á ekki neitt annað skilið en að dúsa í fangelsi sem allra allra lengst. Svona kaldrifjuð morðskrímsli eiga ekki að ganga laus
Fimmtudagur 6. janúar
Verk Guðs??
Síðasta mánudag fór ég ekki í vinnuna. Var heima með hálsbólgu og skemmtinlegheit. Af þeim sökum gafst mér kostur á að horfa á Ísland í bítið. Í þattin kom kona sem ég ekki man hvað heitir en hún átti að vera einhverskonar spákona. Spádómar hennar fundust mér frekar opnir og svona mest eitthvað common sense dæmi. En svo barst talið að þessum hræðilegu hörmungum í Asíu. Þá vildi hún meina að þetta væri frá Guði sjálfum komið, hann væri að refsa mönnunum fyrir græðgi. Hvaða helv???? Ég er nú ekki vel sterkur í fræðunum en ég fyrirstóð nú alltaf að það væri ekki fallegt að hefna sín. Og ef Guð er svona pissed yfir auðvaldshyggjunni af hverju dúndraði hann ekki frekar loftsteini á Wallstreet? Þar er nú auðvaldið aldeilis að blómstra. Já eða lét Bill Gates fá krabbamein? Ef þetta er verk "Guðs" þá er honum eitthvað verulega uppsiga við Svía þessa dagana, já og Shri Lanka búa líka. Ef hann er til þá eru þetta alveg einstaklega undarlegir taktar í honum. Ég held ég haldi bara áfram að vera trúlaus, það er lang einfaldast.
P.S ef ég verð ljóstraður eldingu á morgun, þá er það bara tilviljun........
Miðvikudagur 5. janúar
Fálkaorðan.
Á nýársdag veitti forseti Íslands fálkaorðuna. Þá er hóað saman hóp af fólki sem fær flott dót í barminn og klapp á bakið frá Óla. Ég fékk enga fálkaorðu þá mér finnist ég nú eiga hana inni. Verð að fara að senda orðunefnd e-mail og minna á hve frábær ég er ;). Ég man nú ekki alla sem fengu orðu þetta árið, en tvo man ég þó. Ragnar Bjarnason, em allir þekkja sem Ragga Bjarna fékk orðu og átti hana fyllilega skilið, enda búinn að setja sitt mark á tónlistarsögu íslendinga. Annar sem fékk var Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri hér á Akureyri... fyrir störf sín að sveitarstjórnarmálum. Ég veit nú ekki hví sá maður fékk orðuna! Kanski fyrir að tryggja Akureyringum landsins hæðsta holræsagjald? Eða að vera búinn að krunka sig saman við frammsókn áður en úrslit bæjarstjórnarkosningana voru ljós... sem D-listin tapaði. Kanski hef ég misst af einhverjum afrekum... en mér finnst hann ekki eiga fálkaorðu inni.


