Miðvikudagur 29. júní
Hin íslenski sori.
Sori ársins er án efa skítadritritið Hér og Nú. Að undanförnu hafa þessir labbakútar gengið verulega of langt í ummfjöllunn sinni. Svona svakalega villandi fyrirsögn eins og kommum daginn... Bubbi fallinn. Auðvitað tulka flestir þetta sem svo að Bubbi kallinn væri aftur kominn í dópið. En það var víst alls ekki þannig. Bubbi er víst byrjaður að reykja aftur. Það var öll fréttin. Kanski er mitt minni ekki 100% öruggt, en ég man ekki til þess að hann Bubbi hafi verið að auglýsa það um allar jarðir að hann væri hættur að reykja. Ég vissi ekki einusinni að hann væri hættur. Og svo var farið að fjalla um það að Brynja hafi haldir frammhjá Bubba.. Og byrt var mynd af eiginkonu mannsins sem Brynja var með. Eins best að ríða ekki henni Brynju, þá kemur Eiríkur Jónsson og skáldar einhvern skít.
Svo kom Eiríkur Jónsson framm í Ísland í dag og var ekkert nema skítur og hortugheit. Virtist vera gapandi hissa á að almenningi væri nóg boðið með svona "blaðamennsku" Skilnaður er jú ekki skemmtiefni, en að öll þjóðin þurfi að vera áhorfendur af því og geta velt sér uppúr hverju smáatriði... ég tel það ekki vera fréttamensku.
Ef að Eiríkur Jónsson, Gunnar Smári Egilsson eða Mikki Torfa væru að skilja, myndu þeir virkilega vilja að allir díteilarnir byrtust opinberlega. Ég veit að Bubbi Morthens er frægur, og eiginlega þjóðareign, en það er alveg í lagi að kallinn eigi sér smá einkalíf. Hann er jú bara mannvera eins og við hin með alla sína kosti og galla. Ég ættla rétt svo að vona að fólk einfaldlegaq kaupi ekki þetta druslublað.
Sunnudagur 26. júní
Ljóti bíll júnímánaðar!
Jæja, þá er ég loksins byrjaður á hlut sem ég ættlaði mér að gera fyrir margt löngu síðan. Ljóta bíl mánaðarins. Þennann mánuðinn er það þetta afar illa farna eintak af Toyota Corolla sem varð fyrir valinu.
Svo er bara þá að fara að skignast um eftir næsta "fórnarlambi" kanski gæti það orðið bíllinn þinn...............
Sunnudagur 19. júní
Laugardagsgjald
Fyrir ekki svo löngu þá fór ég í KB banka í Kringlunni. Vantaði peninga útaf reikningnum mínum. Meðan ég sat þarna og beið eftir afgreiðslu tók ég eftir auglýsingu uppá einum vegnum. Þar var aglýst laugardagsopnun bankans. Og þar var klausa um afgreiðslugjald 195 kr ef ég man rétt. Það er sumsé þannig að bankin heimtar afgreiðslugjald fyrir þá sjálfsögðu þjónustu að vera með opið á skynsamlegum tíma. Þó að 195 kr sé nú engin stórfengleg upphæð þá finnst mér þetta virkilega ósanngjörn "skattlagning" Það eru ekki allir sem komast í banka á þessum stöðluðu tímum 9 - 4 eins og tíðkast hjá svo svakalega mörgum bönkum, já og ýmsum opinbrerum stofnunum. 21. öldin er komin, og alveg hægt fyrir bankana að koma inní þá öld líka. Og að heimta gjald fyrir að drullast til að hafa opið á almennilegum tíma er fáránlegt. Allaveganna þegar tekið er tillit til þess að KB banki hefur hagnast um tugi milljarða á undandörnum misserum.
Laugardagur 18. júní
Algert prump!
Þannig get ég best lýst Burnout keppninni sem var hér á Akureyri í gær. Burnout fer þannig framm að menn mæta á bílum og spóla í sundur hjólbarðana hjá sér með tilheyrandi reykjarmekki. Ef vel tekst til þá sprengja þeir hjólbarðana. Þetta er búinn að vera árviss viðburður á Bíladögum sem eru hér á Akureyri í kringum 17. júní.
En í ár þá var burnotið heldur slapparalegt. Einungis mættu þar fjórir keppendur. Og inná þetta borgaði maður 500 krónur. Það var mikið af fólki þarna komið til að horfa á. Það var jú töluvert mikill mökkur, en þegar einungis fjórir keppendur eru þá er ekki við góðu að búast. Allaveganna var allt búið á c.a hálftíma. 500 kall er nú engin svakalegur peningur, en frekar mikill þegar um er að ræða svo lítið og stutt show sem maður fær fyrir það. Bílaklúbburinn verður að fara að taka betur á því ef bíladagarnir eiga ekki að deyja drottni sínum hér á Akureyri. Sá samt ansi skemtinlega skodabifreið á leiðinni á svæðið, það var búið að teppaleggja hann......
Herr Schumacher....
Kanski er þetta merki um aulahúmorinn minn, en mér finnst þetta déskoti fyndin mynd

Fimmtudagur 16. júní
Jackson til Íslands
Nú nýlega var tónlistamaðurinn Michael Jackson dæmdur saklaus af þeim ákærum sem á hann voru bornar. Í frammhaldi af því hefur hann lýst því yfir að hann vilji flytja burt og búa einn einhverstaðar fjarri skarkala heimsins.
Gula Pressann hefur eftir áræðanlegum heimildum að það standi yfir samningaviðræður milli Jacksons og íslenskra stjórnvalda um kaup Jacksons á Grímsey.Og munu þá íslensk stjórnvöld eignast Neverlandbúgarð Jacksons. Í Grímsey langar hann að setjast að. Þá verða íbúar eyjarinnar fluttir burt. Jackson hygst greiða sama verð fyrir húsin í Grímsey og fæst fyrir sambærileg hús á höfuðborgarsvæðinu. Higgst hann setjast að í grunnskóla staðarins og breyta kirkjunni í keilusal. Einnig eru líkur fyrir því að fleyri útlendingar flytji með Jackson í Grímsey og hafa þar heyrst nofn eins og Mike Tyson og Bobby Fisher.... Gula Pressann mun halda áfram að fylgjast með þessu máli
Mánudagur 13. júní
Eitt óþolandi...
Það er alveg óþolandi stundum að standa í biðröðum við kassa í stórmörkuðum. Það er að fá innkaupakerru í rassgatið. Sumir virðast endilega vilja koma svo nálægt rassalingnum á manni að maður finnur fyrir kerrunni á líkamanum. Ég lenti í þessu í dag, þarna var pabbinn... augljóslege sveitakall með slatta af strákvitleysinjum með sér. Svo fór pabbinn frammfyrir afgreiðslukassana til að finna pappakassa fyrir góssið. Og þá finn ég helvítis innkaupavagninn í rassinum. Ég leit um öxl og sá að strákormur hélt við vagnin á að giska 12 - 14 ára. Þá áhvað ég að láta ekki bjóða mér svona rugl. Þessvegnna hnikkti ég skrokknum aðeins afturábak og sendi vagnin nett til baka í fangið á kvikindinu, og bað hann um leið að hætta að troða vagninum í rassgatið á mér. Ég veit ekki hvort hann heyrði það, en ég held að ég haldi þessari tækni áfram. Fólk á ekki að komast upp með svona frekju og stæla. Rassahnykkir rokka.
Sunnudagur 12. júní
Maiden...Maiden......
Vá hvað ég hafð gaman af tónleikum Iron Maiden. Að vísu fannst mér heyrast full lítið í Bruce Dickinson söngvara fyrst, en það lagaðist síðan. Sannilega verið eitthvað minniháttar stillingaratriði. Það vantar allaveganna ekki powerið í kallinn, hann allaveganna hoppaði og skoppaði um allt sviðið eins og brjálaður alla tónleikana. Það verður að taka með í reikningin að Bruce er bara 168 cm á hæð þannig að hann þarf að taka ansi mörg skrefin til að stika yfir allt sviðið. Ég að sjálfsögðu söng með alltaf þegar ég kunni textan þó að seint geti talist svo að ég kunni að syngja. Svo argaði maður og öskraði eins og er viðhlýtandi á svona samkomu. Og ekki er laust við að barkinn hafi verið aðeins aumur eftir öll öskrin og söngin. En það er bara sjálfsagður fórnarkostnaður í svona.
Við vorum þarna fjögur í hóp, ég systir mín, kærasti systur minnar og vinkona hennar. Sú var að vísu svo stutt í annann endann, þannig að systir mín lyfti henni nokkrum sinnum svo hún sæji eitthvað. Við hin erum sko öll 180 cm og yfir. Ég lyfti henni aðeins einusinni. Stelpan var í mjög stuttu leðurpilsi þannig að það var nú varla við hæfi að ég byði framm háhest. Þannig að ég sleppti því alveg.
Það kom að vísu til einhverra stympinga rétt fyrir aftan okkur og hélt ég í smá stund að menn ættluðu að buffa hvorn annann þarna í beinni. Ég skil ekki alveg hversvegna menn eru að gera svonalagað, hélt að menn væru komnir saman til að njóta góðrar tónlistar ekki gera upp gamlar væringar. Ömurlegt svona pakk. Ég hefði átt að rota þá báða.
Þriðjudagur 7. júní
Já já
Ég horfði eins og svo oft áður á þáttinn "strákarnir" á stöð 2 í gærkveldi. Og viti menn... þeir notuðu hugmynd sem ég sendi þeim. Ég sendi þeim nefnilega myndina sem er hér neðar á blogginu af gaurnum sem er búið að teipa uppá vegg. Og í gærkveldi var Sveppi teipaður uppá vegg í tilraunaskyni. Ég er bara snillingur. Að vísu tók ég myndina af einhverri síðu en það er aukaatriði.
En núna er ég í þann veginn að fara að rúlla suður til Reykjavíkur. Iron Maiden tónleikar í kvöld. Ég er alveg að springa úr spenningi enda er Maiden búnir að vera í mikklu uppáhaldi hjá mér í fjöldamörg ár. Og í kvöld fæ ég loksins að berja goðin augum í fyrsta sinn. Eitt sinn rokkari ávalt rokkari!!!!!
Laugardagur 4. júní
Star Wars episode III
Nú nýlega fór ég í bíó og sá sennilega stæðstu mynd ársins. Starwars episode III. Revange og the Sith. Ég ættla ekki að reyna að fara útí söguþráð myndarinnar, enda þyrfti ég þá nokkurnveginn að lýsa öllum stjörnustríðsbálknum. En í stuttu máli fjallar myndin um þegar Jedi riddarinn Anakin Skywalker umbreitist í hin illa innrætta Darth Vaider, eða svarthöfða eins og hann kallast á íslensku. Þetta er sumsé hin klassíska barátta milli góðs og ills.
Ég verð að segja það að ég er ekki fullkomlega sáttur við myndina. Mér fannst Darh Vaider einfaldlega ekki nógu vondur. Haiden Cristiansen er nefnilega ekki nógu öflugur leikari til að leika eitt mesta illmenni kvikmyndasögunnar. Ewan McGregor stendur sig hinnsvegar príðilega sem hin hugumstóri Obi Van Kenobi. Plús myndarinnar frammyfir ep I og II er að hin gersamlega óþolandi Jar Jar Binks sem næstum því rústaði þeim myndun... þá sérstaklega I sást varla, og sagði ekki neitt. Ég hefði að vísu viljað að hann væri höggvinn í spað með geislasverði...en maður fær ekki allt. Tæknibrellurnar eru vægast sagt ótrúlegar, bardagar með stórum geimskipum sem eru ótrúlega eðlileg. Mikill háfaði, læti og hraði. Maður náði varla að fylgjast fullomlega með öllu.
Dómur: *** (af 5 mögulegum)
Leyndarmálið ljóta
Gula pressann hefur komist að leyndarmáli sem reynt hefur verið í áraraðir að halda niðri. "þórslíkneskið" sem fannst á Eyrarlandsholti og er mikils metið af fræðimönnum jafnt sem öðrum er alls ekki Þórslíkneski. Þetta sýnir einfaldlega íslenskan bónda að éta niðursettning. Eins og klárlega sést á myndini þá heldur hann um fætur fórnarlambsins og er að graðka því í sig.

*mynd frá vef Þjóðmynjasafnsins*
Það er augljóst að fræðimenn vilja ekki að þetta leki út, því var þessi falskenning sett framm. Allt skal gert til að þurka þennann myrka kafla útúr íslandssögunni. En Gula Pressann er með eyru og augu alstaðar, og er ekki lengi að finna svona plott gegn þjóðinni, já og heiminum öllum


