Mánudagur 31. október
Sumt fólk.....
Sumt fólk sem maður sér í fjölmiðlum er alveg gersamlega óþolandi. Ég á við svona leiðindagerpi eins og Gilzenegger, bara gælunafnið fær mann næstum til að gubba. Þarna er um að ræða einhvern uppblásinn snyrtipinna, sem virðist einungis heillast af því hvað hann sjálfur er flottur. Frægur fyrir náhvæmlega ekki neitt.
Annað gerpi er Jói Fel.... hann er jú líka svona massaköggull. Er þekktastur fyrir að vera bakari samt. Fáa hef ég samt séð subbulegri við eldhússtörf. Massaköggull sem ekur um á Hummer.... er hann með lítinn bibba eða??
Einn í viðbót er Guðmundur Steingrímsson, misheppnaður í öðru veldi. Er, eða var stjórnandi Kvöldþáttarins á Sirkus. Þættir sem eru hundleiðinlegir og mjög illa unnir... t.d er talið ekki rétt inni miðað við mynd. Svo er drengurinn bara óendanlega alls ekki fyndinn.
Síðast en ekki sýst ættla ég að nefna erkiæluvaldinn Geir Ólafsson.... maður lifandi hvað sá ofvirki andskoti er veruleikafyrrtur. Ég hef ekki heyrt neinn segja jáhvætt um hann. Allir sem ég þekki finnst hann hræðilega leiðinlegur. Samt er hann í sífellu að glenna sig í öllum mögulegum og ómögulegum blöðum. Nú síðast var hann kominn í einkaþjálfun, og hjá hverjum? Jú helvítis brúnkudúkkuni Gilzenegger!!!
Tæpur
Það munaði bara engu að minns lenti í árekstri á nýuppborgaða bílnum sínum í gær. Ég var að aka suður Glerárgötuna og var á tæplega 60. Er að nálgast gatnamót Glerárgötu og Þórunnarstrætis. Og þegar ég um það bil að fara að renna yfir gatnamótinn þegar í veg fyrir mig beygir þessi déskotans Land Rover jeppi. Auðvita stappar maður á bremsuna við svona tækifæri, en sé að ég næ ekki að stöðva ökutækið í tæka tíð. Með ótrúlegu snarræði og óaðfinnanlegum ökumannshæfileikum tókst mér að sveiga frammhjá svíninu. Dansaði svo nettann tangó aðeins niður Glerárgötuna. Það var ekki þessum jeppakalli að þakka að ekki fór verr. Ég hefði sennilega endað með ónýtan bíl ef ég hefði rennt í brettið á Landrovernum. Og það sem verra er.... ég hefði getað slasað mig. Eins best að maður er á góðum dekkjum.
Laugardagur 29. október
The legend of Zorro

Ég fór í bíó í gær. Þar var verið að frumsýna stórmyndina "The legend of Zorro" Þar er sagt frá alþýðuhetjuni Zorro, sem ríður grímuklæddur um á sínum svarta hesti, berst við vonda menn með sverð að vopni.
Þessi mynd er að mörgu leiti ágæt. Þetta er kanski ekki eitthvað svakalegt listaverk, en hin ágætasta afþreying og virkar mjög vel sem slík. Zorro kemst í hann krappann, en tekst alltaf að bjarga sér frá öllu. Antonio Banderas er flottur í hlutverki Zorros enda töffari hin mesti. Cathrine Zeta Jones er mjög fín í hlutverki konu Zorros, Elenu. Ms. Jones er líka gullfalleg þannig að bæði kyn fá fallegt fólk til að horfa á. Ef fólk langar að fara í bíó og skemta sér, án þess að vera að velta sér um of uppúr listrænu gildi bíómyndarinnar sem listforms, þá mæli ég hiklaust með "The legend of Zorro" Fynsin og skemmtinleg mynd sem hentar mörgum, því það er ekkert ógeð né kynlíf í henni.
Stjörnugjöf ***
Þriðjudagur 25. október
Stæðabjáni 1
Sumir bara kunna ekki að leggja í stæði. Þennann bíl sá ég á planinu við Glerártorg. Skakkur og standandi útúr stæðinu.
Þetta virðist vera svakalega flókið fyrir sumt fólk að fatta hvernig á að leggja í stæði. Ég er að spá í að setja inn fleyri svona myndir af illa lögðum bílum.
Sin City

Í gærkveldi sá ég bíómyndina Sin City. Þetta er ákaflega spes bíómynd. Hún er gerð eftir myndasögum, og það sést í myndini. Kvikmyndatakan er þanig að það minnir óneytanlega á ramma í teiknumyndasögu. Myndin er líka að mestu leiti í svart/hvítu sem gefur henni skemtilega drungalegan blæ. Það er líka mjög sérstætt að sjá hvítt blóð sprautast um allt. Leikurinn er til fyrirmyndar í myndini. Má þar sérstaklega nefna gamla brýnið Mickey Rourke, sem leikur ofurharðhausinn Marv. Einnig á Bruce Willis örugga spretti í myndini. Þessi mynd er fyrst og framst "cool" Flott myndataka, nær ódrepandi harðhausar, mikið og myndrænt ofbeldi og fallegt kvennfólk.... held að það sé vart hægt að biðja um meira
Stjörnugjöf ****
Sunnudagur 23. október
Ljóti bíll októbermánaðar
Jebbbbb... hér er enn ein ljót bifreið. Aftur jeppi. Í þetta sinn æfaforn Toyota Landcruiser. Mikið ryð beyglur og geðveikislega ljótt útlit einkennir þennann bíl
Kaðallinn utanum stuðarann að frama undirstrikar enn frekar hörmungina sem þessi bíll er. Beyglan á húddinu er líka alveg einskær snilld.
Miðvikudagur 19. október
Nýr diskur
Nú nýlega kom út diskurinn, "Aldrei var ég fyndinn með" með sjálfum Birni Bjarna. Björn stígur nú sín fyrstu skref á tónlistarsviðinu og hefur fengið sér til fulltyngis ýmsa mæta menn svo sem gítarsnillingin Árna Jonsen, bjölluspilarann landsfræga Halldór Blöndal og bakraddasöngvarann Hannes Hólmstein

Þarna singur Björn lög eins og Meistari Davíð, Bláa höndin þín, Ég skal blogga um allan heiminn, In the army now og Ó Hannes Hannes. Drauma diskur allra búlemíusjúklinga
Nosferaltau útgáfan
Þriðjudagur 18. október
Sápuópera?
Já stundum finnst mér sem að mín samskipti við hitt kynið sé eitthvað sem klippt er útúr sápuóperu. Allaveganna virðist heppni mín í þessum málaflokki vera með eindæmum. Það nýjasta er sérstaklega eins og það hafi verið samið fyrir Guiding light. Ég get því miður ekki farið út í smáatriði, því ég vil engan særa.
Það virðist vera þannig hjá mér að þegar ég sýni stúlku áhuga, já og er jafnveg byrjaður að gera mér einhverjar vonir.... þá kemur eitthvað alveg stórfurðulegt uppá. Vanalegast finna þær óvænt einhvern annann, eða taka skyndilega til við sinn fyrrverandi... eða voru jafnvel bara að plata allan tíman og mæta með kærastann sinn til að hitta mig. Og þá kemur að sjálfsögðu setningin góða... Þú ert rosalega fínn strákur en......... Og auðvitað brosir maður og segir að maður vilji bara að hún sé hamingjusöm. Undir niðri er þó sjálfstraustið oft ansi niðurbrotið.
Ég veit ekki hvað það er sem ég geri, já eða geri ekki sem veldur því að mér gengur illa að krækja í kvennfólk... kanski er ég bara ekki nógu spennandi, jafnvel of góður.........
Mánudagur 17. október
Gekk betur núna..
Það gekk aðeins betur með myndina sem ég sendi inn núna í ljósmyndakeppnina. 27. sæti af 53. Það er bara nær náhvæmlega miður hópur. Ég held að það sé bara alls ekki svo slæmt. Ég hef nefnilega lúmskan grun um að flestir sem taka þátt séu mun betur græjaðir en ég, já og kunni photoshop kanski líka. En ég er áhveðinn í að halda áfram mínu striki í þessari keppnisröð. Ég er búinn að skila inn mynd í flokkun "TÆKNI" og nú næst er að finna mótífið "LÍNUR" það er mjög mjög opið subject......
Laugardagur 15. október
Björn burt
Ef ekki fæst nokkur niðurstaða í Baugsmálið þá er alveg ljóst að einhverjir hausar þurfa að fjúka. Og þar held ég að nærtækast sé að kalla út kallinn í brúnni, dómsmálaráðherra Björn Bjarnason. Hvernig í helvíti er hægt að gefa út ákæru í 40 liðum og aðeins 8 komist í náðina hjá hæstarétti. Er þetta ekki dæmi um að þeir sem vinna fyrir ákærivaldið séu enganveginn vaxnir sínu starfi? Þarf ekki þokkalega að taka til í þessari ruslageymslu?
Það er ekki eins og þetta hafi verið hrært saman i skyndi, nei... þarna er verið að tala um ÞRJÚ ÁR!!!! Í þrjú ár hafa lögspekingar setið yfir gögnunum og pælt og párað. Og auðvitað hefur það kostað góða summu af peningum. Og það sem stendur eftir er m.a einhver ákæra um svik varðandi innfluttning á einhverjum bílum! Eitthvað svona smávægilegt sem menn fá kanski sekt fyrir.
´
Þetta eflir ekki traust manns á réttarkerfinu, það virðist vera lenska hjá ríkinu að kúka svo feitt mikið uppá bak í stórum málum að það sullast saur uppá hnakka.
Af þeim sökum ætti leiðindaskarfurinn Björn Bjarnason að segja af sér hið fyrsta, sem og ríkislögreglustjóri.
Föstudagur 14. október
Greiddur að fullu !!
Já nú bara á ég minn öndvegistrukk að fullu. Ég borgaði kvikindið upp að fullu í dag. Átti eftir tæpan 93 þús og áhvað að láta bara vaða og borga upp, þar sem ég átti aurinn.
Nú er þá kominn grundvöllur til að hefja gríðarlega auðsöfnun og kaupa Baug, KB banka og laptop tölvu :)
Miðvikudagur 12. október
Þvílík leiðindi
Mér finnst ágætt að kíkja á Jay Lenó áður en ég fer að sofa. Er með sjónvarp í svefnherberginu mínu sem hentar ágætlega í það project. Það passaði fínt að fara í bólið um 11 og horfa á þáttinn... En nú er skjár einn búinn að eyðileggja það. Búinn að troða hinum ótrúlega leiðinlega þætti "Sex and the city" á þennann tíma. Mér finnast þessir þættir alveg herfilega ömurlegir, einir ofmetnustu þættir sem frammleiddir hafa verið. Það er næstum ekkert SEX í þeim t.d. Mar fær bara æluna upp í kok af þessu hundleiðinlega blaðri framm og aftur í frú S.J Parker. Það er ekki einusinni hægt að horfa á þetta til að sjá fallegt kvennfólk. Það ætti að banna þennann déskotans ófögnuð
Mánudagur 10. október
Ótrúlegur frumleiki
Nú í kvöld var fyrsti þátturinn af nýja magasínþættinum á RÚV. Þarna er búið að klastra saman Kastljósinu, Ópinu, Mósaík og einhverjum fleyri þáttum í einn þátt. Held þeir hafi hent inní líka stillimyndinni og Dánarfregnum og jarðarförum... er sam ekki alveg viss. Ég sá nú ekki þannann þátt en það sem mér finnst allra lélegast við hann er nafnð "KASTLJÓS" getur varla verið ífrumlegra.. Það var sko KastlósIÐ..... Þetta sannar bara enn og aftur hve ófrjótt fólk getur verið þegar kemur að nafngiftum, BLAÐIÐ er t.d mjög gott dæmi um þetta.
Af þessum orsökum er ég þegar kominn með nafn á nýja tónlistarhúsið í Reykjavík...... það skal heita "TÓNLISTARHÚSIÐ"
Og niðurstaðan er......
NEÐSTA SÆTI!!!! Þannig fór um blessaða ljósmyndina mína. Hún var dæmd dauð og ómerk og dæmd til að dúsa í neðsta sæti það sem hún á eftir ólifað. En svona er þetta bara, einhver verður að verma botninn. En það þýðir ekki að setjast í vegkantinn og fara að grenja. Ég er kominn inn með aðra mynd, og get bara ekki annað en bætt minn árangur. Ég er líka mún ánægðari með þessa mynd sem ég setti inn núna. Mótívið var "Mannvirki". Svo er komið núna inn mótífðið "Tækni" og það er verið að melta það akkúrat á þessari stundu. En eins og ég sagði, neðsta sæti er ekki al slæmt.... gefur mér gullið tækifæri á að bæta mig :)
Sunnudagur 9. október
Of hægt
Stundum geta vissir ökumenn gert mann alveg spólandi fúlann. Það er svona fólk sem ekki getur tekið beyju nema vera á einhverri lúsaferð. Ég er ekki að meina að fólk eig að taka beyjuna á 140 km/h og vera á tveimur hjólum við það, en það er til millivegur. Svo virðist þetta fólk hafa þann akstursstíl að það þarf líka að hægja niður löööööööngu áður en það kemur að gatnamótum. Þannig ekur fólkið á 20 síðustu 300 metrana áður en það tekur beyjuna. Það er jú alveg í lagi að gæta öryggis, en ef fólk getur ekki ekið eins og umferðinn þá á það einfaldlega ekki að vera undir stýri!!!
Miðvikudagur 5. október
Bloggmæli í gær
Já í gær voru þrjú ár liðin síðan ég fyrst hvaddi mér hljóðs á blogginu. Það hefur nú ekki verið neinn ægilegur straumur hér inn, en þó slatti. Teljarinn var að vísu ekki settur upp strax á fyrsta degi en hann kom einhverju síðar. Hann er nú í kringum 6800 ef ég man rétt. Sitthvað hef ég bullað í gegnum tíðina, misgáfulegt. Og auðvitað hef ég fengið minn skerf af kommentum, enda lít ég á þau sem stóran hlut af bloggskrifum. Bloggið hefur tekið breytingum í gegnum tíðina, flutt á milli servera og nú ekki fyrir alls löngu fór ég að setja inn myndir á bloggið, enda alveg nauðsyn fyrir liði eins og "ljóti bíll mánaðarins" Ég vona að þeim sem þetta blogg lesa hafi allaveganna smá gaman af því :)
Sunnudagur 2. október
Í djúpum skít
Ég var á smá þvælingi, tók eins og oft áður myndavélina mína með. Og ég sá myndefni, regnboga. Þegar ég kom á stað þar sem ég áleit að gott væri að ná mynd blasti annað myndefni við. Þessi jeppabifreið sem hér sést
Enginn var maðurinn í bílnum né í nánd við hann. Það var nú samt spotti aftur úr honum þannig að það var augljóslega búið að reyna að ná honum upp. Einnig er hann alsettur drulluslettum sem bendir til þess að nokk mikið hafi verið spólað. En svona eru þessir jeppakallar.... komandi sér í ótrúlegustu vandræði.
Laugardagur 1. október
Alltaf að keppa.
Jæja, mar getur aldrei komist að hinu sanna nema prufa. Nú fyrr í dag sendi ég inn ljósmynd sem ég tók inná vefinn www.ljosmyndakeppni.is . Mótífið var haustmynd. Ég kann að vísu ekkert að eftirvinna myndir með einhverjum photoshop barbabrellum, enda finnst mér hin sanna list vera að taka ljósmyndina. Ekki hver er bestur í að laga. En svo er bara að bíða og sjá hvaða dóma myndin fær. Ef þeir verða ekki góðir þá bara geri ég betur.


