Sunnudagur 26. mars
Eitt sinn skal hver deyja
Ég hef tekið nokkur misgáfuleg próf, þetta fannst mér alger snilld. Ég er samt ekkert að stefna að því að hafa einhvern helling af svona prófum hérna inni, en þau gætu dottið inn við og við.
|
Föstudagur 24. mars
Þetta idol er stundum alveg...
Ég hef nú ekki gert mikið af því að tjá mig um IDOL söngvakeppnina til þessa. En nú get ég bara ekki á mér setið. Það virðist vera þannig að sumir keppendur geti haldið áfram og áfram þrátt fyrir slaka frammistöðu. Sú var raunin í kvöld. Hann Snorri (sem sumar konur eru alveg að leka niður í gólfteppið yfir) átti ekki á nokkurn hátt skilið að halda áfram í þetta sinnið. Ekki heldur í síðasta skipti ef út í það er farið. Hann tók sig til í einhverju bjartsýnisbrjálæði og reyndi að syngja Guns ´n Roses lagið "Sweet child o mine". Vægt til orða tekið þá var sú frammistaða hreinasta hörmung. Hann hefur enganveginn kraft eða "balls" til að syngja þetta lag. Seinna lagið Annie´s song með John Dennver tók hann hinnsvegar með ágætum. En hann er sko ekki rokksöngvari. Hann á bara að halda sig í rólegu deildini. Ég er mikill aðdáandi Guns ´n Roses og því sveið mér þetta mikið í eyrum. Skelfilegt skelfilegt skelfilegt.
Þriðjudagur 21. mars
Turn off
Ég er stundum að spá í hvað það er sem heillar mig við sumt kvennfólk. Oft á tíðum er erfitt að negla það alveg. Þetta er svona eitthvað samband margra hluta. Fallegt bros, húmor og skemmtinlegur karakter er eitthvað sem heillar mig. En svo er ýmislegt sem er akkúrat öfugt.... TURN OFF
1. Munntóbak.... Það er einhver mesti viðbjóður sem ég veit um. Ég gæeti ekku hugsað mér að kyssa konu sem örfáum mínútum áður hafði troðið tóbaki uppí munninn á sér. Grose ógeð
2. Heimska...... Ég vil geta spjallað við kvennfólk, vil mjög gjarna að þær séu með á nótunum um líðandi stund. Þá er ég ekki að meina nýjustu straumana í tískuni.
3. Ofursímaspjall.... Þessi manneskja sem ekki getur lagt frá sér skaðræðis GSM síman hálft augnatak. Ég held að það sé best að varast þessa týpu. Hún væri vís til að svara í síman í miðjum samförum
4. Andfýla. Alveg hryllilega mikið turnoff í mínum augum.. og nösum. Bráðmyndarleg stúlka... svo opnar hún munninn og svo virðist vera sem hún hafi nýverið sporðrennt hræi af ketti sem er búinn að vera dauður í 4 vikur.
5. Málningardollann Það er alveg í góðu lagi að kvennfólk máli sig. En öllu má nú ofgera.
6. Yfirvaraskegg.... Það er kanski flott á Tom Sellec.... en er ekki beint kynferðislega kósi á kvennmansandliti.
7. Loðna. Það er kanski eitthvað sem kemur í ljós þegar lengra er komið. Ég er ekki að segja að kvennfólk eigi að raka hvert strá af líkamanum, en ég held að það sé ekki alveg það skemtinlegasta eg gellann er með hár frá hné að nafla... og jafnvel með hár á milli brjóstana *hrollur* Engin við sleikjó sem er útataður í apahárum
8. Þessi sem þekkir alla. Gellann sem þarf að spjalla við náhvæmlega alla sem hún mætir. Gerir það að verkum að 10 mínútna fer í búðina tekur 3 tíma
9. Ósmekklegirm borðsiðir. Ef hún borðar eins og svín, þá kanski er hún bara svín. Ég hef horft uppá vinnufélaga minn borða eins og svín...t.d borða nagga, kartöflumús og hrásalat, allt sett í skál og borðað með skeið. Mig langar ekki í kvennmann sem borðar þannig.
10. Fýlupúkinn. Ef hún hefur ekki smá húmor þá er ekki líklegt að hún hafi áhuga á honum mér. Ég hef gaman af því að gantast aðeins, þannig að mjög alvarlegar týpur höfða enganveginn til mín
Það er kanski ekki að undra að maður sé single :S
Föstudagur 17. mars
Bæ bæ
Já það hlaut að koma að því að ameríski herinn drullaði sér af skerinu. Þá verður farin eina ástæðan fyrir einhverja óvinveitta þjóð að ráðast að landinu. Ég hef aldrei verið hrifinn af veru hersveita í þessu annars friðsæla landi okkar. Við eigum að vera vopnlaus þjóð. En auðvitað eru vissir mínusar í þessu. Fullt af fólki missir vinnuna sína við brottför hersins. Ég m.a þekki eina ágæta stúlku sem vinnur á Vellinum. En það sem er nú eiginlega verra er að þyrlubjörgunarsveitin fer. Varnarliðið má eiga það að þeir hafa oftar en ekki sýnt mikkla djörfung við björgunarstörf, og ber að þakka þeim fyrir það.

En svona í heildina litið þá er ég mjög sáttur við að tindátarnir hans Bush séu að fara að pakka saman og yfirgefa svæðið. Farwell to arms.....
Jafnvel þó að bæði Davíð Oddsson og Halldór Ásgræimsson hafi leyft bandarískum hernaðaryfirvöldum að trukka sig feitt í analinn, þá hefur það ekki haft nein áhrif á afstöðu Bandaríkjana til herstöðvarinnar. En kanski fara bara Dóri og Geir til Whasington og grenja og gráta og biðja Gogga Búss að halda nú herstöðini opinni. Óheppmir að Bill Clinton sé ekki forseti lengur. Hann hefði hiklaust trukkað þá báða.
Ég er nú líka pottþéttur á því að Herr Kommizar Björn Bjarnason er grátandi núna, enda er hann mikill hernaðarsinni. Eina lausin sem ég sé í því máli er að herinn fái Björn Bjarnason að launum fyrir góð björgunarafrek.....
Miðvikudagur 15. mars
Ljóti bíll marsmánaðar
Já það hafa kanski einhverjir veitt því athygli að hér vantaði ljóta bíl mánaðarins í febrúar. Ég vil nú afsaka mig með því að það var mikið að gera, atburðir í fjölkylduni og þessháttar, og auk þess er febrúar stuttur mánuður.
En nú er ég kominn með nýjan bíl í þennann flokk. Sá er af tegundinni BMW og er að mínu mati mjög þess verðugur að fá þessa heiðursnafnbót
Það sem mér finnst helst undirstrika ljótleika þessa bíls er þessi stuðaraskratti sem er framaná honum. Hann er c.a 6 númerum of stór. Er þarna framaná eins og uppblásin hefiltönn. Stóreflis plastskrímsli sem í ógáti bráðnaði saman við frammenda bílsins. Svo eru menn stundum aðeins of ýktir þegar kemur að felgustærð. Þegar dekkin eru næstum farinn að ganga uppúr brettunum þá er rúmmlega meira en nóg komið. Ég fatta heldur ekki þessa ást á "low profile" dekkjum. Þau gera bíla hasta og leiðinlega í akstri..... nema kanski í mikklum hraðakstri, ég þekki það bara ekki. En þessi BMW er samt sem áður viðbjóður hin mesti.
Föstudagur 10. mars
Númer 8000
Jæja, þá er það bara spurningin, hver verður gestur númer 8000 hér á þessu bloggi. Ég vona að ég verði það nú ekki sjálfur.... það skeði nefnilega þegar ég hoppaði í 7000. En ef þú lesandi góður ert númer 8000 þá kommentaðu hérna!!!!
Fimmtudagur 9. mars
Við erum algerir snillingar
Já það er ekki ofsögum sagt að ég og Birgitta systir séum afburðasnjöll bæði tvö. Nú áðan tókum við okkur til og rúlluðum upp hinu vikulega Pub-Quiz á Græna hattinum. Uppskeran var góð Bjórkassi af Carlsberg gerð. Við hlutum alls 24 stig af 30 mögulegum, tveimur stigum meira en þau þrjú lið sem á eftir komu. Og við klúðruðum meira að segja einni spurningu með algerum klaufaskap. Við erum margoft búin að taka þátt í þessu, lent í 2. 3. 4. sæti..... alltaf rétt við mörkin. En kvöldið í kvöld var okkar kvöld. Húrra fyrir okkur :)
Birgitta systir, glaðhlakkaleg með kassann góða.
Orð eru stundum dýr...
Það er alveg ljóst að maður verður að passa sig á hvað maður lætur útúr sér. Annars getur maður lent í þeirri miður skemmtinlegu reynslu að særa einhvern, jafnvel einhvern sem manni er annt um. Ég reyni að forðast það í lengstu lög að særa fólk eða móðga, en stundum vefst manni bara tunga um tönn og maður gloprar einhverjum fjandanum útúr sér, oftar en ekki í einhverjum hálfkæringi, já eða í einhverju misheppnuðu djóki. Gildir þá einu hvort sagt sé í ræðu eða riti.
Þá er mál að biðjast afsökunar, ég geri það nú vanalegast ef að um gáleysi er að ræða. En það er oft soldið snúið að biðjast afsökunar. Það kemur nefnilega fyrir að maður veit ekki almennilega hvað það var í manns orðavali sem svo illa fór í viðkomandi. En eins og ég sagði þá er ég ekki maður sem stunda móðganir og leiðindi dagsdaglega. Ég reyni ávalt að fara vel að fólki. Við móðgunum hef ég ekkert annað en afsökunarbeiðnina.... eða er hægt að biðja um meira??
Miðvikudagur 8. mars
Ef þið bara.......
Já það munar ekki um yfirganginn og frekjuna í sumum. Ég er samt ekki að meina frekjuhundinn sem vildi fá alar lóðirnar við Úlfarsfell, þó það sé mikil græðgi og gróðafíkn af verstu sort. Ég er að tala um forsvarsmenn Alcan á Íslandi. Þeis sögðu bara hreint út. Annaðhvort fáum við að stækka álverið okkar eða við bara förum með allt heila helvítis draslið!!!! Ég hlýt að hafa misst af einhverju. Síðast þegar ég vissi þá réði nú Hafnarfjarðarbær... já eða ríkið því hvort álverið yrði stækkað eða ekki.
Svo er það einnig til háborinnar skammar að það skuli vera Alcoa sem áhveða hvar þeir vilja helst byggja næsta álver. Mann fer að gruna að Valgerður Sverris hafi farið til New York og leyft þeim öllum að ríða sér eins og þeir vildu. Plís plís plís byggið álver... okkur langar svo í álver..... kyss kyss á rassa.
Í minni enfeldi þá hélt ég að það væri nú rikisstjórnin sem tæki áhvarðannir um hvar byggja ætti svona meingandi skrýmsli eins og álver. Við erum kanski búin að afsala okkur fullveldinu til risastórra iðnjöfra út í heimi. Ef þetta heldur svona áfram þá verða ekki flokkar í boði heldur álframleiðendur. Ótrúlegt hvað við látum bjóða okkur stundum. Svona er að láta apaketti eins og frammsóknarflokkinn og peningafíklana í sjálfstæðisflokknum stjórna landinu.
Þriðjudagur 7. mars
Völvuspá Gulu pressunnar
Já, nú loksins hefur náðst samkomulag við völvu fyrir Gulu pressunna. Hin heimsþekkta ungverska völva Skanja Wabish hefur lagt spilinn fyrir okkur og sagt frá óorðnum og óvæntum hlutum
1. Finnland mun sigra Eurovision með rapplaginu Heija Suomi samið og flutt af Mika Häkkinen
2. Björgófur Thor mun kaupa Færeyjar og selja þær svo með hagnaði til Vladimírs Shirinovskis
3. Geir Ólafs mun slá í gegn í El Salvador og flytjast þangað. Hann mun ekki eiga afturhvæmt
4. Leoncy mun heyra upptöku af egin tónlist og skjóta sig í frammhaldi af því
5. Lennox Lewis mun flytjast til Íslands og falast eftir að komast í íslenska boxlandsliðið
6. Bakkabræður munu kaupa álverið í Sraumsvík og breyta því í skriðdrekaverksmiðju
7. Rolling Stones munu koma til landsins á laun og halda leynilega tónleika fyrir moldríka íslenska bisnesskalla í skála jöklaransóknafélagsins á Vatnajökli
8. Sigga Beinteins mun hætta í tónlist hér á Íslandi og snúa sér alfarið að stjórninnarstörfum í alþjóðasamtökum samkynhneigðra tónlistarmanna
9.Egill Gilzenegger lætur draum sinn rætast og lætur breyta sér endanlega í Ásthildi Helgadóttur.
10. Mikið magn af gulli og demöntum mun finnast á Akureyri sem leiðir til þess að Akureyri verður sjálfstætt landsvæði alveg óháð hinum skrínum.
Laugardagur 4. mars
Wig Wam
Það var djamm á manni í gærkveldi. Það var líka mjög góð ástæða til þess. Norska glysrokkbandið Wig Wam var að spila. Þeir eru að sjálfsögðu þekktastir fyrir stórsmellinn "In my dreams" sem gerði allt vitlaust í Eurovision söngvakepnini í fyrra. Ég skemmti mér konunglega þarna. Sviðsframkoma Wig Wam er virkilega skemtinleg og lifandi. Þeir náðu allaveganna upp feiknagóðri stemmingu í Sjallanum. Wig Wam flutti bæði sín egin lög og einnig lög eftir aðra, helvíti fínir í AC/DC lögum svo dæmi séu tekin.
Klikkið á myndina til að sjá stærri
Ég hefði viljað taka fleyri myndir, en ég var svo snjall að ég gleymdi að tékka á hleðsluni á myndavélabatterúnum. En ég vona að þessi mynd sem fylgir með sé nógu góð. Come on come on come on......




