Laugardagur 29. apríl
Ljóti bíll apríl mánaðar
Það er ekki seinna vænna að setja inn ljóta bíl aprílmánaðar enda mánuðurinn senn á enda. Að þessu sinn varð fyrir valinu þessi miður fagra Volvo bifreið. Volvo 244 er nú ekki flottur bíll fyrir en við bætist að þessi er beyglaður skítugur og illa upplitaður

Föstudagur 28. apríl
Tvífarar II
Ég setti hérna inn tvífara um daginn. Nú er ég búinn að finna aðra tvífara.
Annarsvegar er það utanríkisráðherra íslands Geir H. Haarde

Og hinnsvegar Starwars geimmaðkurinn Jabba the Hut

Þeir eru nánast eins.
Sunnudagur 23. apríl
Er þetta gott fyrir umhverfið?
Það er alveg ljóst að þetta er einnota samfélag. Allt er að veða einnota. afmagnstæki eru orðin svo ódýr að ef þau bila þá er einfaldast að henda þeim bara og kaupa nýtt frekar en að kaupa nýtt. Það nýasta í þessum efnum er ennota DVD diskar. Þeir duga í 48 stundir fá því að þeir fara í spilarann og eftir það eru þeir fóður fyrir rusladallnn. Ég hef nú ekki kynnt mér það neitt sérstaklega en ég leyfi mér stórlega að efast um að geisladiskar séu hollir fyrir umhverfið. Bót er þó í máli að umbúðirnar eru einfaldar og þannig séð kanski ekki svo slæmar. En það breytir ekki þeirri staðreynd að hér gæti verið um að ræða mera en milljón DVD diska á ári.. það er stór og mikill slatti.
Föstudagur 21. apríl
Bensínverð!
Bensínverðið hér á Íslandi er að verða alveg skelfilega hátt. Það hækkar jafnvel oftar en einusinn í mánuði. Og nú þegar krónan virðist vera í frjálsu falli þá er ekki við góðu að búast!! Ég er bara ánægður að eiga lítinn og sparneytin bíl. Aumingja þeir sem keyptu risavaxinn "innanbæjarskriðdreka" Dýrt að reka bíl sem eyðir 20+ á hundraðið. En hver er helsta ástæðan fyrir háu bensínverði? Jú það er ríkið. Ríkið tekur rúmmlega 60% af bensínverðinu til sín. Og þegar verðið hækkar þá fær ríkið fleyri krónur í kassann. Verðið hefur hækkað um 16 kr á lítra frá áramótum. Það þýðir 10 kr meira á lítra til ríkisins. Og ættla þeir að lækka sín gjöld? Ó nei það virðist ekki standa til. Nógu mikið belgdu þessir tappar sig út þegar upp komst um samráð olíufélagana. Alveg er ég pottþéttur á því að gjaldið myndi lækka ef kosningar væru frammndan !!
Hér er mynd af glæpnum..... þarf örugglega að uppdieta hana bráðum.

Miðvikudagur 12. apríl
Skelfilegur sjónvarpsþáttur.
Ég held að um þessar mundir sé leitun að verri þætti en sirkus RVK. Ég sá smá brot af þessum þætti núna áðan og það var slæm lífsreynsla. Þegar ég kom inní þáttinn þá var einhvert strípulitað brúnkutröll að elda burrito. það var bara skelfilega hallærislegt. Hann var bara vibbi. En svo fór það versnandi. Ung kona tók reynsluakstur á Susuki Swift. Ég vil taka framm að það er ekkert að því að konur sjái um eitthvað sem tengist bílum, en þá verða þær að hafa eitthvað örlítið vit á bílum. þessi hafði það gersamlega ekki. Einungis var einblínt á hve hentugur þessi bíll væri konum Ef ég myndi koma í sjónvarp og lýsa því yfir hve frábær karlabíll t.d Mustang væri þá væri ferill minn ekki langur í sjónvarpi. Gullkornið hennar var: " Það er nú ekki auðvelt að lýsa bíl í sjónvarpi" Well... það er nefnilega ekki erfitt, ég myndi treysta mér til þess. Þessi ágæta stelpa gleymdi nokkrum mikilvægum atriðum í bílaumfjöllun t.d hvað eyðir bíllinn? hvað kostar hann? er hann rúmmgóður? Ég veit líka að ég gæti tekið þetta betur sjálfur... bæði bíladæmið og matreiðsluþáttinn. En ég er ekki sætur hnakki eða hnakkamella.........
Þriðjudagur 11. apríl
Ertu of feitur?
Offita er mjög algengt og alvarlegt heilsufarsvandamál. Stundum er þetta vegna arfgengra þátta eða líffræðilegra, en allof oft stafar offita af röngu mataræði og hreyfingarleysi. Soleiðis fólki get ég bara ekki vorkent. En ég tek ofan fyrir fólki sem þó allaveganna reynir að gera eitthvað í sínum málum.Það er alltaf matsatriði hvort fólk er feitt eða ekki. Hér eru örfá atriði sem benda til þess að þú sér of þéttholda.
1. Þú ferð í röðina á hlaðborði og þeir sem eru á eftir þér hætta við því þú klárar hlaðborðið.
2. þú ert einn í lyftu, dyrnar oppnast og fólkið segir.... Hurðu, við tökum bara næstu.
3. þú hefur ekki séð typpið á þér í rúmmlega ár (kk)
4. Þú þarft að setjast niður til að pissa (kk)
5. Þú þarft að gyrða niður um þig og bakka inná almenningssalerni.
6. Útikaffihúsin bjóða þér sterkari stól.
7. Þú ert á ströndini og börnin vilja leika sér í skugganum af þér.
8. Liftryggingafélög vilja ekki fyrir nokkrn mun tryggja þig.
9. Þú verður alltaf að vera undir í kynlífi.
10. Engin sem þú þekkir nær utanum þig
11. Þú getur ekki viktað þig nema á iðnaðarvog.
12. Bíllinn þinn eyðir 3x meira bensíni en aðrir sambærilegir bílar.
13. Þú sest á andlitið á makanum og hann hættir að heyra í græjunum (kvk)
14. Ísbjörn situr um vinnustaðinn og þér er hent út til að metta björninn og bjarga hinum.
14b. Ísbjörnin borðar þig og fær bráðakransæðastíflu og deyr.
Vona að engin móðgist eða taki þetta nærri sér.
Laugardagur 8. apríl
Ný græja.
Nú nýverið fjárfesti ég giska stórt. Ég keypti mér laptoptölvu. Ég er búinn að vera duglegur við að spara þannig að ég gat staðgreitt vélina sem kostaði 140 þús.
Þetta er Toshiba tölva, 100 gb harður diskur, hraðinn er 2,0 Gz og vinnsluminnið er 1 gb. keypt í BT
Nú vantar mannn bara hugbúnað t.d photoshop og powerpoint. En það er eitthvað sem ég redda mér við tækifæri.
Sunnudagur 2. apríl
Ego rokkar
Ég fór á djammið í gær. Fyrst fór ég í 40 ára afmæli vinkonu minnar. Þar var mikið drukkið, þ.e aðrir sáu um drykkjuna. Svo var rúllað niður í Sjalla á tónleika með Egó. Þar var brjálað stuð og stemming. Sjallinn að sjálfsög'u smekkfullur og geðveikt kraðak á gólfinu. Og að sjálfsögðu tók maður undir fullum hálsi. Flesta textana kann maður utanað. Eini mínusnn sem ég vildi setja á þetta djamm var hve stutt Egó voru á sviðinu. En Bubbi er nottlega orðinn svo gamall að hann þarf að fara heim og leggja sig tímanlega.



