Sunnudagur 31. desember

Ég er bara svo góður....

You Are 54% Evil
You are evil, but you haven't yet mastered the dark side. Fear not though - you are on your way to world domination.
How Evil Are You?
Sent af Nermal kl [17:08] Komment [0]

Föstudagur 29. desember

Smá mistök

Eins og gleggri áhorfendur hafa tekið eftir, þá kom hérna inn kengvitlaust próf. Ég reyndi að eyða því út, en akkúrat þá fór serverinn eitthvað að hiksta og gallaða prófið vildi bara ekki yfirgefa svæðið
Ég vona að þetta sé betra núna

http://www.quizyourfriends.com/quizpage.php?quizname=061228201749-221732

Þetta sko krossaðist við test vinkonu minnar sem ég var að taka....... Setti óvart hennar kóða inn

Sent af Nermal kl [22:05] Komment [0]

Fimmtudagur 28. desember

Íþróttamaður ársins

Nú í kvöld var íþróttamaður ársins valinn. Guðjón Valur Sigurðsson hlaut titilinn að þessu sinni. Hann er vel að þessu kominn strákurinn, enda einn af allra fremstu handboltamönnum heimsins í dag, og máttarstólpi í Íslenska landsliðinu. En það er ekki það sem ég er að spá í. Það er frekar nýji verðlaunagripurinn. Hann er að mínu mati eitt það ljótasta fyrirbæri sem fyrir finnst. Engu líkara en hann sé búinn til úr spítnabraki, álpappír og brotnum blómavasa. Stórt og klunnalegt stykki. Gamli gripurinn er virkilega glæsilegur... en að setja þetta ullabjakk í staðinn er bara fáránlegt. Það er kanski eins best að þeir völdu ekki fimlekastelpuna ungu... Hún hefði ekki valdið gripnum. Menn þurfa alltaf að vera með einhverjar agalega táknrænar artífarti pælingar... og afleiðinginn er svona ljótleiki!

Sent af Nermal kl [21:24] Komment [0]

Miðvikudagur 27. desember

Nýtt tæki

Jæja... það skeði á jóladag að DVD spilarinn minn hætti að virka. Rándýr JDV spilari sem ég keypti í Bónus. kostaði heilar 9 þúsund fyrir c.a 4 árum. Ég reyndi að laga hann á gamla mátann. Fyrst gaf ég honum nett högg... það gerði ekkert. Alltaf þóttist spilarinn vera tómur. Þá var ekki annað í stöðuni en að gefa kvikindina annað högg. Þá gaf ég honum gott drag.. en það leiddi bara til þess að hann beyglaðist... virkaði ekkert betur helvískur. Niðurstaða: hann er bara ónýtur.

Ég fór því af stað til að versla annann spilara. Fór fyrst í BT. Fann engann spilara sem var innann fjárlagarammans. Ættlaði líka að kíkja í Ljósgjafan, en þar var lokað... líka hjá Heimilistækjum.... Jæja....einhverntíma verður verslunnarfólkið að fá frí. Þá var bara að aka í útjaðar bæjarinns og fara í BYKO. Þar fann ég spilara. Philips kvikindi á 8 þús kall. Og hann virkar. Held ég sleppi því berja hann.

Sent af Nermal kl [21:12] Komment [4]

Sunnudagur 24. desember

Jólaviðtalið

Ég náði fyrir skemmstu einstöku viðtali við Kertasníki Leppalúðason fyrir skemmstu.


Kertasníkir, eru börn almennt búin að vera þæg í ár?

Já, já.... þau eru lang flest mjög þæg. En auðvitað eru einstaka óþekktarormar inn á milli, en þeir fá þá bara ekkert í skóinn... já eða gamla kartöflu ha ha ha

En eru þau stundum frek?

Já... mörg þeirra eru agalega frek.. vilja bara fá eitthvað stórt og mikið í skóinn, DVD eða jafnvel iPod spilara... ég bara stend ekki í svoleiðis vitleysu. Getur þú ímyndað þér hvað 20 þúsund iPodar kosta. Við jólasveinarnir höfum engin efni á þannig

En hvernig farið þið að því að gefa öllum þessum krökkum í skóinn á einni nóttu?

Veistu, ég bara get ekki sagt þér það, það er bara sérstakt jólasveinaleyndarmál. Alveg sérstakt dæmi

En hún mamma þín, er hún enn að borða óþæg börn?

Hún hefur nú minnkað það undanfarin ár. Hún borðaði þó óþekktarorm úr Barðastrandarsýslu 1894... en hann var einsaklega vondur, enda fékk mamma heitarlega í magann. Og pabbi er orðinn grænmetisæta... Mikil aðdáandi Sollu.... Heimtar bara linsubuff í hvert mál.

Hefur mikið breyst í þessu gjafastandi ykkar?

Já, húsin eru hærri og krakkarnir eru orðnir fleyri... já og sum vilja bara eitthvað svakalegt. Mandarína dugði ágætlega fyrir örfáum árum. Svo verða krakkarnir að muna að busta tennurnar
... en ég má ekkert vera að þessu lengur.... þarf að fara að taka til í pokann minn

Ég óska öllum þeim sem þetta blogg lesa gleðilegra jóla og þakka fyrir þau fjölmörgu skemmtinlegu comment sem sett hafa verið hérna inn. GLEÐILEG JÓL

Sent af Nermal kl [12:04] Komment [2]

Fimmtudagur 21. desember

ÉG? ILLUR?

Fann þetta test hjá Albin....... Alger snilld


How evil are you?
Sent af Nermal kl [21:19] Komment [5]

Sunnudagur 17. desember

Einfalt ´grísabuff

1 bakki grísahakk
1 krukka kartöfluteningar (Euroshopper, fæst í Bónus)
2 egg
brauðraspur
Krydd

Hrærið samann hakk, kartöflur, og egg. Kryddið eftir smekk. Gott er t.d að nota pizzasósu, afgangs brauðstangarsósu eða einhverja grillsósu. Þykkið með brauðraspnum. Gott er einnig að nota snakk, t.d kartöfluflögur. Mótið í buff og steikið á pönnu.

Sent af Nermal kl [21:02] Komment [0]

Laugardagur 16. desember

13 dagar jóla

Hér er útgáfa af þessu ágæta lagi samið af mér og Birgittu systir

á þrettánda degi jóla gaf tólasveinninn mér...
þrettán þrettán gerfi typpi
Tólf fingrakitjur
ellefu loðin handjárn,
tíu typpahringi,
níu bláar myndir
átta víbradora,
sjö latex galla
sex sleipiefni
fimm leður svipur
fjórar gerfipíkur
þrjú ultra böttplögg,
tvær lakkrísbrækur
og risa stórann dildó

Sent af Nermal kl [16:04] Komment [3]

Föstudagur 15. desember

Hefur þú??


( ) reykt sígarettu

( ) klesst bíl vinar/vinkonu/ættingja

( ) stolið bíl


( )klesst á
( ) verið ástfangin/n
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum...
( ) drepist afengisdauða
( ) prófað einhvað ólöglegt efni
( ) séð eftir hlut sem þu hefur gert
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum..
( ) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki

( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
( ) logið að vini/vinkonu "Já , því miður" fyrir löngu samt
( ) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
( ) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér
( ) borðað sushi (og fannst það ógeðs)
( ) farið á sjóskíði
( ) farið á tónleika
( ) tekið verkjalyf
( ) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna:
( ) legið á bakinu úti og horft á skýin
( ) búið til snjóengil
( ) haldið kaffiboð
( ) flogið flugdreka
( ) byggt sandkastala
( ) hoppað í pollum
( ) hoppað í laufblaðahrúgu
( ) rennt þér á sleða
( ) svindlað í leik
( ) verið einmanna..
( ) sofnað í vinnunni/skólanum
( ) notað falsað skilríki
( ) horft á sólarlagið
( ) fundið jarðskjálfta
( ) sofið undir berum himni
( ) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur
( ) verið misskilin/n
( ) klappað hreindýri/geit/kengúru
( ) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm
( ) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi "örugglega"
( ) fengið deja vu
( ) dansað í tunglskininu
( ) fundist þú líta vel út
( ) verið vitni að glæp.
( ) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum
( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni
( ) verið týnd/ur.......
( ) synt í sjónum
( ) fundist þú vera að deyja
( ) grátið þig í svefn
( ) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með trélitum
( ) sungið í kariókí
( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
( ) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
( ) hringt símahrekk...
( ) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
( ) stungið út tungunni til að ná snjókorni
( ) dansað í rigningunni
( ) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
( ) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni:
( ) komið óboðin/n í partý..
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
( ) farið á rúlluskauta/línuskauta
( ) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk/teyjustökk/Rafting
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig

Sent af Nermal kl [15:18] Komment [4]

Þriðjudagur 12. desember

Margt sem ég ekki skil

Eitt af því sem ég get enganveginn skilið er áhugi fólks á svokölluðum sápuóperum. Þetta er án efa eitthvert það viðurstyggilegasta sjónvarpsefni sem til er í víðri veröld. Ég er viss um að sápuóperur eru notaðar sem pyntingaraðferð í Quantanamo fangelsinu.

Hvað er svona slæmt? Jú enfaldlega allt. Ég hef nú ekki glápt mikið á þetta sjónvarpsefni, en samt sér maður að söguþráðurinn er þynnri en vatn þynnt með vatni. Hann er álíka frumlegur og bygging úr einum lego kubb og leikurinn er svo ömurlegur að Steven Segal myndi sýna stórleik í slíkum þætti.

Þetta er slíkt rusl að maður er dauðhræddur um að vesalings sjónvarpstækið beri af því varanlegann andlegann skaða ef maður villist inná svona á netþvælingi. Held að ég horfi frekar á beina útsendingu frá alþingi......

Sent af Nermal kl [22:38] Komment [7]

Sunnudagur 10. desember

Dead pool

Jæja... nú hef ég teikið forystu í hinum stórgáfulega Dead Pool leik fjölskyldunar. Auguso kallinn Pinochet, sem ég hafði á mínum lista gerðist svo snjall að hrökkva uppaf í dag, 91 árs að aldri. Ég er nottlega snjallastur í þessu. Ef ég vinn núna þá er það fjórði sigur minn síðan við hófum þennann leik. En annars er listinn minn eftirfarandi.

1. Nelson Mandela
2. Courtney Love
3. Kim Jong Il
4. Alec Baldwin
5. Horst Tapert (Derrick)
6. Ólafur Skúlason
7. Augusto Pinochet
8. Árni Tryggvason
9. Larry Hagman
10. Hugh Heffner

Við erum sick fjölskylda, ég veit það alveg :D

Sent af Nermal kl [21:13] Komment [3]