Sunnudagur 25. febrúar
Blood Diamond.
Um daginn fór ég í bíó til að sjá myndina Blood diamond. Myndin gerist að mestu í Afríkuriíkinu Siera Leone og þar lifir braskarinn Danny Archer á smygli og ýmiskonar neðanjarðarstarfsemi. Í landinu ríkir mikil upplausn, borgarastyrjöld og ýmis óáran. Inn í söguna fléttast alþýðumaðurinn Solomon. Hann verður fyrir því að vera hnepptur í þrældóm af skæruliðum sem nota hann til að finna demanta sem síðan eru notaðir til að fjármagna vopnakaup... svokallaðir blóðdemantar. Solomon finnur þarna risavaxin bleikan demant sem honum tekst svo fyrir algera tilviljun að koma undan og grafa í jörð.
Síðan fer allt að snúast um eltingaleik við téðann demant. Allir vilja ná í hann og veigra sér ekki við að drepa og svíkja til að komast yfir demantinn góða. Meðal annars ræna skæruliðarnir syni Solomons til að nota hann til hernaðar.
Myndinn er að flestu leiti mjög góð. Leonardo Di Caprio stendur sig vel sem krimminn Danny og er augljóslega vaxinn upp úr að vera bara sætur strákur. Djimon Hounsou stendur sig einnig vel sem Solomon.
Myndin sjokkerar mann einnig töluvert. Í svona upplausn er mannslífið svo ótrúlega ódýrt og fólki kálað fyrir minnstu sakir. Það sem mér fannst hinnsvegar mesti óhugnaðurinn voru barnungir hermenn. Börn voru tekin frá foreldrum sínum og heilaþvegin. Tilbúnar sálarlausar drápsmaskínur. Viðbjóður.
Í stuttu máli sagt mjög fín mynd sem ég mæli óhikað með ***1/2
Föstudagur 23. febrúar
Ljóti bíll febrúarmánaðar
Já, svei mér þá ef þessi svakalega ljóti bíll er ekki sá allra ljótasti sem ég hef sett hér inn. Fann þetta óendanlega niðurnýdda eintak af Benz vinnubíl á flandri mínu í Reykjavík. Ég ættlaði bara ekki að trúa því að þetta viðurstyggilega hræ væri á númerum, en jú þetta er á númerum. Ég bara klónaði yfir það. Ég held að það sé langt í að ég finni annann eins ófögnið.

Miðvikudagur 7. febrúar
Ég er ekkert smá frábær!!
Nappaði þessu hjá Björgu. Þokkalega kjarngott nafnið mitt
E : Great in bed.
R : Fuckin crazy.
L : Unbelievably great in bed.
I : Great in bed.
N: one in a million.
G : You never let people tell you what to do.
U : You really like to chill.
R : Fuckin crazy.
P : You are popular with all types of people.
A : best kisser ever
L : Unbelievably great in bed.
M: You like to drink.
A : best kisser ever.
S : Easy to fall in love with
O: awesome kisser.
N: one in a million.
A : best kisser ever.
B : You like people.
C : You are really silly.
D : You like to drink.
E : Great in bed.
F : You are dead sexy.
G : You never let people tell you what to do.
H : You are Quirky
I : Great in bed.
J : People Adore you
K : You're wild and crazy.
L : Unbelievably great in bed.
M: You like to drink.
N: one in a million.
O: awesome kisser.
P : You are popular with all types of people.
Q : You are a hypocrite.
R : Fuckin crazy.
S : Easy to fall in love with.
T : You're loyal to those you love.
U : You really like to chill.
V : You are not judgmental.
W : You are very broad minded.
X : You never let people tell you what to do.
Y : best boy/girl friend any one can ask for.
Z : Always ready
Þriðjudagur 6. febrúar
Kúkalabbar
Ekki nóg með að bankarnir séu að mergsjúga fólk með okurvöxtum og þjónustugjöldum, heldur eru tryggingarfélögin komin í slaginn. Já, þau hafa skellt hækkun á okkur bíleigendur. Samt voru þau að skila methagnaði!! Afsökunin er sú að það er halli á vátryggingarstarfsemini...en hagnaður á fjármálastarfsemi!! Síðast þegar ég vissi þá snérist vátryggingarstarfsemi um fjármálastarfsemi.
Og það sem svíður mér mest er að það eru góðu ökumennirnir sem eru að blæða. Ég hef tryggt í fjölda ára og aldrei verið tjónvaldur. Samt getur einhver óreyndur fjörulalli farið á bílasölu, keypt sér 300 hestafla tryllitæki og verið stórhættulegur í umferðini. Samt þarf viðkomandi ekki að borga hærri iðngjöld en ég! Og svo ef viðkomandi veldur tjóni, þá getur hann jafnveg hoppað yfir til næsta félags og fengið sómakjör. Auðvitað á að hækka tryggingar á þá sem eru tjónvaldar. Og einnig findist mér vert að beita ökuleyfissviptingum á krónískum tjónvöldum. Ef maður veldur t.d 5 tjónum á 2 árum þá er augljóst að viðkomandi er ekki hæfur til að aka bifreið. Og eftir að bónuskerfið var aflagt, þá er lítill hagur í að aka tjónlaust. Þetta eru skítlegir drulluhalar!!
Mánudagur 5. febrúar
Hið algera gagnsleysi
Eitt af því gagnslausasta sem ég hef séð í seinni tíð er "krakkaveðrið" á Stöð tvö. Ég held að sá aldurshópur sem á annað borð skilur "krakkaveðrið" þeir geta alveg jafn vel skilið venjulegu kortin, jafnvel þó að á þeims séu ekki myndir af krökkum í snjógöllum eða regngöllum eða hvað sem það er í hvert skipti. Og svo held ég að foreldrar og forráðamenn láti klæðnað barna sinna ráðast akkúrat þegar út skal fara.
Ég man nú ekki hvað ég var gamall þegar ég gat lesið í gömlu veðurkortin á RUV.. giska á að ég hafi verið svona 6 ára. Og ótrúlegt en satt... þá þurfti ég ekki að láta segja mér það fyrirfram hvernig ég ætti að klæða mig. Ef maður var að æða út eitthvað illa klæddur, þá benti mamma manni á að klæða sig betur. Ef manni varð kalt þá fór maður inn aftur og klæddi sig betur. Eða þá að maður beit bara á jaxlinn og hélt áfram að leika sér þó manni væri dulítið kallt. Ekki átti ég snjógalla eða kuldaskó. Þá voru það bara snjóbuxurnar, Nokiastígvélin, ullarsokkarnir, úlpan og prjónavetlingar. En börn eru svo brothætt og viðhvæm í dag.... Þau gætu bara DÁIÐ ef þeim verður pínu kalt
Föstudagur 2. febrúar
Bankaræningjar
Já, núna eru bankarnir nýverið búnir að skila inn ársuppgjörum sínum. Niðurstöðurnar eru vægast sagt jáhvæðar fyrir eigendur og stjórnendur viðkomandi fjármálastofnana, hagnaðurinn nemur tugum milljarða. En er planað að lækka þjónustugjöld? lækka vextina? Hækka innlánsvexti? Nei, ég held barasta ekki. Það er í besta falli planað að halda feita veislu fyrir feitustu kettina í hópnum.
Besta dæmið um ótrúlegann skíthátt íslensku bankana er helvítis verðtryggingin, sem er ekkert annað en bankinn að tryggja sig með beltum og axlarböndum að hann geti pottþétt kreyst sem allra allra mest út úr íslenska launaþrælnum. OG svona til að nudda smá salti í íslensk launamanns sár er sú staðreynd að ég get farið inní Glitnisbanka hér, fengið lán.. með 5% vötum og verðtryggingu sem sennilega svo hækkar og hækkar eftir því sem ég borga meira..eðlilegt?? EN ef ég flyt til Noregs, þá get ég farið inní GLITNISBANKA!! fengið íbúðarlán með 3,8% vöxtum og engri verðtryggingu!! Þetta er svo ótrúlega mikill drullusokksháttur að mann langar að fara þarna inn og drulla á gólfið hjá þeim!! Að norðmenn fái betri kjör en viðskiptavinirnir í heimalandi bankans er enganveginn líðandi. Spurning hvort hægt sé að taka lánið í Norge og búa samt hérna........ Ég held að Glitnir sé nú ekki eini bankinn sem er svona. Þetta eru gegnheilir drullusokkar og ekkert annað!!


