Mánudagur 28. maí

Menningarhelgin mikkla

Nýliðin helgi var örugglega ein sú menningarlegasta sem ég hef upplifað. Á föstudaginn lagði ég af stað suður til Reykjavíkur. Veðrið var nú ekkert spes, skítkalt og allt. Fyrsta stoppið var í Brú. Stökk inná klósettið og pissaði, komst að því að handþurkublásarin andaði köldu!! algert drasl. Sem betur fer var pappír þarna hinumegin... Jæja, þá var farið uppá Holtavörðuheiði. Þar tók við ÉLJAGANGUR og skafrenningur. Það voru smá snjódriftir alveg efst uppá heiðini þannig að maður ók frekar ók frekar varlega. En ég komst heilu og höldnu til Reykjavíkur. Þar var brunað beint niður í Borgarleikhús. Þar hitti ég elskuna mína. Mamma hennar var svo frábær að bjóða okkur turtildúfunum á söngleikinn Grettir. Þetta var hin fínasta sýning. Vel leikin og fjörug. Sviðið var einnig alveg geggjað flott.

Svo var tekin meiri menning á laugardaginn. Þá fórum ég og Bjögga mín á nemendasýningu á ljósmyndun. Frænka hennar var að sýna þarna meðal annara. Mikið af frábærum myndum. Þar hitti ég helling af "tengdafólki" m.a afa hennar Bjöggu sem endilega vildi lána okkur sumarbústaðinn sinn. Við þáðum það með þökkum. Eftir sýninguna skruppum við út að borða, fórum á Caruso. Ég fékk mér svakalega góða lúðusteik, Bjögga fékk sér eitthvað pastathingi.. man ekki alveg hvað. Svo fengum við okkur svaka góðan kókosís í eftirrétt. Svo var brunað á Þingvelli. Og þessi sumarbústaður er örugglega einn sá allra flottasti á landinu. Við gátum því miður ekki notað pottinn, en það var allt í lagi. Við nutum bara þess að vera á þessum fallega stað, skröbbluðum og drukkum hvítvín...... ég vann skrabblið ;)

Sunnudagurinn var nú samt mest menningarlegur. Þá skelltum við okkur á tónleikana. Uriah Heep og Deep Purple. Þetta var bara geggjað. Þvílík og önnur eins stemming. Þarna var að vísu maður rétt hjá okkur sem var í einhverju undarlegu ástandi. Hann veifaði drulluspöðunum í allar áttir. Ég var dauðhræddur að hann myndi slæma handleggjunum í dúlluna mína. En við nutum tónleikana ágætlega. Ég held að hún sé að rokkast doldið :D

Jæja, svo ók ég heim til Akureyris án þess að neitt bæri til tíðinda.

Sent af Nermal kl [22:19] Komment [2]

Fimmtudagur 24. maí

Mannát á Íslandi?

Það er ekki tekið út með sitjandi sældini að vera vert. Fann þessa sérstæðu auglýsingu í Blaðinu á laugardaginn síðastliðinn.

Grill%20copy.jpg

Sent af Nermal kl [16:54] Komment [3]

Kolefnisjöfnun

Nú virðist heitasta æðið í dag vera svokölluð kolefnisjöfnun. það virðist enginn vera maður með mönnum nema að hann kolefnisjafni ferðir sínar. Ég hef reiknað út að til að kolefnisjafna bílinn minn, þá verður að planta 22 trjám. Gott og vel. Aldrei að vita nema ég slái til og kolefnisjafni kaggann minn.

Eitt er þó sem veldur mér vangaveltum, það er auglýsingin frá Heklu, um grænu bílana.Þar eru þeir að vísa til þess að allir Volkswagen verða kolefnisjafnaðir fyrsta árið. Þarna hætti ég að skilja. Af hverju bara fyrsta árið? Samhvæmt mínum skilningi þá er trjám plantað til að umbreita því magni af koltísýrlingi sem bíllinn gefur frá sér í súrefni. Ef ég t.d læt planta 22 trjám, virka þau þá ekki á næsta ári líka? Og næstu ár? Eða eru þau kanski rifin upp eftir ár og seld einhverjum öðrum? Ég hélt nú að tréð ætti að virka betur eftir því sem það stækkaði. En kanski er ég bara svona slappur í plöntulíffræði.........

Sent af Nermal kl [12:54] Komment [2]

Sunnudagur 20. maí

Löng og góð hegi

Nú er senn liðin löng og góð, já og ansi viðburðarrík helgi. Það má segja að helgin hafi byrjað á fimmtudaginn. Þá var ég að vinna til 13, og vann þannig af mér föstudaginn í staðinn..3ja daga helgi. SWEEEET. Eftir vinnu var ég á þvælingi í bænum. Sá ég þá kolsvartann reykjarmökk stíga til himins. Þá dreif maður sig heim til að sækja myndavélina. Svo kom í ljós að einhverjir strákasnar höfðu kveikt í dekkjahaug við Hringrás, sem er í útjaðri bæjarins. Mikil mildi var að reykinn skyldi ekki leggja yfir bæinn, því reykur af brennandi hjólbörðum er víst ekki neitt svaka hollur til innöndunar. Ég allaveganna náði einhverjum myndum.

Eldur%20II%20copy.jpg


Laugardagurinn var einnig ansi góður. Þá skrapp ég með kærustunni minni á Græna hattinn. Já þið lásuð rétt. Kallinn er komin með kærustu. Bara magnað. Við fórum á upptökutónleika hjá Hundi í óskilum. Þessir gaurar eru alveg frábærir á tónleikum. Húmor og frumleiki í fyrirrúmi. Hverjum öðrum myndi t.d detta í hug að syngja Guttavísur við Procol Harum lagið Wider shade of pale? Magnað.

Sent af Nermal kl [15:34] Komment [7]

Þriðjudagur 15. maí

Út með þá

Nú er kasningunum lokið og stjórnin stóð. Þýðir ekkert að væla yfir því. En upp úr kjörkössunum kom ýmislegt forvitnilegt. T.d glás af útstrikunum á Björn Bjarnason og glæpamanninn Árna Johnsen. Talið er að Björn verði jafnvel færður niður um tvö sæti. Niður í 4 sæti þá. Þá finnst mér ansi hæpið að honum sé stætt á ráðherraembætti lengur. Enda held ég að kallinn sé alveg að missa sig. Menn eru meira að segja að tala um að hann ættli að skipa Jón H.B. Snorrason í embætti ríkissaksónara. Hversvegna í heitasta helvíti?? Maðurinn skeit svo svífirðilega uppá bak í Baugsmálinu.

Nei ég held að það sé alveg kominn tími á það gamla greppitrín. Þjóðin hefur talað. Burt með Björn!!

Sent af Nermal kl [19:43] Komment [3]

Sunnudagur 13. maí

Eurovision

Það er kanski að bera í barnafullann lækinn að tala um Eurovision. Við vitum jú öll hvernig fór í undankeppnini. Testósteróntröllinu rauðbirkna var kurteyslega hafnað. Auðvitað var þetta alltsamann eitt stórt samsæri frá mafíu austantjaldsþjóðana. Eiríkur stóð sig alveg glimrandi vel, og náhvæmlega ekkert hægt að setja út á flutning hans. En ýmis önnur lög virtust falla betur í kramið.

Um aðalkeppnina hef ég nú lítið að segja. Persónulega var ég hrifnastur af frammlagi Finnlands. Ótrúlegt en satt...... góð lög frá Finnlandi TVÖ ÁR Í RÖÐ. Þetta er merki um að heimurinn sé að farast..... Ég var ekkert sérlega uppveðraður af sigurlagi Serba. Söngkonann virtist vera barn k.d lang og Hiro Nakamura úr Heros. Eitthvað svona tregafullt ballöðudæmi. Góð söngkona og allt það... en mér fannst lagið bara leiðinlegt.

Þá hef ég bara eitt að segja " BAGGALÚT TIL BELGRAD !! "

Sent af Nermal kl [13:18] Komment [4]

Miðvikudagur 9. maí

Duglegi ég

Já ég var ekkert smá skaðræðis duglegur í dag. Ég hjólaði í vinnuna. Það var nú ekki mikið mál að hjóla í vinnuna, enda allt heila klabbið niður í móti eða á jafnsléttu. Vegalengdin er nú ekki mikil, eða c.a 1,6 km. Held að ég hafi verið c.a 4 mínútur að fara þetta.Svo þurfti maður lítið að hafa áhyggjur af umferðinni, enda klukkann 5:30 að morgni. Það er ekkert lengri tími en tekur að keyra. Svo þarf maður ekkert að pæla í að finna bílastæði. Ég notaðist nú samt við gamla garminn, hann dugar nú alveg sæmilega Ég ætti kanski að reyna að laga hjólið. Ef það tekst ekki þá nær það ekki lengra.

Sent af Nermal kl [18:14] Komment [2]

Þriðjudagur 8. maí

Hvar eru körfurnar?

Ég fer ansi oft í Bónus hér á Akureyri. Ég er nú ekki stórkaupandi,enda ekki með stórt heimili. Af þeim sökum nota ég svona handkörfu undir vörurnar. En þar liggur vandamálið. Ég fullyrði að í nær 50% tilfella þá eru engar handkörfur við inngang verslunarinnar. Það er ferlega böggandi. Maður þarf þá að fara framm að kössum til að ná í körfu. Og þar eru körfurnar í stórum stíl. Er virkilega svona sparlega ráðið af starfsfólki að það er ekki tími til að koma körfunum framm við innganginn. Oft sé ég nú t.d guttann sem sér um að sækja vagna af bílastæðinu sitja á rassgatinu og gera ekki neitt, Það má nú alveg nýta hann í þetta.

Ég hef bara orðið var við þetta í Bónus. Ekki í Nettó, né í Hagkaup. Þetta er kanski afsakanlegt í vissum tilfellum þegar allt er stjörnugeggjað að gera. En þetta gerist alltof oft.

Sent af Nermal kl [21:05] Komment [4]

Fimmtudagur 3. maí

Úti að hjóla.

Í gærkveldi fékk ég þá öndvegis hugmynd að tékka á reiðhjólinu mínu. Gripurinn sá var búinn að vera útí í garði, í algeru reiðileisi í ansi marga mánuði. Mér tókst nú að opna lásin og hjólaði af stað. Dekkin voru í linari kantinum svo að stefnan var sett á næstu bensínstöð. Þá fór maður nú að taka eftir ýmsum misbrestum í heilsu hjólsins.Í upphafi voru á hjólinu 18 gírar. En ég taldi þá í besta falli 5 í gær. Ekki beint gott. Svo eru bremsurnar að aftan svakalega stífar. Þarf að taka alveg Kazmæerinn á það til að bremsa almennilega. Aukin heldur er afturljósið brotið og skermurinn að aftann laus. Ætti ég kanski að fá mér nýtt hjól?

Sent af Nermal kl [19:31] Komment [3]