Fimmtudagur 31. janúar
Ljóti bíll janúar 2008
Jæja..... Nú er ég kominn með fyrsta ljóta bíl mánaðarins. Fann þennann skelfilega pickup á leið minni úr vinnuni í dag. Hann er assgoti gamall kvikindið á honum, og þessi stóru dekk undir þessum smáa bíl eru bara kjánaleg. Ekki eru svo ryðbæturnar að bæta hann í útlitinu.

Myndin gæti verið betri en ég gat einungis smellt af einusinni, því myndavélinn varð batteríislaus.
Þriðjudagur 15. janúar
Fábjáni mánaðarins
Ég held að Pétur Blöndal sé vafalaust fáviti mánaðarins. Þennann titil vil ég veita honum fyrir einstaklega fávitaleg ummæli á Bylgjuni um daginn. Þá var verið að ræða skattamál. Menn vildu nú meina að réttlátast væri að reyna að haga skattlagninguni þannig að þeir sem lægst hefðu launin fengju nú einhverja bót. En ekki vildi Pési pungur meina það. Fólk þarf ekki að vera láglaunafólk, fólk getur mentað sig, tekið á sig aukna ábyrgð.... skipt um vinnu. Jahá..... hvar var þessi maður að smíða geimflaugar?? Eiga þá allir að vera hámentaðir? Eigum við að hafa kerfisfræðinga í að grafa skurði? Heilaskurðlækna að afgreiða í Bónus og kjarneðlisfræðinga að dæla bensíni? Það verður jú ekki hjá því komist að vinna láglaunastörfin. Og ef þetta gengur nú allt upp og allir verða sprengmentaðir og þá kanski hækka lægstu launin. Hvað gerist þá? Jú þeir sem eru með næst lægstu launin eru komnir með hlutfallslega lægri laun og heimta meira... og upp stigan fer þetta alltsaman aftur og aftur er komið á sama punkt. Pétur Blöndal er bara veruleikafyrrtur
Miðvikudagur 9. janúar
Maður hoppar ekki í flottum smóking!
Síðastliðin föstudag fór ég ásamt henni Bjöggu minni á nýárstónleika Bubba Morthens. Þetta var eiginlega skyndiáhvörðun hjá okkur. Hún var að skoða tölvupóstinn sinn og sá að hægt var að fá tvo fyrir einn miða á tónleikana. Ef ekki hefði verið fyir þetta tilboð þá hefðum við ekki farið. Miðaverðið var sko 8900 kr á haus. Takk fyrir kærlega. Þannig að við drifum okkur í Laugardalshöllina. Þar fundum við sætin okkar og biðum þess að tónleikarnir hæfust. Stórsveitin kom sér fyrir og síðan Bubbi, íklæddur hvítum smókingjakka. Þetta var virkilega flott hjá kallinum. Hann tók flest sín bestu lög í oft á tíðum mögnuðum stórsveitarútsettningum. Svo skemdi ekki fyrir þegar snillingurinn Raggi Bjarna kom og söng My way af stakri snilld. Garðar Thór Cortez kom líka og söng lag. Flottur strákur. Á meðan á tónleikunum stóð skrapp Bjögga aðeins í sjoppuna til að kaupa gos. Kom aftur með hálfann líter af gosi... en engin tappi var á flöskuni. Hann var víst tekin af öryggisástæðum. Ég fatta það nú ekki alveg. Menn kanski hræddir um að fólk grýti flöskuni í Bubba, svona eins og gert var við prumphænsnið Robbie Williams hér um árið. Að mínu mati var flottasta atriðið á tónleikunum þegar Bubbi, Raggi Bjarna og Garðar Thór tóku saman lagið Sumarið er tíminn. Massíft atarna. Þetta var alveg 4450 króna virði, en kanski ekki alveg 8900 króna.........
Þriðjudagur 1. janúar
Annáll 2007
Jæja... nú er árið 2007 á enda runnið og þá er oft til siðs að líta yfir árið og spá í hvað það var sem stóð uppúr.
Breyting ársins: Ég kynntist henni Bjöggu minni. Að maður kynnist ástini fyrir alvöru er töluverð breyting. Svo nottlega skipti ég um vinnu og flutti búferlum. Varla hægt að breyta mikið meira
Sjónvarpsþáttur ársins: Næturvaktin. Það er ennþá hægt að búa til skemmtinlega íslenska þætti.
Bjáni ársins: "Listamaðurinn" sem gerði gjörning í Kanada fyrir skemmstu. Maðurinn kom fyrir einhverju sem lýktist sprengju á listasafni. Að sjálfsögðu varð allt vitlaust.
Ofviðbrögð árisns: Forseti Íslands varð þreyttur og ekki þótti annað tækt en að sækja hann á þyrlu landhelgisgæslunar!
Offréttamenska ársins: Fréttafluttningur St 2 af falli borgarstjórnarmeirihlutans. Lágmark tveir dagar fóru í fréttir af þessum atburðum. Vissulega stór atburður og allt það, en það má alveg koma með aðrar fréttir líka.
Rugl ársins: Lúkasarmálið. Þjóðin misssti sig vegna sögusagna um dráp á ljótum hundi. Hundkvikindið reyndist svo vera sprellifandi.
Sýning ársins: Laddi 6-tugur. Brjálæðislega fyndin sýning. Maður var hreinlega í ánægjuvímu þegar maður kom út.
Svindl ársins: Endurkoma Árna Johnsen í íslensk stjórnmál. Það eru 300 þúsund íslendingar og engin þörf á að setja glæpamenn á þing
Geðveiki ársins: Leikfangabrálæðið. Fólk stóð í röðum langtímum saman til þess eins að kaupa leikföng. Engu líkara en að þetta væri fyrsta dótaverslun landsins.
Böst ársins: Fíkniefnaböstið á Fáskrúðsfirði. Glæsilega af verki staðið hjá löggæsluyifirvöldum.
Par ársins: Ég og Bjögga mín, ekki spurning
Íþróttaafrek ársins: Glæsilegur árangur minn í golfi.
Geysp ársins:: Aron Pálmi. Já já hann fór í gegnum hræðilega reynslu og allt það, en persónulega er mér næsta sama þó að hann sofi með ljósin kveikt eða hvort hann sé kominn með kéllíngu.
Grenjuskjóða ársins: Geir Ólafs. Var ekki alveg sáttur við að láta endursýna þegar hann var að riðlast á gúmmídúkku.
Prumphænsn ársins: Femínsitafélag Íslands fyrir að væla yfir ótrúlegustu hlutum sem engu venjulegu fólki myndi láta sé detta í hug að röfla yfir.
Jæja...... ég læt þetta nægja í bili. Bæti máski við meiru síðar. Óska öllum lesendum bloggsins til sjávar og sveita gleðilegs árs og farsældar á nýhöfnu ári. Takk fyrir öll kommentin.


