Miðvikudagur 27. ágúst

Leiðinleg tónlist

Ansi oft kemur það fyrir að lög verða vinsæl sem eru mér ansi hreint ekki að skapi.Stundum eru lög spiluð til ólífis í útvarpi. Dæmi um það er sumarsmellurinn "Bahama" sem var spilað í hengla. Önnur lög eru bara einfaldlega fjöldaframmleitt rusl, svona eins og flest með Mercedes Club.

Flest lætur maður nú ekkert pirra sig en einstaka fara alveg afspyrnu mikið í taugarnar á manni. Allra nýjasta dæmið um slíkt er lagið "Þú komst við hjartað í mér" með hljómsveitini Hjaltalín. Lagið sjálft sem er eftir Pál Óskar er kanski ekki svo slæmt en þegar "söngvarinn" í Hjaltalín fer að baula þetta þá er manni ekki mikið skemmt. Maðurinn er nefnilega virkilega afleitur söngvari. Hann er álíka lagviss og Árni Johnsen. Ég botna ekkert í hvers vegna menn sem eru álíka falskir og ÉG eru yfirleitt að syngja opinberlega. Og á einhvern óskyljanlegann hátt verður þetta vinsælt.

Sent af Nermal kl [21:39] Komment [3]

Sunnudagur 17. ágúst

Umsóknin

Ég var boðaður í viðtal í sambandi við viðbótarlífeyrissparnaðinn minn á miðvikudaginn. Þarna var farið yfir ávöxtunina og þannig. En mest var nú farið í að reyna að selja mér frekari tryggingar. Helst vildi þessi ágæta kona selja mér sjúkdómatryggingu. Ég félst nú á að fá tilboð í tryggingar heimilisins. Bílatryggingar, innbú og sjúkdómatryggingar fyrir okkur bæði. Ég fékk umsókn fyrir sjúkdóma og slysatrygginguna. Mér varð nú ekki alveg um sel þegar ég kom heim og fór að skoða pappírna. Umsóknin er heilar 19 síður. Það er farið í ansi mikil smáatriði í þessari umsókn. Þarna er m.a spurt um heilbrigðissögu föður, móður og systkyna. Þar sem ég á ÁTTA systkyni þá gæti þetta orðið ansi mikil skrif. Maður fær óneytanlega á tilfinninguna að tryggingarfélagið sé að fullvissa sig um að ég þurfi ekki á þessari tryggingu að halda. 19 síðna umsókn SJITTTT!!!

Sent af Nermal kl [11:43] Komment [4]

Þriðjudagur 12. ágúst

Veggjakrot

Veggjakrot er eitt af þessu sem ég alls ekki skil. Þegar ég tala um veggjakrot er ég ekki að tala um svona spraymyndir sem oft á tíðum geta verið virkilega flottar og til príði. Ég er að tala um þetta svokallaða "tagg". Þar eru einhverjir bavíanar að krassa gælunafnið sitt á hitt og þetta. Veggi, garðbekki, umferðarskilti´, bíla og hvaðeina. Spurning hvað rekur þetta lið áfram. Skemmandi eignir annara og soleiðis. Flestir eru þeir með tagg sem ekkert er hægt að lesa úr. Þó var einhver vanvitinn búinn að skrifa "Casa" á nokkrum stöðum hér í Breiðholtinu. Eða kanski er þetta bara auglýsing fyrir húsgagnaverslunina Casa.....

Ég vil meina að þessir einstaklingar séu einhverkonar blanda af hundum og smábörnum. Hundar pissa á hitt og þetta til að merkja sér svæði...svona eins og taggarafíflin. Hundarnir hafa þó þá afsökun að þetta er bara þeirra eðli. Smábörn eiga það til að krassa á veggi, en það er bara gert af óvitaskap. Ég held að flestir krotarana séu nú eldri en 3ja ára og viti að maður á ekki að krassa á annað en blöð og þessháttar.

Svo þarf líka að refsa þessum gerpum ef þau nást. Viðkomandi ætti að þurfa að þrífa eftir sig. Ef einhver næst við að krota á vegg, þá ætti sá hin sami að þurfa að þrífa allt svæðið, allt krotið. Ekki bara sitt.

Kanski er þetta bara leiðinlegt nöldur, en það er bara voðalega hallærislegt að setjast á almenningssalerni og hurðinn er útkrotuð eftir einhvern sem kallar sig Zbzkz eða Botzx......

Sent af Nermal kl [22:17] Komment [2]

Sunnudagur 10. ágúst

Péturson open 2008

Í dag fór framm hið árlega Péturson open golfmót. Þetta er fjölskyldugolfmót í föðurfjölskyldu Böggunnar minnar. Í fyrra náði ég 3ja sæti á mínu fyrsta móti og var þá að spila á velli í fyrsta sinn. En núna í ár erum við búin að æfa okkur hellings. Höfum farið á Grafarkotsvöll nær daglega. Einnig höfum við prufað aðra velli.

En aftur að mótinu. Núna fór það framm á Arkarvelli, golfvelli sem er við Hótel Örk í Hveragerði. Veðrið var alveg ljómandi gott. Skipt var niður í holl og leikurinn hófst.Ég mætti til leiks með fagurgula "Sponge Bob" kúlu. Mér gekk svona upp og ofan. Náði engum pörum eða fuglum. Samt einhverjum skollum og skrömbum. Það var nú reynt að stöðva mig þegar ég stóð á teignum á einni holuni og kúla kom svífandi og small í lærinu á mér. Pínu óþægilegt en ekkert til að væla yfir. Að leik loknum var skorkortunum skilað til talnaspekingana sem hófust handa við að reikna þetta allt saman. Eftir mikkla útreikninga sem fæstir skilja þar sem reiknuð er inn forgjöf og þannig þá stóð ÉG uppi sem sigurvegari. Fékk ég afhendann bikarinn sem er í verðlaun. Og svona til að gera góðann dag ennþá betri þá lenti Björg í 2. sæti og tengdapabbi í 4. sæti. TÖFF Í MEIRA LAGI!!

Sent af Nermal kl [21:08] Komment [4]