Miðvikudagur 3. október
Stæðabjáni 9
Ég held að þessi ágæti Scania trukkur toppi nú flest. Ég sá hann við Staðarskála í Hrútafirði nú um daginn þegar ég var að aka suður til Reykjavíkur. Þarna tekur hann heil SEX stæði, og er auk þess að einhverjum hluta í tveimur til viðbótar. Sumsé að hluta til eða í heild í ÁTTA stæðum. Og svona til að það sé á hreinu þá eru stæði fyrir trukka þarna á staðnum. Menn eiga ekki að þurfa að leggja í fólksbílastæðunum.

Miðvikudagur 24. janúar
Stæðabjáni 8
Aftur vek ég hér upp klassískann lið.Hér fann ég einn sem augljóslega telur sig of merkilegann til að leggja eins og maður. Nema viðkomandi sé aðframmkominn af fótafúa. Allaveganna er jeppakvikindinu parkerað uppá gangstétt. Svona frekja og tillitsleysi er viðkomandi bíleiganda til skammar. Það eru hellings mörg stæði þarna örskammt frá... 2ja mínútna labb hámark. Þannig að tímaskortur er giska hæpin afsökun.

Myndin er að vísu tekin í myrkri..... en þetta sést nógu vel
Mánudagur 11. september
Stæðabjáni 7
Já, þeir eru á hverju strái þessir einstaklingar sem ekki kunna með neinu móti að leggja. Fann einn sem augljóslega var að farast úr leti eða eitthvað. Allavegana er góður slatti af stæðum ekki svo ykja langt frá. Samt þurfti viðkomandi að skella bílnum uppá gangstétt og líka aðeins út á götu. Sumir kunna bara ekki að skammast sín.

Mánudagur 21. ágúst
Stæðabjáni allra stæðabjána !!!
Já, hér er besta stæðamynd sem ég hef náð. Djöfull var ég sáttur við að vera með myndavélina mína í bílnum þegar ég sá þetta. Þetta er tekið bakvið Brimborg í Reykjavík. Ég hélt að lögreglan leitaðist við að vera öðrum fyrirmynd í þessum efnum. Er löggunni stætt að sekta mig fyrir að leggja ólöglega núna? Af einskærri tillitssemi við lögregluna þá ættla ég EKKI að blörra númerið á bílnum.

Þetta var ekki lögga í útkalli. Bíllinn var þarna ennþá þegar ég kom seinna eftir að hafa farið í Kringluna og í keilu. Á ég kanski að senda Birni Bjarnasyni eintak af myndini??
Sunnudagur 4. júní
Stæðabjáni 6
Ég held að þessum einstaklingi hafi tekist að leggja eins bjánalega og hugsast getur. Ekki nóg með að fíflið sé á risavöxnum reðurstækkandi innanbæjarskriðdreka, heldur er hann líka með þennann líka skaðræðis bát í eftirdragi. Og þessari samsetningu þurfti viðkmandi að planta uppá gangstétt og útá götu líka. Batshelvítið var það mikið út á götu að það truflaði umferð. Og ég efast um að það hefði verið hægt að ganga frammhjá kombóinu eftir gangstéttinni. Og aukin heldur þá er risastórt bílaplan örskammt frá þeim stað sem hann lagði. Allaveganna tók ég myndina frá téðu plani. og þar var NÓG PLÁSS En sennilæega er skriðdreka og skipstórinn of merkilegur með sig, já eða bara svona ógeðslega mikill aumingi að hann getur eki druslast til að labba örfáa metra.

Mánudagur 20. febrúar
Stæðabjáni 5
Sumir virðast halda að með því að eiga fínan og dýrann bíl þá sé þeim flest leyfilegt. Það virðist allaveganna vera caseið með þennann Benz eiganda. Þessa mynd tók ég við Bónus hér á Akureyri. Hann leggur þarna uppá upphitaðri gangstétt. Kanski er Benzjeppinn svo mikið skrapatól að hann þolir ekki að standa í snjó. Held samt frekar að eigandinn sé latt, feitt tillitslaust kvikindi sem enga virðingu ber fyrir nokkrum sköpuðum hlut..... Kanski á Jón Ásgeir hann.... eða Jóhannes sjálfur

Hver sem á hann þá getur hann haugast til að leggja í venjuleg stæði eins og við hin. Skammastín Benzakall/kelling
Sunnudagur 29. janúar
Stæðabjáni 4
Já það er ótrúlegt hvað sumt fólk getur verið ömurlega heimskt í hausnum. Ég fór í gær á bílasýningu hjá Höldur hér á Akureyri. Svo þegar ég hafði skoðað nægju mína ættlaði ég að brenna burtu á mínum glæsifák. EN það var bara hægara sagt en gert, því einhver skítadólgur hafði plantað sínum KIA Sorento fyrir aftan bílinn minn og lokað mig gersamlega inni. Tek það framm að plássið var mun minna en það virðist vera á þessari mynd, það var kanski góður meter sem var á milli Honda jeppans og Sorentosins. Svo hef ég ekki fyrir því að scrambla númer hjá svona mönnum. þeir eiga það ekki skilið.
Svo að lokum kom nú gamall kallfauskur sem átti téðan bíl. Ég sagði honum að það væri nú alveg í lagi að hugsa aðeins um aðra þegar maður leggur. Hann sem er augljóslega fáviti sagði bara, Ó ég hélt að þetta væri bílasölubíll. Já einmitt, bílasölubílar snúa nefnilega alltaf afturhlutanum út og eru alltaf mjög óhreynir. Mig dauðlangaði að snappa og hella mér feitt yfir gamla gerpið. En hann hefði örugglega orðið svo hræddur að hann hefði fengið hjartastopp... Hver hefði þá átt að færa bílinn?
Fimmtudagur 8. desember
Frekjupungur.
Ég rakst á þennan Dodge Magnum fyrir utan Smáralindina á sunnudaginn. Eins og glöggt sést þá er hann í mjög skýrlega mektu stæði fyrir fatlaða. Aukin heldur er bíllinn í gangi.
Mann langaði þannig einna helst að stökkva inn í bílinn og spana í burtu.... helst að fela bílinn einhverstaðar á góðum stað. Hann.. eða hún heldur kanski að það sé í lagi að stela stæðum sem ætluð eru fötluðum bara vegna þess að hann er á svo stórum og dýrum bíl. Fólk getur bara druslast til að finna sér stæði. Ég fann stæði og þar sem ég lagði var hellingur af lausu plássi. Þessi farlama auli er ekkert of góður til að rölta örfá skref.
Sunnudagur 20. nóvember
Stæðabjáni 2
Þessi ágæti bílstjóri er hugsanlega litblindur, eða lesblindur....já eða jafnvel siðblindur. Jafnvel allt ofantalið. Þarna er verið að ræna hálfu stæði sem er ætlað fötluðu fólki. Myndin er eins og sú síðasta tekin á bílastæði Glerártorgs hér á Akureyri
Ég kíkti í gluggann á bílnum og það er ekkert fatlakort í honum.Þetta bláa sem speiglast í frammrúðunni er stöðumælaklukka. En það gæti verið að þessi bílstjóri væri 30% öryrki.... þar sem c.a 30% af bílnum eru í stæði fyrir fatlaða....... Ég ættla mér að halda áfram að taka myndir af bílum sem lagt er fáránlega. Ég tók út númerið á fyrsta bílnum, og númerið sést ekki á þessum. Spurning hvort það má láta númer sjást.


