Föstudagur 15. september

Barn Brooke Burke

Gula pressann hefur það eftir áræðanlegum heimildum að veðbanki hafi verið settur upp í sambandi við hver á í raun barn hinnar fögru Brooke Burke sem þekktust er fyrir að vera kynnir í Rockstar þáttunum.

TOPP 10

1. Tommy Lee........... 1/3
2. Magni.....................1/7
3. Toby Rand ............1/9
4. Gilby Clarke ...........1/12
5. Jason Newsted .....1/ 18
6. Dillana ....................1/22
7. Maðurinn hennar..... 1/35
8. Ilka Numisto ..............1/60
9. Ég .............................1/75
10. Lucas Rossi ............1/700.000.000.000.000

Sent af Nermal kl [17:18] Komment [3]

Þriðjudagur 7. mars

Völvuspá Gulu pressunnar

Já, nú loksins hefur náðst samkomulag við völvu fyrir Gulu pressunna. Hin heimsþekkta ungverska völva Skanja Wabish hefur lagt spilinn fyrir okkur og sagt frá óorðnum og óvæntum hlutum

1. Finnland mun sigra Eurovision með rapplaginu Heija Suomi samið og flutt af Mika Häkkinen

2. Björgófur Thor mun kaupa Færeyjar og selja þær svo með hagnaði til Vladimírs Shirinovskis

3. Geir Ólafs mun slá í gegn í El Salvador og flytjast þangað. Hann mun ekki eiga afturhvæmt

4. Leoncy mun heyra upptöku af egin tónlist og skjóta sig í frammhaldi af því

5. Lennox Lewis mun flytjast til Íslands og falast eftir að komast í íslenska boxlandsliðið

6. Bakkabræður munu kaupa álverið í Sraumsvík og breyta því í skriðdrekaverksmiðju

7. Rolling Stones munu koma til landsins á laun og halda leynilega tónleika fyrir moldríka íslenska bisnesskalla í skála jöklaransóknafélagsins á Vatnajökli

8. Sigga Beinteins mun hætta í tónlist hér á Íslandi og snúa sér alfarið að stjórninnarstörfum í alþjóðasamtökum samkynhneigðra tónlistarmanna

9.Egill Gilzenegger lætur draum sinn rætast og lætur breyta sér endanlega í Ásthildi Helgadóttur.

10. Mikið magn af gulli og demöntum mun finnast á Akureyri sem leiðir til þess að Akureyri verður sjálfstætt landsvæði alveg óháð hinum skrínum.

Sent af Nermal kl [22:19] Komment [0]

Þriðjudagur 27. september

Baugur draugur

Gula pressann er að sjálfsögðu með Baugsmálið í athugun og hefur grafið dýpra í sorann en flesta grunar. Málið er að þetta byrjaði alltsaman þegar Jón Ásgeir stal unnustu Jóns Geralds... þetta átti að verða 3some en Jón Ásgeir læsti káetuni á Thee Viking og Sullenberger fékk ekki að vera með. Hann fékk heldur ekki að vera með Jóhannesi og Jónínu Ben. Hvaða maður verður ekki æfur af svona? Hann langaði bara í 3some.

Ekki gekk honum betur síðar þegar hann reyndi að komast með Jónínu Ben og Styrmi Mogga í 3some, bara vesen á kallinum. Einnig hefur heyrst að hann hafi sóst eftir hópsexi með Gísla Marteini, Agli Gilzenegger, Hannesi Hólmsteini, Leoncy, Jóhönnu Sigurðardóttur, og Jóa Fel.... enn var honum hafnað, lokaður klúbbur !!

Heyrst hefur einnig að Jón Gerlal sé tilbúinn að láta allar sínar umhvertannir niður falla ef hann fær að fara í rúmmið með Davíð Oddssyni og Völu Matt... þau ku vera að skoða málið.....

-GULA PRESSANN-
Sefur aldrei

Sent af Nermal kl [17:30]

Laugardagur 3. september

Nýr frammbjóðandi

Gula Pressann er að sjálfsögðu með puttann á púlsinum í væntanlegum borgarstjórnarkostningum. Eins og allir vita þá ættlar sjónvarpsstrákurinn Gísli Marteinn að demba sér í slaginn fyrir sjálfstæðisflokkinn. Nú nýverið hefur annar ungur maður sýnt borgarstjóraembættinu áhuga, það er engin annar en masskaköggullinn Egill Gilzenegger. Gula pressann náði viðtali við Gilz þar sem hann var á rúntinum og ynnti eftir því fyrir hvaða flokk hann ælltaði að bjóða sig framm. Það er sko flokkurinn þarna með fuglinum!!!! það er sko lang flottasti flokkurinn. Aðspurður um helstu stefnumál þá vildi hann lækka gjöld á sólbaðsstofur og tanklefa. Ennfremur gera kraftpúst að skyldu á bílum í eigu borgarinnar. Ekki var hægt að sleppa Gilz án þess að spyrja hann um afstöðu gans til flugvallarins. Sko þetta er einfalt, og mér finnst það stórfurðulegt að engin hafi fattað þetta. Við höfum völlinn einfaldlega neðanjarðar!!! Þá má bara byggja á landinu ofaná... og á er flugvöllurinn samt þarna voða nálægt uppáhalds skemtistaðnum mínum. Gula pressann óskar Agli Gilzenegger velfanaðar í borgarstjórastólnum.

Sent af Nermal kl [02:44]

Fimmtudagur 16. júní

Jackson til Íslands

Nú nýlega var tónlistamaðurinn Michael Jackson dæmdur saklaus af þeim ákærum sem á hann voru bornar. Í frammhaldi af því hefur hann lýst því yfir að hann vilji flytja burt og búa einn einhverstaðar fjarri skarkala heimsins.
Gula Pressann hefur eftir áræðanlegum heimildum að það standi yfir samningaviðræður milli Jacksons og íslenskra stjórnvalda um kaup Jacksons á Grímsey.Og munu þá íslensk stjórnvöld eignast Neverlandbúgarð Jacksons. Í Grímsey langar hann að setjast að. Þá verða íbúar eyjarinnar fluttir burt. Jackson hygst greiða sama verð fyrir húsin í Grímsey og fæst fyrir sambærileg hús á höfuðborgarsvæðinu. Higgst hann setjast að í grunnskóla staðarins og breyta kirkjunni í keilusal. Einnig eru líkur fyrir því að fleyri útlendingar flytji með Jackson í Grímsey og hafa þar heyrst nofn eins og Mike Tyson og Bobby Fisher.... Gula Pressann mun halda áfram að fylgjast með þessu máli

Sent af Nermal kl [23:03]

Laugardagur 4. júní

Leyndarmálið ljóta

Gula pressann hefur komist að leyndarmáli sem reynt hefur verið í áraraðir að halda niðri. "þórslíkneskið" sem fannst á Eyrarlandsholti og er mikils metið af fræðimönnum jafnt sem öðrum er alls ekki Þórslíkneski. Þetta sýnir einfaldlega íslenskan bónda að éta niðursettning. Eins og klárlega sést á myndini þá heldur hann um fætur fórnarlambsins og er að graðka því í sig.

2thor.jpg
*mynd frá vef Þjóðmynjasafnsins*

Það er augljóst að fræðimenn vilja ekki að þetta leki út, því var þessi falskenning sett framm. Allt skal gert til að þurka þennann myrka kafla útúr íslandssögunni. En Gula Pressann er með eyru og augu alstaðar, og er ekki lengi að finna svona plott gegn þjóðinni, já og heiminum öllum

Sent af Nermal kl [00:20] Komment [2]

Þriðjudagur 1. mars

Tromp Fishersvina

Nú ert Sæmi rokk kominn til Japan, að sögn til að sækja vin sinn hann Bobby Fischer. Einnig fór íslensk sendinefnd út til að liðka fyrir málinu. Það var talað um að þessi nefnd væri með tromp uppí ermini, eitthvað sem ekki var gefið upp. En GULA PRESSANN hefur af sinni alkunnu snilld komist að því hvað þetta tromp er. Trompið er ekkert annað en sjálf Leoncy. Ef þeir ekki láta þá hafa Fischer þá verður Leoncy skilin eftir í Japan!!!!!!! Og ef þeir láta sér ekki segjast við Leoncy þá verður bara að senda fleyri... Geir Ólafs, Rassa Prump, Önnu Bongó, Hallbjörn Hjartarson, Bibba Curver.... og ef það dugar ekki þá Árni Johnsen.

Sent af Nermal kl [21:11] Komment [1]

Laugardagur 8. janúar

Formula Baugur

Já nýjustu fyrirættlannir baugsmanna eru síður en svo smáar í sniðum. Nú hefur Gula Pressann það eftir áræðanlegum heimildum að þeir séu að spá í að taka þátt í formúluni 2006. Þar horfa þeir fyrst og fremst til Minardi liðsins sem hefur átt í fjárhagsvandræðum undanfarin ár. Mun liðið þá heita Team Baugur og bera hinar ýmsu aglýsingar fyrirtækja í eigu baugs. Einnig hefur komið til tals að hafa bílin Bónusgulan eða jafnvel grísableikan. Höfuðstöðvar liðsins eiga að vera hér á Íslando og hefur þegar verið talað við brautarhönnuði um að leggja braut sem verður í laginu eins og grís. Sjónrænt mjög úr lofti sagði Jón Ásgeir í samtali við Gulu Presunna. Við erum orðnir svo öflugir að okkur vantaði hreinlega eitthvað til að nota peningana í, ekki viljum við þurfa að borga of mikin skatt, bætti Jón við. Ekki hefur verið rætt um hverjir eiga að aka en Fjölnir Þorgerisson hefur þegar falast eftir stöðuni.

Sent af Nermal kl [02:23] Komment [1]

Mánudagur 20. desember

Bobby Fischer

Samhvæmt mínum heimildum stefnir flest í það að skáksnillingurinn Bobby Fischer muni giftast til íslands. Sá lukkulegi er engin annar en Ástþór Magnússon. Þeit ku hafa hisst á geðlyfjaráðstefnu í Úkraínu fyrir skömmu og þá fellt hugi saman. Þeim fannst þeir passa svo vel saman, því þeir eiga það jú sameiginlegt að allir eru svo svakalega vondir við þá. Auk þess að vera báðir alveg vaðandi klikkaðir. Það er ótrúlegt að uppgötva eigin samkynhneigð svona sagði Ástþór í viðtali. Samhvæmt heimildum munu þeir verða gefnir saman á Þingvöllum á miðnætti gamlársdags. Á næsta ári munu þeir því ganga undir nöfnumnum Bobby Fischer Wium og Ástþór Magnússon Wium Fischer. Svaramenn verða Sæmi Rokk og Sverrir Stormsker.

Sent af Nermal kl [20:45] Komment [2]

Mánudagur 20. september

Leyndarmál Davíðs

Enn er ég að uppgötva leyndarmál í samfélaginu. Leyndarmál svo ótrúleg að ekki er hægt að trúa þeim. En það er haft eftir mjög svo áræðanlegum heimildum að Davíð Oddsson sé ekki maður í raun og veru, heldur geimvera. Það bara hlýtur að vera. Einhverra hluta vegna kýs þjóðin hann aftur og aftur sama hvað hann traðkar á henni. Þar notar hann sérstaka dáleyðslugeisla sem hann sendir úr krullunum sem hann er með á hausnum. Sendir þær t.d í gegnum sjónvarpið í áramótaávarpinu. Sem betur fer eru c.a 60% þjóðarinnar ónæmur fyrir þessum hættulegu geislum, enda er fylgi sjálfstæðisflokksins vanalega í kringum 40% En svo vissi hann að ég var í þann veginn að fletta ofan af honum þannig að hann eftirlætur stólinn til félaga síns Halldórs Ásgrímssonar. En auðvitað tók hann utanríkisráðuneytið.... Til hvers? jú til að geta farið meira útúr landinu án þess að vekja gunsemdir. En ekki fer hann til útlanda, ó nei.... hann fer til sinnar heimaplánetu Xdion 8 og safnar þar kröftum til frekari illskuverka, jafnvel reynir hann að breyta dáleiðslugeislunum og gera þá öflugri, jafnvel svo öfluga að allir kjósi Sjálfstæðisflokkinn.... eða kanski allir nema ég.........

Sent af Nermal kl [22:26]

Föstudagur 10. september

Halldór Laxnes?

Ekki eru menn á eitt sáttir um að Halldór Laxnes hafi í raun og sann skrifað allar þær bækur sem honum eru eignaðar. Einhverjum bókum ku hann hafa skilað inn á handskrifuðum blöðum. Hver sá sem hefur séð rithönd Halldórs veit að hún er með öllu ólesanleg. Þannig er hægt að leiða að því líkum að þeir sem hafa prófarkalesið og búið bókina undirm prentun hafi hreynlega þurft að giska á hvað kallinn var að pára. Þannig að það er allt eins líkegt að einhver óþekktur prentari hafi skrifað þessar bækur sem m.a öfluðu Halldóri Laxnes bókmentaverðlaunum Nóbels á sínum tíma. Þetta er nottlega ekki neitt annað en skandall..........

Sent af Nermal kl [23:40]

Fimmtudagur 9. september

Latibær blómstrar

Það er ekki að spyrja að honum Magga Skef. Latibær er að brillera í Bandaríkjunum. Gula Pressann hefur það eftir áræðanlegum heimildum að í bigerð sé bíómynd um fyrirbærið. Og samhvæmt sömu heimildum er þegar farið að ráða í hlutverkin. Hlutverk Íþróttaálfsins leikur Jackie Chan, Solla Stirða verður leikin af Angelinu Jolie. Ekki er búið að ganga frá hver leikur Glanna Glæp.. en viðræður ku standa yfir við Arnold Schwartzenegger, Ron Jeremy og Gene Simmons um hlutverkið. Meiri fréttir af því síðar............

Sent af Nermal kl [21:01]