Sunnudagur 8. júlí

Die hard 4.0


200px-LFoDHPoster.jpg

Fór í bíó í gær á myndina Die hard 4.0. Eins og flestir vita á er þetta fjórða myndin í Die hard seríuni. Þarna á jaxlinn John MacClaine í hökki við bíræfinn tölvuþrjót sem beitir alskins tölvubrellum til að klekkja á þjóðini.

Ég varð sko ekki fyrir vonbrygðum. Þarna er á ferðini einhver svakalegasta hasarmynd sem ég hef séð. Keyrslan í myndini var svakaleg og hasaratriðin hvert öðru stórfenglegra. Bruce Willis hefur sennilega aldrei verið svona óendanlega svalur, og verður það sjálfsagt aldrei aftur. Það var ekkert verið að eyða tíma í einhverja ást og rómantík, heldur bara sprengingar, skotbardagar, slagsmál og bílahasar. Myndin er fullir tveir tímar, en það er varla mínúta sem manni leiðist. "ype kae yay........

Stjörnugjöf *****

Sent af Nermal kl [17:56] Komment [2]

Mánudagur 11. júní

Pirates of the Carebeean.

Á föstudaginn fór ég með elskuni minni í bíó. Fyrir valinu varð þriðji hluti Pirates of the Carebeean myndana, At worlds end. Í stuttu máli er myndin um ferð til að sækja aðal söguhetjuna, Jack Sparrow á heimsenda, þar sem hann var étinn af skrímsli í mynd tvö. Og ínni söguna fléttast ráðabrugg um að útríma öllum sjóræningjum heimsins. Og auðvitað slatti af rómantík, sverðaglamri og fallbyssudrunum.

Helsti galli myndarinnar er að hún er alltof alltof löng. Næstum því þrír tímar. Góður slatti af myndini fer í einhvern óskyljanlegann þvæling. Svo þegar manni finnst myndini vera lokið þá heldur hún áfram. Mig grunar jafnvel að endirinn sé hafður svona til að eiga möguleika á að gera eina Pirates mynd til viðbótar. Það var virkilega gaman að sjá gamla sveskjufésið Keith Richards þarna í myndini sem pabba Jacks Sparrow, og hefði hann alveg mátt hafa aðeins stærra hlutverk. Þessi mynd er tæknilega vel unninn og með risastórum og flottum bardagaatriðum, en eins og áður sagði svona klukkutíma of löng. Mér fannst hún varla hrökkva almennilega í gang fyrr en eftir hlé. Leikararnir komast sæmilega klakklaust frá borði og ber Jhonny Depp þar af sem hin skemmtinlegi spjátrungur Jack Sparrow. Þetta er örugglega mynd sem fellur vel í kramið hjá gallhörðum Pirates aðdáendum.

Stjörnugjöf ***

Sent af Nermal kl [21:09] Komment [3]

Mánudagur 23. apríl

Perfect stranger

perfect_stranger_poster_large.jpg

Á föstudagskvöldið fór ég í bíó. Fyrir valinu varð myndin Perfect stranger. Myndin fjallar um blaðakonuna Rowenu, leikin af Halle Berry sem er giska harðsnúin og svífst einskis við að finna góða blaðagrein. Vinkona hennar lætur hana hafa vafasöm gögn um athafnamannin Harrison Hill sem leikin er af Bruce Willis. Stuttu síðar finnst lík vinkonunar illa farið. Hefst þá æsileg atburðarrás þar sem Rowena og félagi hennar leikinn af Giovani Ribisi grafast fyrir um sannleikan um Harrison Hill og mögulegum tengslum hanns við vofeiglegt fráfall vinkonunar.

Myndin er góð að mörgu leiti. leikurin er finn, sérstaklega hjá hinum taugatrekkta karakter sem Ribisi leikur. Berry og Willis eru einnig góð í sínum hlutverkum. Spennan nær að' halda sér nokkuð vel í gagnum alla myndina, og endirinn kemur ansi mikið á óvart.

Stjörnugjöf ***

Sent af Nermal kl [21:05] Komment [4]

Sunnudagur 25. febrúar

Blood Diamond.

Um daginn fór ég í bíó til að sjá myndina Blood diamond. Myndin gerist að mestu í Afríkuriíkinu Siera Leone og þar lifir braskarinn Danny Archer á smygli og ýmiskonar neðanjarðarstarfsemi. Í landinu ríkir mikil upplausn, borgarastyrjöld og ýmis óáran. Inn í söguna fléttast alþýðumaðurinn Solomon. Hann verður fyrir því að vera hnepptur í þrældóm af skæruliðum sem nota hann til að finna demanta sem síðan eru notaðir til að fjármagna vopnakaup... svokallaðir blóðdemantar. Solomon finnur þarna risavaxin bleikan demant sem honum tekst svo fyrir algera tilviljun að koma undan og grafa í jörð.

Síðan fer allt að snúast um eltingaleik við téðann demant. Allir vilja ná í hann og veigra sér ekki við að drepa og svíkja til að komast yfir demantinn góða. Meðal annars ræna skæruliðarnir syni Solomons til að nota hann til hernaðar.

Myndinn er að flestu leiti mjög góð. Leonardo Di Caprio stendur sig vel sem krimminn Danny og er augljóslega vaxinn upp úr að vera bara sætur strákur. Djimon Hounsou stendur sig einnig vel sem Solomon.

Myndin sjokkerar mann einnig töluvert. Í svona upplausn er mannslífið svo ótrúlega ódýrt og fólki kálað fyrir minnstu sakir. Það sem mér fannst hinnsvegar mesti óhugnaðurinn voru barnungir hermenn. Börn voru tekin frá foreldrum sínum og heilaþvegin. Tilbúnar sálarlausar drápsmaskínur. Viðbjóður.

Í stuttu máli sagt mjög fín mynd sem ég mæli óhikað með ***1/2

Sent af Nermal kl [15:21] Komment [1]

Sunnudagur 15. janúar

King Kong

poster-3102.jpg
Í gær fór ég og sá stórmyndina King Kong. Þessi mynd er í leikstjórn Peters Jackson sem er að sjálfsögðu frægastur fyrir Lord og the rings þrennuna.
Í stuttu máli segir myndin frá ´kvikmyndaleikstjóra (Jack Black) sem vantar sárlega að búa til mynd sem hann getur grætt á. Inn í myndina fléttist ung leikkona sem vantar hlutverk. Þau ásamt áhöfn sigla til hinnar goðsagnakendu Hauskúpueyju þar sem þau rekast á blóðþyrsta villimenn, risaeðlur, stóreflis skordýr og svo auðvitað apaflykkið hann Kong. Upp takast ástir með leikkonuni og apanum. Svo þegar allt fer í rassgat með kvikmyndatökurnar, og fullt af fólki er búið að drepast, þá bregður leikstjórinn á það öndvegis ráð að nappa bara Kongaranum af eyjuni og sýna hann í New York. Og eins og flestir vita þá endar það með ósköpum

Satt best að segja þá fanst mér myndin ekki vera nógu góð. Tæknibrellurnar voru margar hverjar mjög flottar, allaveganna var Kong assgoti magnaður. En þarna voru atriði með risaeðlum, þær voru bara ekki nógu flottar, voru flottari í Jurasic Park á sínum tíma. Myndin er líka full löng og væmin á köflum. Sumt var líka doldið óskiljanlegt, t.d hvernig þeim tókst að koma margra metra hárri górillu út í skipið, frá fjöru þar sem einungis var hægt að lenda árabátum. En væmnin fór mest í taugarnar á mér. Aumingja stóri Kong var svo einn... gamall og síðastur af sinni tegund. Svoleiðs verið að reyna á fullu að láta mann fá samkend með apanum. Hún var samt á köflum assgoti fyndin. Leikurinn var bara ágætur, og kom mér þar mest á óvart ágætir taktar Jack Black sem til þessa hefur mest verið í léttgeggjuðum grínmyndum. En í heild sinni varð ég fyrir nokkrum vonbrygðum, allaveganna ánægður með að ég fór frítt í bíó, hefði ekki viljað borga 800 kr fyrir að sjá þessa mynd

Stjörnugjöf **


Sent af Nermal kl [21:49] Komment [0]

Fimmtudagur 1. desember

Saw II

getdata.jpg

Í kvöld sá ég spennuhrollvekjuna Saw II, sem sýnd er í Borgarbíó. Þetta er eins og nafnið gefur til kynna frammhald hinnar mögnuðu Saw. Þarna snýr fjöldamorðingin "Jigsaw" aftur, með enn flóknari og banvænni þrautir en áður. Nokkara manneskjur eru lokaðar inn í húsi þar sem banvænt gas svífur um salarkynin og banvænar gildrur leinast við hvert fótmál.

Ég hafði mjög gaman af þessari mynd. Sum atriðin voru ansi hrottafengin en aldrei þannig að þau væru ekki hluti af söguþræðinum. Myndin datt aldrei niður og hélt manni alveg föngnum frá fyrstu mínútu. Hún var aldrei fyrirsjáanleg og endirinn kom manni verulega á óvart. Pottþétt mynd fyrir þá sem hafa gaman af spennandi hrollvekju.

Einkun ***1/2

Sent af Nermal kl [23:05] Komment [0]

Laugardagur 29. október

The legend of Zorro

29m.jpg

Ég fór í bíó í gær. Þar var verið að frumsýna stórmyndina "The legend of Zorro" Þar er sagt frá alþýðuhetjuni Zorro, sem ríður grímuklæddur um á sínum svarta hesti, berst við vonda menn með sverð að vopni.

Þessi mynd er að mörgu leiti ágæt. Þetta er kanski ekki eitthvað svakalegt listaverk, en hin ágætasta afþreying og virkar mjög vel sem slík. Zorro kemst í hann krappann, en tekst alltaf að bjarga sér frá öllu. Antonio Banderas er flottur í hlutverki Zorros enda töffari hin mesti. Cathrine Zeta Jones er mjög fín í hlutverki konu Zorros, Elenu. Ms. Jones er líka gullfalleg þannig að bæði kyn fá fallegt fólk til að horfa á. Ef fólk langar að fara í bíó og skemta sér, án þess að vera að velta sér um of uppúr listrænu gildi bíómyndarinnar sem listforms, þá mæli ég hiklaust með "The legend of Zorro" Fynsin og skemmtinleg mynd sem hentar mörgum, því það er ekkert ógeð né kynlíf í henni.

Stjörnugjöf ***

Sent af Nermal kl [00:00] Komment [0]

Þriðjudagur 25. október

Sin City

19m.jpg
Í gærkveldi sá ég bíómyndina Sin City. Þetta er ákaflega spes bíómynd. Hún er gerð eftir myndasögum, og það sést í myndini. Kvikmyndatakan er þanig að það minnir óneytanlega á ramma í teiknumyndasögu. Myndin er líka að mestu leiti í svart/hvítu sem gefur henni skemtilega drungalegan blæ. Það er líka mjög sérstætt að sjá hvítt blóð sprautast um allt. Leikurinn er til fyrirmyndar í myndini. Má þar sérstaklega nefna gamla brýnið Mickey Rourke, sem leikur ofurharðhausinn Marv. Einnig á Bruce Willis örugga spretti í myndini. Þessi mynd er fyrst og framst "cool" Flott myndataka, nær ódrepandi harðhausar, mikið og myndrænt ofbeldi og fallegt kvennfólk.... held að það sé vart hægt að biðja um meira

Stjörnugjöf ****

Sent af Nermal kl [18:08] Komment [0]

Sunnudagur 28. ágúst

Team America, World police

Ég sá í gærkveldi leikbrúðumyndina Team America. O.kí, þetta er ekki barnamynd þó brúður séu í öllum hlutverkum, enda er myndin bönnuð börnum yngri en 16. Þessi mynd er vægast sagt fyndinn og húmorinn er svo steiktur að það er hrein unun á að horfa.

98m.jpg

Þarna er gert alveg miskunnarlaust grín að bandaríkjamönnum, og þessari ótrúlegu hetjudýrkun sem þar tíðkast. Brúðurnar eru allar svo gallharðir þjóðernissinnar sem gera allt fyrir þjóð sína. Þarna finnast líka allar klysjur hetjumyndana. Aðal fólið er sjálfur Kim Jong Il forseti Norður-Kóreu. Hann er að sjálfsögðu keng klikkaður og drepur menn af minnsta tilefni, Alveg bráðfyndinn.

Húmorinn er líka í þeirri staðreynd að þetta eru brúður sem eru notaðar. Brúðurnar sjálfar eru mjög flott gerðar og það er mjög absúd að sjá strengjabrúður slást, já svo er líka kynlífssena sem er alveg æðislega fyndin.

Myndinn er gerð af þeim Matt Stone og Trey Parker, sem er jú frægastir fyrir South Park þættina. Og auðvitað er ekki neins velsæmis gætt í myndini, og fá margir það óþvegið. Sérstaklega er illa farið með marga leikara, t.d Alec Baldwin og Matt Damon, en hann segir aldrei neitt annað en nafnið sitt. Þetta er kanski ekki óskarsverðlauna mynd, en það er bara hið besta mál. Myndinn er ótrúlega fyndinn en inniheldur jafnframt hárbeitta þjóðfélagsgagnríni á Bandaríkinn. Ég mæli hiklaust með þessari

Stjörnugjöf ****

Sent af Nermal kl [13:36]

Laugardagur 16. júlí

Madagascar

88m.jpg
Í kvöld sá ég teiknimyndina Madagascar. Og ég verð að segja að þessi mynd er alger snilld. Bæði er hún ótrúlega vel gerð tæknilega séð, og svo er hún ótrúlega fyndin. Ég sá myndina á ensku og trúi ég því að það sé ekki auðhlaupið að toppa þá talsettningu. Það eru líka engir aukvisar sem tala fyrir dýrin, þar má nefna Ben Stiller, David Scwimmer, Jada Pinket Smith og Chris Rock.
Dýrin eru öll mjög skemmtinlegir karakterar, Ljónið Alex sem er algert showoff, Sebrahesturinn Marty sem er kjaftaskur og á sér stóra drauma, Flóðhesturinn Gloria, doldil bredda sem lætur engan vaða yfir sig, en tryggai vinur finnst ekki, Gíraffinn Melman sem hefur sífeldar áhyggjur af heilsunni.
En senuþjófarnir eru að mínu mati mörgæsirnar. Alveg maganðir karakterar og útsmognir snillingar. Í stuttu máli sagt, flott mynd mikið hægt að hlæja, mynd sem hentar flestum aldursflokkum.
Einkun ***1/2

Sent af Nermal kl [01:55]

Laugardagur 4. júní

Star Wars episode III

1182371_rt.jpg

Nú nýlega fór ég í bíó og sá sennilega stæðstu mynd ársins. Starwars episode III. Revange og the Sith. Ég ættla ekki að reyna að fara útí söguþráð myndarinnar, enda þyrfti ég þá nokkurnveginn að lýsa öllum stjörnustríðsbálknum. En í stuttu máli fjallar myndin um þegar Jedi riddarinn Anakin Skywalker umbreitist í hin illa innrætta Darth Vaider, eða svarthöfða eins og hann kallast á íslensku. Þetta er sumsé hin klassíska barátta milli góðs og ills.
Ég verð að segja það að ég er ekki fullkomlega sáttur við myndina. Mér fannst Darh Vaider einfaldlega ekki nógu vondur. Haiden Cristiansen er nefnilega ekki nógu öflugur leikari til að leika eitt mesta illmenni kvikmyndasögunnar. Ewan McGregor stendur sig hinnsvegar príðilega sem hin hugumstóri Obi Van Kenobi. Plús myndarinnar frammyfir ep I og II er að hin gersamlega óþolandi Jar Jar Binks sem næstum því rústaði þeim myndun... þá sérstaklega I sást varla, og sagði ekki neitt. Ég hefði að vísu viljað að hann væri höggvinn í spað með geislasverði...en maður fær ekki allt. Tæknibrellurnar eru vægast sagt ótrúlegar, bardagar með stórum geimskipum sem eru ótrúlega eðlileg. Mikill háfaði, læti og hraði. Maður náði varla að fylgjast fullomlega með öllu.

Dómur: ***
(af 5 mögulegum)

Sent af Nermal kl [05:46] Komment [3]

Fimmtudagur 4. nóvember

Blindsker

Ég fór um daginn og sá heimildarmyndina Blindsker. Myndin fjallar um stormasaman feril Bubba Morhens. Hér er á ferðinni einkar athyglisverð mynd. Mynd sem engin alvöru aðdáandi karlsins ætti að láta frammhjá sér fara. Hann dregur ekkert undan og segir frá öllu dópinu og ruglinu sem hann var í. Og viðurkennir að hafa verið mikklu lengur í dópi en hann sagðist áður hafa verið. Og auðvitað er myndin stútfull af tónlist Bubba. Og í gegnum myndina skynjar maður betur hversvegna hann samdi þennann og þennan textan. Textinn við lagið Rómeó og Júlía sem er að mínu mati eitt besta lag Bubba, samdi hann í meðferð. Hann hefur átt margar sigra, einnig margar sorgir. Auðvitað var ekki hægt að covera allt sem hann hefur gert, enda lyggja eftir hann tugir platna. En þetta var fín mynd, um einkar athygliverðan einstakling.
Stjörnugjöf ***

Sent af Nermal kl [23:00]

Mánudagur 31. maí

The day after tomorrow

Ég fór í bíó í gær og sá hamfaramyndina "The day after tomorrow" . Þar er sagt fá þegar ísöld skellur á svona rétt eins og auga væri veifað. Ægileg hörmungarveður geisa og heimurinn er á heljarþröm. Aðalhetjan og ofurvísindamðurinn (Dennis Quaid) var þó búinn að sjá þetta fyrir en talaði að sjálfsögðu fyrir daufum eyrum. Svo eru hörmungar og allur pakkinn. En þessi mynd fellur því miður í þá leiðindagryfju að vera með eindæmum klysjukend. Menn gerast þvílíkar hetjur og sýna svo einstaka fórnarlund og þjóðrækni að manni verður næstum óglatt. Maður nær enganveginn að finna til með persónunum og væri alveg sama þó þær dræpust allar með tölu. En auðvitað lifa hetjurnar af og auðvitað blómstrar ástin í gegnum hörmungarnar. Svo eru að sjálfsögðu nokkur alveg fárnánleg atriði þarna eins og alltaf í svona myndum. Eitt dæmi er að aðalhetjan er stödd uppá þaki verslunarmiðstöðvar við þriðja mann og þá pompar einn þeirra niður í gegnum glerþakið. Og þar sem hann hangir í spottanum bundinn við félaga sinn sýnist manni glerið í þakinu vera einfalt rúðugler. Og auðvitað fórnar hann sér til bjargar félögum sínum. Það má þó gefa þessari mynd gott kredid fyrir glæsilegar sjónrænar brellur og ágætis hljóð. Einstaka brosleg augnablik skjóta líka upp kollinum. STJÖRNUGJÖF *1/2

Aðalhutverk Dennis Quaid, Jackie Gyllenhaal og Ian Holm
Leikstjóri: Roland Emmerich

Sent af Nermal kl [17:29]

Laugardagur 3. apríl

Kvikmyndagagnrýni Nermals

Kevin & perry go large
Sá þessa mynd í gær og get ekki sagt að ég hafi verið hrifinn. Hér er um að ræða breska gamanmynd um tvo svakalega vitgranna 15 ára stráka sem hugsa vart um annað en kynlíf. Breskur húmor ætti nú að geta gert þetta skemmtinlegt, en viti menn þetta floppar feitt. Leikaravalið er t.d alveg útí hött, Harry Enfield er of gamall til að vera trúverðugur 15 ára strákur og af einhverjum torkennilegum ástæðum leikur hin 35 ára gamla Kathy Burke hálfvitan Perry. Þau leika þá kumpána ekki bara vitlausa heldur finnst manni að þeir hjóti að vera vangefnir líka, sumsé ofleikur dauðans. Söguþráðurinn er líka bölvað þunnildi með lélegum standpínubröndurum og jafnvel enn ódýrari húmor. Það eru kanski eitt tvö atriði sem fá mann til að brosa pínulítið. En í stuttu máli er þessi mynd bara lélegt drasl Störnugjöf : *

Sent af Nermal kl [18:16]

Þriðjudagur 24. febrúar

Kvikmyndagagnrýni Nermals

Ég hef lengi ættlað að birta dóm um þessa mynd, enda er rúmmlega vika síðan ég sá hana. Þetta er The return off the king, lokaþátturinn í þrímynda stórvirkinu Lord of the Rings. Vægast sagt er þetta mynd sem virkilega grípur augað. Stórkostlegri bardagaatriði hafa ekki sést í nokkurri mynd, og er á allann hátt vandað mjög til verks við gerð myndarinnar. Kvikmyndatakan og hljóðið alveg stórfengleg upplifun. Sagan er frábær og ber skáldsagnargáfu Tolkiens fagurt vitni. Leikurinn til mikillar fyrirmyndar. Tæknibrellurnar eru mjög flottar en samt ekki þannig að þær skyggi á myndina sjálfa eins og vil alltof oft gerast. Eina sem ég get verulega sett útá er þýðinginn á titli myndarinnar yfir á íslensku, en á okkar ástkæra ylhýra er myndin kölluð Hilmir snýr heim. Málið er að engin veit hver þessi Hilmir er! Af hverju mátti myndin ekki bara heita "Endurkoma konungs" eða eitthvað þessháttar?

Það hefur í tvígang verið gengið frammhjá LOTR myndunum þegar Óskarsverðlaunin hafa verið afhent, en núna ættla ég rétt að vona að Akademían sjái nú ljósið í kvikmyndasoranum og veiti þessari frábæru mynd Óskarsverðlauninn fyrir bestu mynd... annað er skandall. Einkunn ****

Sent af Nermal kl [20:19]

Fimmtudagur 12. febrúar

Kvikmyndagagnrýni Nermals

Ég var loksins áðan að horfa á Terminator 3. The rise of the machines. Þetta er að mörgu leiti hin ágætasta mynd. Nóg af hasar og virkilega glæsilegum tæknibrellum og töff stöntatriðum. Stórir skammtar af bílahasar, sprengingum og skotbardögum halda manni vel við efnið. Ekki skemmir heldur fyrir að sú sem leikur vonda vélmennið (Kristanna Loken) er virkilega sexý stelpa. Stendur sig líka bara ágætlega sem hið tilfinningakalda vélkvendi (T-X) sem drepur án þess að blikka auga. Arnold Scwartzenegger smellpassar líka í sitt hlutverk. Ótrúlegt hvað kallinn er líka í góðu formi. T-3 er ekki eins góð og T-2 enda erfitt að toppa þá mynd. Endirinn á þessari mynd kemur doldið á óvart.. Í stuttu máli fínn hasar mikil læti og öndvegis afþeying ***

Sent af Nermal kl [22:32]

Sunnudagur 28. september

Kvikmyndagagnrýni Nermals Ég sá um

Kvikmyndagagnrýni Nermals
Ég sá um helgina mynd sem sýnd var á föstudaginn og vann kosningu áhorfenda um "gamanmynd kvöldsins". Áhorfendur völdu Jason X Hversvegna hín var þarna með gamanmyndum veit ég ekki, því þetta á að vera hrollvekja. Ég er ekki mikill aðdáandi soleiðis mynda en áhvað að horfa á þessa..... Ekki góð hugmynd, þessi mynd er bæði heimskuleg og fyrirsjáanleg. Í stuttu máli fjallar hún um "mannveruna" Jason sem er í raun ódrepandi blóðþyst ofurskýmsli. Fyrst í myndinni tekst fyrir snarræði að loka Jason inní einhverskonar frystijúniti....gott og vel.... Svo líða 500 ár!!! Og frammtíðarfólk kemur og fer með Jason og konu sem þarna var frosin líka í geimfarið, og eins og við mátti búast lifnar Jason kallin að sjálfsögðu við, enda ódrepandi...... og fer að slátra geimliðinu einu og einu í einu... á hin ýmsasta hátt. Mekileft að Jason sem er stór og mikll. og frekar klunnalegur í hreyfingum, virðist samt getað læðst aftan að fólki og hakkað það í ræmur. Svo er bara hver klysjan á eftir annari... svona eins og þegar alli héldu að hann væri dauður...... og svo lifnaði hann við aftur enn öflugri og meira illari en sjálfur Skeletor..... En allt bjargaðist að lokum...... Mæli ekki með þessari, hún fer í flokk með Daredevil og Mission impssible 2.

Sent af Nermal kl [23:00]

Sunnudagur 15. júní

Marg oft hafa verið gerðar

Marg oft hafa verið gerðar kvikmyndir sem tengjast íþróttum á einhvern hátt. Málið er að þærf virðast flestar fjalla um sömu íþróttirnar. Hafnarbolta, Amerískan fótbolta, körfubolta eða íshokkí. Einstaka kappaksturmyndir hafa líka verið gerðar. Meira að segja golf og skák hafa verið efni í bíómyndir. En einhverra hluta vegna hafa sumar íþróttir aldrei verið gerðar "ódauðlegar" í kvikmynd. T.d man ég ekki eftir einni einustu bíómynd sem gerist í Curling heiminum. Ekki mynnist ég myndar um badminton né heldur um handbolta. Menn eru að leggja margar milljónir í myndir eins og xXx sem eru hundlélegar þannig að það er örugglega alveg hægt að gera líka eins og eina Curling mynd, aldrei að vita nema Cristopher Lambert sé til í að taka að sér aðalhlutverkið :). Ice and Stones the ultimate curling movie

Sent af Nermal kl [00:33]

Mánudagur 21. apríl

Enn um bíómyndir... Í gær

Enn um bíómyndir... Í gær var sýnd á Stöð 2 hin margverðlauanað og mikið svo lofaða kvikmynd Mouilin Rouge. Kanski er ástæðan sú að ég er karlmaður... eða eithvað sem er bara í mínum kvikmyndasmekk, en ég gafst upp eftir c.a 40 mín. Fyrstu 10 mínúturnar voru eins og höfundarnir hefðu verið á svakalegu sýrutrippi. Svo voru þarna að poppa upp lög úr nútímanum Madonna, Nirvana og ýmislegt fleira. Ég efast stórlega um að ég nenni að horfa einhverntíma á restina af myndinni......Þá vil ég frekar bara almennilegan hasar og læti...... T-3 fer vonandi bráðum að koma. Svona fyrir þá sem ekki vita, þá er T-3 Termenator 3. með Swartzenegger.

Sent af Nermal kl [15:54]

Fimmtudagur 10. apríl

Í gær sá ég myndina

Í gær sá ég myndina xXx eða tripple X... Ég verð í þessu tilfelli að vera sammála bróður mínum í gagnrýni minni á þessa mynd. Myndin er í nær alla staði léleg. Tónlistinn er að vísu ágæt og nokkrir flottir bílar sjást þarna, t.d er helvíti flottur Pontiac GTO. En þar með eru kostir myndarinnar upp taldir. Vin Diesel talandi með sinni drafandi rödd sem að sumu leyti minnir þónokkuð á talandan hjá Haldóri Ásgrímssini utanríkisráðherra. Hann var þarna lúskrandi á öllum klæddur í einhvern þann ljótasta jakka sem sést hefur í kvikmyndasögunni, líktist helst ranghverfri rollu. En Vin Diesel er einfaldlega lélegur leikari og mikið magn af kjöti sem er utan á honum bæta það á engan hátt upp. Söguþráður myndarinnar er líka afspyrnu slappur og nær myndin aldrei að verða almennilega spennandi. Það sem þó fór mest í taugarnar á mér voru ýmis atriði sem voru svo heimskuleg að þau eiga ekki einusinni heima í bíómynd. Það er t.d alveg glatað þegar Dísillinn kemur af stað snjóflóði og brunar á undan því á snjóbretti. Ef ég man rétt þá getur snjóflóð náð allt að 300 km/h.... Það er ómögulegt að bretta undan því!!!!! Snjóflóðið náði t.d strax vondu mönnunum sem þó voru á vélsleðum........ En í stuttu máli sagt Dribble X er alger della og ferlegt þunnildi. Það sem verra er... mér skilst að það eigi að gera FRAMMHALD af þessari mynd.........

Sent af Nermal kl [21:15]