Heim | Gaur »

Sims II

Úff... ég er svo innilega föst í Sims II. ég keypti hann fyrir 2 vikum og fannst ég vera algjör hetja... var búin að komast í gegnum 2 vikur án þess að fara á netið og finna svindl! Eitt það fyrsta sem ég gerði með leik eitt (og marga aðra leiki líka, Tony Hawkes t.d.) var að fara online og finna peninga svindlið! Maður verður að eiga nóga peninga í þessum leik.
Ég persónulega er ekki peningagráðug en ekkert er of gott fyrir Simmana mína!! Núna eiga þau allt það besta og dýrasta og lifa lífinu í vellystingum :-)
Maður spáir actually í hvað þau eru að gera þegar maður slekkur á tölvunni... samt veit ég vel að þau eru ekki að gera neitt... ég er GUÐ!!!

Talning


Alls heimsóknir: 81409
Gestir í dag: 9
Gestir í gær: 10
Þennan mánuð: 256

Færslur: 1049
Álit: 3074

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme