Gleðilegt ár elsku fólk. Vinir jafnt sem óþekktir.
Ég ætla að vona að 2005 verði betra en 2004... því það var ekkert spes.
Ég hét á alla góða vætti, bað til ása og ásynja og mælti þeim heill.
Ég er hérna í sveitinni með fjölskyldunni og ætla mér ekkert á djammið. Ég ætla að vera góð og setja mér "markmið" fyrir næsta ár. Þetta eru EKKI áramótaheit. Ég setti eitt i fyrra og það stendur ennþá. Það var að strengja aldrei aftur áramótaheit *glottir*
Ég hins vegar ætla að líta í eiginn barm og íhuga hvað það er sem ég vill gera.
Vil ég flytja til Edinborgar eins og búið er að stinga að mér? Vill ég fara að einbeita mér að því að ná mér í meiri menntun? Hvert vill ég vera að fara? er ég með stefnu eða er ég að ráfa um stefnulaust? Eins og ég og Júlli vinur minn vorum að ræða um daginn þá er eins og við höfum 2 leiðir. Annars vegar þá sem er ákveðin og gerist sama hvað við reynum að láta það ekki gerast og hins vegar þá sem við stjórnum og reynum alltaf að þvinga hlutina til að gerast. Ef þessar leiðir eru ósamræmanlegar þá erum við alltaf í krísu. Við lendum í vandræðum í lífinu og í stað þess að leyfa örlögunum að ráða og stjórna för þá berjumst við á móti til síðasta blóðdropa.
Ætti maður ekki að hætta að berjast á móti og reyna að samræma þessar leiðir???
Þessi mynd er eftir Júlla. Hann er snillingur! Ég elska hann.

(3)
Er þetta ekki svipuð pæling og:
Guð gefi mér
styrk til að breyta því sem ég get breytt,
æðruleysi til að sætta mig við það sem ég get ekki breytt,
og vit til að greina þar á milli.
Eða hvernig sem það var. Kannski spurning um að taka út hvítskegg gamla úr byrjuninni og setja inn eitthvað á borð við 'Guðir og gyðjur' eða 'Kosmískt afl' eða eitthvað annað svalt. Þá væri kannski hægt að gera þetta að sínu.
Gleðilegt ár annars.
- Þarfagreinir
Skrifaði Anonymous | 01.01.05 17:47
Ég held að maður eigi bara að láta örlögin ráða þessu! Ekki gera neitt nema fylgja hjartanu! ég ætla alla vegana að reyna það á þessu nýja ári...
Skrifaði Nornin | 02.01.05 16:01
Edinborgar hvað ????
Er ég að missa af einhverju hérna :)
Gleðilegt ár dúllan mín.
kv Sigga Ásta
Skrifaði Sigga | 03.01.05 14:27