« Bara gaman | Heim | Merkilegt alveg hreint... »

Komst að því að það

Komst að því að það eru einhverjir Bagglýtingar sem ég þekki ekki sem lesa bloggið mitt, þannig að ég ákvað að ritskoða það. Sumt af því sem ég hef verið að skrifa er í raun ekki fyrir alla að lesa. Gleymdi mér aðeins og fór dálítið yfir strikið í lýsingum á persónulegum málum. Því þó fólk sem hefur ekki farið á Baggalút viti ekki um hverja ræðir þá er allt annað að útlista þetta allt fyrir Bagglýtingum sem vita það. Æi þið skiljið.

Ég varð skotin. Þannig er það bara. Í fyrsta sinn síðan ég skildi við X-manninn hafði ég tilfinningar til einhvers. Verst að það skildi fara eins og það fór. Það var alveg skemmtilegt, en það er búið af minni hálfu.

Ég er daðrari. Ég meina yfirleitt eitthvað með því og daðra ekki nema að ég hafi áhuga á að kynnast viðkomandi betur. Stundum endar það með vinskap eins og hjá mér og Þarfagreini, stundum fer það lengra.

Ég legg aldrei upp með að særa neinn. Það er ekki planið þegar ég er að spjalla við einhvern. Alls ekki. Ég tala við þá sem mér finnast áhugaverðir og skemmtilegir karakterar.

Ég biðst afsökunar ef ég hef sært einhvern, hneykslað eða ef einhverjum líður eins og ég hafi haft hann að fífli. Það var ekki ætlunin. Alls ekki.
En ég gaf aldrei í skyn að ég væri ekki að spjalla við neinn annan líka. Það hefði mátt spyrja.
Og ég er bara að fara að hitta hann sem vin. Ekkert meira.

Talning


Alls heimsóknir: 81411
Gestir í dag: 11
Gestir í gær: 10
Þennan mánuð: 258

Færslur: 1049
Álit: 3074

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme