« Ritgerðin búin! | Heim | GSMblogg »

Nú jæja

Mér líður betur í sálinni. Ég er að verða eðlileg aftur.
Það er bara svo þreytandi þegar eini maðurinn sem ég hef áhuga á (og búin að hafa áhuga lengi) hefur ekki áhuga til baka. Þá lendi ég ósjálfrátt í þeirri aðstöðu að hafa engann áhuga á strákum sem HAFA áhuga á mér :-/
Kannski er þetta vítahringur.
Ég ætti kannski að taka fram galdradótið :-p
Álög væru vel við hæfi hér....

(5)

Galdrameistarinn:

Legg ég svo á og mæli um að þú megir njóta hamingju og ásta til æfiloka.

Furða:

Mér hefur liðið svona lengi. Vona bara að þú finnir einhvern fljótlega.

Og hvaða ómenni mun þetta vera? Veit ég hver það er?

Galdri: Takk kærlega :-)
Rúnin: Nei elskan þú veist ekki hvaða ómenni þetta er... og það versta er að hann er ekkert ómenni. Það væri eiginlega betra ef hann væri það.

Stundum er svonalagað bara tómt svindl. Ég hef kynnst manneskju, fallegri og yndislegri í alla staði. En það vantaði bara þetta eitthvað sem engin veit hvað er. Svona er lífið oft fúlt

Talning


Alls heimsóknir: 81746
Gestir í dag: 20
Gestir í gær: 2
Þennan mánuð: 75

Færslur: 1049
Álit: 3074

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme