« Hjartsláttur | Heim | Fokk »

Keilir

Um síðustu helgi fékk ég póst frá Keili um að mér hefði verið úthlutað íbúð þar... við glöddumst mjög og hófum að reikna út hversu mikið myndi sparast í akstur (taka rútuna á milli) og afborganir af íbúðinni (áttum að leigja á 58.000 og hefðum sennilega getað leigt okkar íbúð út á 120.000).
Þegar maður fær úthlutað á Keili hefur maður 2 daga til að staðfesta skráninguna og svo 2 daga til viðbótar til að koma sér upp á Völl og skrifa undir leigusamning. Svo snar hugsun og snörp handtök skiptu sköpum.

Síðasti dagur minn í fæðingarorlofi (gleði og bömmer á sama tíma) var á mánudaginn hugsuðum við málið á laugard. og sunnud. og ég fór upp á Vallarheiði á mánudaginn (með mömmu og afa í eftirdragi).
Við vorum svo heppin að íbúðin sem okkur var úthlutað stóð opin og menn frá ÍAV voru að vinna í henni þannig að ég gat farið og skoðað :-)

Nú, einu íbúðirnar sem ég hef komið inn í á Vallarheiði eru hjá Jónu og Evu. Þær eru báðar á öðru svæði en ég fékk úthlutað og eru með amerísku rafmagni.
Þeim íbúðum fylgja heimilistæki (ísskápur, eldavél, örbylgjuofn, þvottavél og þurrkari) og þær eru stórar og rúmgóðar.
Þessum íbúðum fylgir hinsvegar ekkert og eru þær töluvert minni.

Þessu komst ég ekki að fyrr en ég rakst á mann frá ÍAV sem sagði mér að ekkert ætti að vera í íbúðunum... hann hélt meira að segja að það ætti ekki að vera eldavél, en skv. íslenskum húsaleigulögum verða þær víst að fylgja... annars hefðu þær örugglega verið teknar út líka!

Ég fór upp á skrifstofu Keilis og bað þau vel að lifa. Ég nenni sko ekki að flytja með öll mín heimilistæki fyrir eitt ár... það er bara svo mikill kostnaður fólginn í því að það tekur því alls ekki.

Hálftíma eftir að ég sagði þeim að ég vildi ekki íbúðina þar sem ekkert fylgdi henni, hringdi einhver af skrifstofunni í mig og bauð mér að halda áfram að vera á biðlista... og þá eftir íbúð með tækjum.
Ég sagði bara já en tók líka fram að hún yrði að vera á jarðhæð eða í gæludýrablokk.

Mín bara með heimtufrekju ;-)

Svo kannski og kannski ekki erum við að flytja á Keili í haust.
Ólíklegra en líklegra samt.

Talning


Alls heimsóknir: 81409
Gestir í dag: 9
Gestir í gær: 10
Þennan mánuð: 256

Færslur: 1049
Álit: 3074

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme