« Löt að blogga? | Heim | MPM »

Jæja, loksins er ég búin að eiga og það fyrir heilum 16 dögum :-)
Þorgeir Úlfar kom í heiminn 30. apríl og var ekinn með keisaraskurði eins og Björgvin Hrafnar.

Nóg um það.
Planið í fæðingarorlofinu er að vera duglegri að blogga, fara norður í hálfan mánuð, vera eins mikið úti og hægt er með strákana mína og vera dugleg að passa mataræðið og hreyfa mig nóg :-)
Ég er sko komin aftur í gallabuxurnar sem ég var í áður en ég varð ófrísk af Þorgeiri og nú er planið að komast í gallabuxurnar sem ég var í áður en ég varð ófrísk af Björgvini fyrir lok árs 2010 :-)

Ég ætla ekki í megrun, þar sem ég veit alveg hvernig það endar... ég verð bara svön af að heyra orðið megrun :-þ
Svo ég breyti um lífsstíl og sú breyting er þegar byrjuð.
Ég er hætt að borða þar til ég er að springa, borða bara ákveðið magn.
Er búin að minnka brauðneyslu og stefni á að borða brauð bara fyrir kl. 14 á daginn og ekkert eftir það. Ekki einu sinni pizzu! (Unnar deyr örugglega þegar hann fattar það!!!)
Og svo er það bara út að labba með Þorgeir og í sund með Björgvin :-)

Ræktin verður svo tekin með í bland í haust, ætla að fara í háskólaræktina þegar ÞÚ (skammstöfunin hans Þorgeirs) verður kominn til dagmömmunnar og BH kominn á leikskólann.

Oh, þetta verður geggjað sumar!!!

(2)

Unnar:

*Deyr fyrirfram úr pizzuskorti*

Ó já þetta verður geggjað sumar og mikið hljómar þetta plan skemmtilegt er að gera voða svipað, þ.e.a.s. ég er ekki í megrun en er að taka mig í gegn og breyta hægt og rólega hinum ýmsu hlutum :)

Skilja eftir athugasemd


Talning


Alls heimsóknir: 79950
Gestir í dag: 0
Gestir í gær: 13
Þennan mánuð: 162

Færslur: 1049
Álit: 3074

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme