Hmmm... sagði ég ekki fyrir einhverju síðan að ég ætlaði að blogga meira?
Og vera dugleg að taka þátt í MPM?
Ég veit að nú er þriðjudagur að kvöldi kominn, en ég ætla samt að blogga smá og setja mánudags uppskriftirnar á netið.
Við skoðuðum hús í dag. Fallegt hús á góðum stað. Fallegt, dýrt hús á fallegum, góðum stað.
*Andvarp*
Það má láta sig dreyma. Ef einhver á 10 milljónir sem hann/hún hefur ekkert að gera við, værum við svo sem til í að koma þeim í lóg...

Mánudagur - sjoppufæði þar sem við vorum að koma að norðan.
Þriðjudagur - Pönnusteiktar kjúklingabringur, penslaðar með soyasósu og matarolíu. Bornar fram með spínati og gulri papriku.
Miðvikudagur - Ravioli
Fimmtudagur - Snarl... er að fara til Keflavíkur um kvöldið.
Föstudagur - Pizzaflétta
Laugardagur - Kjúklingalasagna með smá breytingum
Sunnudagur - BLTA samlokur


