Fyrir mörgum árum síðan voru svokallaðir Tunglfundir haldnir í húsnæði Ásatrúarfélagsins úti á Granda. Þeir voru ekki á vegnum félagsins heldur var þetta fólk með áhuga á andlegum og dulrænum málum að hittast og uppfræða hvert annað um hin ýmsu mál.
Man ég meðal annars eftir skemmtilegum fyrirlestri frá Reyni Katrínar um Gyðjuspilin hans, fyrirlestri frá Jónínu Berg um lækningajurtir, Tarotspil og minnir að það hafi verið fyrirlestur um Santería líka.
Nú er búið að endurvekja þessa fundi og eru allir sem hafa áhuga á dulrænum málum beðnir um að hafa augu og eyru opin.
Lénið tunglfundir.is verður notað undir upplýsingar í framtíðinni, en þar til erum við á fésbókinni :-)



(5)
Hæ skvís... þetta hljómar spennandi...
spurning hvort ég fæ að kíkja í kaffi til þín fljótlega og heyra meira um málið ?
Skrifaði Sif | 09.06.09 12:15
Að sjálfsögðu!
Sláðu bara á til mín, ég er oftast heima við :-)
Skrifaði Nornin | 09.06.09 12:48
Kondu sæl
Ég datt inn á síðuna þína og finn ekki lénið tungfundir sem þú bendir á.
Kveðja
Skrifaði Seiðkona | 16.06.09 20:54
Sæl Seiðkona.
Eins og segir í færslunni þá er lénið ekki til ennþá, en við erum á fésbókinni.
Ef þú sendir mér netfangið þitt og/eða fésbókar nafnið þá get ég boðið þér í hópinn og þá færðu allar upplýsingar um hvað er á dagskrá á næstunni.
Skrifaði Nornin | 17.06.09 00:25
Snilld :D
Skrifaði Jóh.Krist | 05.07.09 13:35